1Þessir eru konungar landsins, þeir er Ísraelsmenn unnu sigur á og tóku lönd af hinumegin Jórdanar, austanmegin, frá Arnoná til Hermonfjalls og allt sléttlendið austanmegin:2Síhon, Amorítakonungur, sem bjó í Hesbon og réð landi frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og dalnum miðjum og hálfu Gíleað að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta,3og sléttlendinu að Genesaretvatni að austanverðu og að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, að austanverðu, suður undir Bet Jesímót, og til suðurs að Pisgahlíðum.4Sömuleiðis land Ógs, konungs í Basan, sem var einn þeirra Refaíta, er eftir voru, og bjó í Astarót og Edreí5og réð yfir Hermonfjöllum, Salka og öllu Basan, að landamærum Gesúra og Maakatíta, og yfir hálfu Gíleað, að landamærum Síhons, konungs í Hesbon.6Móse, þjónn Drottins, og Ísraelsmenn höfðu unnið sigur á þeim, og Móse, þjónn Drottins, hafði gefið Rúbenítum, Gaðítum og hálfri ættkvísl Manasse landið til eignar.7Þessir eru konungar landsins, þeir er Jósúa og Ísraelsmenn unnu sigur á fyrir vestan Jórdan, frá Baal Gað í Líbanonsdal til Skallabergs, sem liggur upp til Seír, en landið gaf Jósúa ættkvíslum Ísraels til eignar eftir skiptingu þeirra ,8í fjalllendinu, á láglendinu, á sléttlendinu, í fjallahlíðunum, í eyðimörkinni og í suðurlandinu, land Hetíta, Amoríta, Kanaaníta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta:9Konungurinn í Jeríkó einn, konungurinn í Aí, sem er hjá Betel, einn,10konungurinn í Jerúsalem einn,konungurinn í Hebron einn,11konungurinn í Jarmút einn, konungurinn í Lakís einn,12konungurinn í Eglon einn, konungurinn í Geser einn,13konungurinn í Debír einn, konungurinn í Geder einn,14konungurinn í Horma einn, konungurinn í Arad einn,15konungurinn í Líbna einn, konungurinn í Adúllam einn,16konungurinn í Makeda einn, konungurinn í Betel einn,17konungurinn í Tappúa einn, konungurinn í Hefer einn,18konungurinn í Afek einn, konungurinn í Saron einn,19konungurinn í Madón einn, konungurinn í Hasór einn,20konungurinn í Simrón Meróm einn, konungurinn í Aksaf einn,21konungurinn í Taanak einn, konungurinn í Megíddó einn,22konungurinn í Kedes einn, konungurinn í Jokneam hjá Karmel einn,23konungurinn í Dór í Dórshæðum einn,konungur heiðingjanna í Gilgal einn,24konungurinn í Tirsa einn, alls þrjátíu og einn konungur.

12.1 Land handan við Jórdan 5Mós 3.8
12.2 Síhon 5Mós 1.4+
12.4 Óg 5Mós 1.4+ – Refaítar 5Mós 2.11+
12.6 Rúben, Gað, Manasse Jós 13.8; 4Mós 32; 34.13-15; 5Mós 3.12-17
12.7 Unnið land Jós 11.16-17