1Jesús kom til Jeríkó og gekk gegnum borgina.2En þar var maður, er Sakkeus hét. Hann var yfirtollheimtumaður og auðugur.3Langaði hann að sjá, hver Jesús væri, en tókst það ekki fyrir mannfjöldanum, því hann var lítill vexti.4Hann hljóp þá á undan og klifraði upp í mórberjatré til að sjá Jesú, en leið hans lá þar hjá.5Og er Jesús kom þar að, leit hann upp og sagði við hann: Sakkeus, flýt þér ofan, í dag ber mér að vera í húsi þínu.6Hann flýtti sér ofan og tók á móti honum glaður.7Þeir er sáu þetta, létu allir illa við og sögðu: Hann fer til að gista hjá bersyndugum manni.8En Sakkeus sté fram og sagði við Drottin: Herra, helming eigna minna gef ég fátækum, og hafi ég haft nokkuð af nokkrum, gef ég honum ferfalt aftur.9Jesús sagði þá við hann: Í dag hefur hjálpræði hlotnast húsi þessu, enda er þessi maður líka Abrahams sonur.10Því að Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það.11Meðan þeir hlýddu á, bætti hann við dæmisögu, því að hann var í nánd við Jerúsalem, og þeir ætluðu, að Guðs ríki mundi þegar birtast.12Hann sagði: Maður nokkur tiginborinn fór í fjarlægt land til þess að taka við konungdómi og koma síðan aftur.13Hann kallaði tíu þjóna sína, seldi þeim í hendur tíu pund og sagði við þá: Verslið með þetta, þangað til ég kem.14En landar hans hötuðu hann og gerðu sendimann á eftir honum til að segja: Vér viljum ekki, að þessi maður verði konungur yfir oss.15Nú kom hann aftur og hafði tekið konungdóm. Þá lét hann kalla fyrir sig þjóna þá er hann hafði selt féð í hendur, til þess að vita, hvað hver hefði grætt.16Hinn fyrsti kom og sagði: Herra, pund þitt hefur ávaxtast um tíu pund.17Konungur sagði við hann: Gott, þú góði þjónn, þú varst trúr í mjög litlu og því skaltu ráða fyrir tíu borgum.18Annar kom og sagði: Pund þitt, herra, hefur gefið af sér fimm pund.19Hann sagði eins við hann: Þú skalt og vera yfir fimm borgum.20Enn kom einn og sagði: Herra, hér er pund þitt. Ég hef haft það geymt í dúki,21því að ég var hræddur við þig, en þú ert maður strangur og tekur það út, sem þú lagðir ekki inn, og uppsker það, sem þú sáðir ekki.22Hann segir við hann: Illi þjónn, eftir orðum þínum dæmi ég þig. Þú vissir, að ég er maður strangur, sem tek það út, sem ég lagði ekki inn, og uppsker það, sem ég sáði ekki.23Hvers vegna léstu þá ekki fé mitt í banka? Þá hefði ég fengið það með vöxtum, er ég kom heim.24Og hann sagði við þá er hjá voru: Takið af honum pundið, og fáið þeim, sem hefur tíu pundin.25En þeir sögðu við hann: Herra, hann hefur tíu pund.26Ég segi yður: Hverjum sem hefur, mun gefið verða, og frá þeim sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem hann hefur.27En þessa óvini mína, sem vildu ekki að ég yrði konungur yfir sér, færið þá hingað og höggvið þá frammi fyrir mér.28Þá er Jesús hafði þetta mælt, hélt hann á undan áfram upp til Jerúsalem.29Þegar hann nálgaðist Betfage og Betaníu við Olíufjallið, sem svo er nefnt, sendi hann tvo lærisveina sína30og mælti: Farið í þorpið hér fram undan. Þegar þið komið þangað, munuð þið finna fola bundinn, sem enginn hefur enn komið á bak. Leysið hann og komið með hann.31Ef einhver spyr ykkur: Hvers vegna leysið þið hann? þá svarið svo: Herrann þarf hans við.32Þeir sem sendir voru, fóru og fundu svo sem hann