1Á þeim degi skaltu segja: Ég vegsama þig, Drottinn, því þótt þú værir mér reiður, þá er þó horfin reiði þín og þú huggaðir mig.2Sjá, Guð er mitt hjálpræði, ég er öruggur og óttast eigi, því að Drottinn Guð er minn styrkur og minn lofsöngur, hann er orðinn mér hjálpræði.3Þér munuð með fögnuði vatni ausa úr lindum hjálpræðisins.4Og á þeim degi munuð þér segja: Lofið Drottin, ákallið nafn hans. Gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna, hafið í minnum, að háleitt er nafn hans.5Lofsyngið Drottni, því að dásemdarverk hefir hann gjört. Þetta skal kunnugt verða um alla jörðina.6Lát óma gleðihljóm og kveða við fagnaðaróp, þú sem býr á Síon, því að mikill er Hinn heilagi í Ísrael meðal þín.

12.1 Ég vegsama þig Slm 118.21; Jer 33.11 – hvarf reiðin Jes 10.25; sbr 5.25; 9.11,16,20; 10.4
12.2 Guð er hjálp mín Jes 43.3+
12.3 Lindum hjálpræðisins Jes 8.6; 55.1; Jer 2.13; 17.13; Esk 47.1; Jl 4.18; Sak 14.8; Jóh 9.11; sbr Jóh 4.14
12.6 Fagnaðaróp á Síon Jes 52.8-9; 54.1 – Hinn heilagi í Ísrael Jes 1.4+