1Vei þeim, sem fara suður til Egyptalands í liðsbón, sem reiða sig á hesta og treysta á vagna, af því að þeir séu margir, og á riddara, af því að fjöldinn sé mikill, en líta ekki til Hins heilaga í Ísrael og leita ekki Drottins.2En hann er líka ráðspakur og lætur ógæfuna yfir koma og tekur ekki orð sín aftur. Hann rís upp í móti húsi illvirkjanna og í móti hjálparliði misgjörðamannanna.3Egyptar eru menn, en enginn Guð, hestar þeirra eru hold, en eigi andi. Þegar Drottinn réttir út hönd sína, hrasar liðveitandinn og liðþeginn fellur, svo að þeir farast allir hver með öðrum.4Svo hefir Drottinn við mig sagt: Eins og ljónið eða ljónskálfurinn urrar yfir bráð sinni, þegar hjarðmannahóp er stefnt saman á móti honum, og hann hræðist ekki köll þeirra og lætur ekki hugfallast við háreysti þeirra, eins mun Drottinn allsherjar ofan stíga til þess að herja á Síonfjall og hæð þess.5Eins og fuglar á flökti, eins mun Drottinn allsherjar vernda Jerúsalem, vernda hana og frelsa, vægja henni og bjarga.6Hverfið aftur, þér Ísraelsmenn, til hans, sem þér eruð horfnir svo langt í burtu frá.7Því að á þeim degi munu þeir hver og einn hafna silfurgoðum sínum og gullgoðum, er sekar hendur yðar hafa gjört handa yður.8Assýría skal fyrir sverði falla, en ekki fyrir manna sverði. Sverð skal verða henni að bana, en ekkert mannssverð. Hún mun undan sverði flýja og æskumenn hennar verða ánauðugir.9Og bjarg hennar mun farast af ótta og höfðingjar hennar flýja í ofboði undan merkinu. Svo segir Drottinn, sem hefir eld sinn á Síon og arin sinn í Jerúsalem.

31.1 Í liðsbón Jes 18.2+ – treysta á vagna Jes 36.9 – líta ekki til Jes 5.12-24; 22.11 – Hinn heilagi Jes 1.4+ – leita Drottins Slm 9.11+
31.2 Illvirkjar Slm 5.6; 6.9; 14.4; 28.3; 36.13; 53.5 o.fl.; sbr Jes 10.1; 29.20
31.3 Menn, en enginn Guð Slm 146.3 – farast Jes 1.28; 10.18; 29.20
31.5 Undir vernarvæng Slm 17.8+ – Drottinn verndar Jerúsalem Jes 29.5-8; 36-37
31.6 Djúpt frá Jes 1.2-4
31.7 Tilbúin goð Jes 17.7-8; sbr Slm 115.4-7+ – hafna Jes 2.20; 30.22
31.9 Merkin Jes 5.26+ – eld á Síon Jes 33.14