hafði sagt þeim.33Og er þeir leystu folann, sögðu eigendur hans við þá: Hvers vegna leysið þið folann?34Þeir svöruðu: Herrann þarf hans við,35og fóru síðan með hann til Jesú. Þeir lögðu klæði sín á folann og settu Jesú á bak.36En þar sem hann fór, breiddu menn klæði sín á veginn.37Þegar hann var að koma þar að, sem farið er ofan af Olíufjallinu, hóf allur flokkur lærisveina hans að lofa Guð fagnandi hárri raustu fyrir öll þau kraftaverk, er þeir höfðu séð,38og segja: Blessaður sé sá sem kemur, konungurinn, í nafni Drottins. Friður á himni og dýrð í upphæðum!39Nokkrir farísear í mannfjöldanum sögðu við hann: Meistari, hasta þú á lærisveina þína.40Hann svaraði: Ég segi yður, ef þeir þegja, munu steinarnir hrópa.41Og er hann kom nær og sá borgina, grét hann yfir henni42og sagði: Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi, hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum.43Því að þeir dagar munu koma yfir þig, að óvinir þínir munu gjöra virki um þig, setjast um þig og þröngva þér á alla vegu.44Þeir munu leggja þig að velli og börn þín, sem í þér eru, og ekki láta standa stein yfir steini í þér, vegna þess að þú þekktir ekki þinn vitjunartíma.45Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá er voru að selja46og mælti við þá: Ritað er: Hús mitt á að vera bænahús, en þér hafið gjört það að ræningjabæli.47Daglega var hann að kenna í helgidóminum, en æðstu prestarnir og fræðimennirnir svo og fyrirmenn þjóðarinnar leituðust við að ráða hann af dögum,48en fundu eigi, hvað gjöra skyldi, því að allur lýðurinn vildi ákaft hlýða á hann.

19.2 Tollheimtumaður Matt 5.46+
19.7 Létu illa við 2Mós 15.24; 16.2 o.áfr.; Matt 20.11; Lúk 5.21; 15.2; Jóh 6.41,61; Post 6.1; 1Kor 10.10; Júd 16 – vinur bersyndugra Lúk 5.29-30+
19.8 Margfalt 2Mós 19.36; 2Sam 12.6; Okv 6.31; sbr 3Mós 6.1-5; 4Mós 5.6-7
19.9 Í dag Lúk 2.11+ – hjálpræði hlotnast húsi þessu Post 16.31-34 – niðji Abrahams Lúk 13.16
19.10 Leita og frelsa Esk 34.16; Matt 18.11; Lúk 15.4,6,9
19.11-27 Hlst. Matt 25.17-30
19.12 Í fjarlægt land Mrk 13.34
19.17 Trúr í mjög litlu Lúk 16.10
19.26 Hverjum, sem hefur … Matt 13.12+
19.28-40 Hlst. Matt 21.1-11; Mrk 11.1-11; Jóh 12.12-19
19.28 Upp til Jerúsalem Lúk 9.51; 13.22; 17.11
19.29 Betanía Matt 21.17+ – Olíufjallið Mrk 11.1+
19.31 Herrann Lúk 7.13
19.32 Eins og Jesús hafði sagt Lúk 22.13
19.35 Foli Sak 9.9-10; sbr 1Kon 1.33
19.36 Breiddu klæði sín á veginn 2Kon 9.13
19.37 Gleði og fögnuður 1Kon 1.40 – lofa Guð Lúk 2.20+
19.38 Sbr Slm 118.26 – konungurinn Jóh 12.13 – friður Lúk 1.79+ – í hæstum hæðum Lúk 2.14
19.40 Steinarnir hrópa Hab 2.11
19.41 Jesús grét Jóh 11.35
19.42 Ef þú hefðir vitað … 5Mós 32.29 – hulið Jes 6.9-10; Matt 13.14; Mrk 4.12; Lúk 8.10; Post 28.26-27; Róm 11.8-10
19.43 Fall Jerúsalem Lúk 21.20-24; 23.28-31
19.44 Ekki steinn yfir steini Lúk 21.6 og hlst. – vitjunartími Lúk 1.68+
19.45-48 Hlst. Matt 21.12-17; Mrk 11.15-19; Jóh 2.13-22
19.46 Bænahús Jes 56.7; sbr 1Kon 8.30-40 – ræningjabæli Jer 7.11
19.47 Daglega í helgidóminum Lúk 20.1; 21.37; 22.53; Jóh 18.20 – ráða af dögum Lúk 20.19 og hlst.; 22.2 og hlst.; Jóh 5.18; 7.30; sbr Matt 12.14+ ; Lúk 6.11 og hlst.
19.48 Fólkið hlýddi á hann Lúk 21.38; 23.27,35 – óttuðust fólkið Matt 14.5+ ; Lúk 20.19