1Skylt er oss, hinum styrku, að bera veikleika hinna óstyrku og hugsa ekki um sjálfa oss.2Sérhver af oss hugsi um náungann og það sem honum er gott og til uppbyggingar.3Kristur hugsaði ekki um sjálfan sig, heldur eins og ritað er: Lastyrði þeirra, sem löstuðu þig, lentu á mér.4Allt það, sem áður er ritað, er ritað oss til uppfræðingar, til þess að vér fyrir þolgæði og huggun ritninganna héldum von vorri.5En Guð, sem veitir þolgæðið og huggunina, gefi yður að vera samhuga að vilja Krists Jesú,6til þess að þér allir saman einum munni vegsamið Guð og föður Drottins vors Jesú Krists.7Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til dýrðar.8Ég segi, að Kristur sé orðinn þjónn hinna umskornu til að sýna orðheldni Guðs, til þess að staðfesta fyrirheitin, sem feðrunum voru gefin,9en heiðingjarnir vegsami Guð sakir miskunnar hans, eins og ritað er: Þess vegna skal ég játa þig meðal heiðingja og lofsyngja þínu nafni.10Og enn segir: Fagnið, þér heiðingjar, með lýð hans,11og enn: Lofið Drottin, allar þjóðir, og vegsami hann allir lýðir,12og enn segir Jesaja: Koma mun rótarkvistur Ísaí og sá, er rís upp til að stjórna þjóðum, á hann munu þjóðir vona.13Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti heilags anda.14En ég er líka sjálfur sannfærður um yður, bræður mínir, að þér og sjálfir eruð fullir góðgirni, auðgaðir alls konar þekkingu og færir um að áminna hver annan.15En ég hef sums staðar ritað yður full djarflega, til þess að minna yður á sitthvað. Ég hef gjört það vegna þess að Guð hefur gefið mér þá náð16að vera helgiþjónn Krists Jesú hjá heiðingjunum og inna af hendi prestþjónustu við fagnaðarerindi Guðs, til þess að heiðingjarnir mættu verða Guði velþóknanleg fórn, helguð af heilögum anda.17Ég hef þá fyrir samfélag mitt við Krist Jesú það, sem ég get hrósað mér af: Starf mitt í þjónustu Guðs.18Ekki mun ég dirfast að tala um neitt annað en það, sem Kristur hefur látið mig framkvæma, til að leiða heiðingjana til hlýðni, með orði og verki,19með krafti tákna og undra, með krafti heilags anda. Þannig hef ég lokið við að flytja fagnaðarerindið um Krist frá Jerúsalem og allt í kring til Illyríu.20Það hefur þannig verið metnaður minn að láta fagnaðarerindið óboðað þar sem Kristur hafði áður nefndur verið, til þess að ég byggði ekki ofan á grundvelli annars,21alveg eins og ritað er: Þeir skulu sjá, sem ekkert var um hann sagt, og þeir, sem ekki hafa heyrt, skulu skilja.22Því er það, að mér hefur hvað eftir annað verið meinað að koma til yðar.23En nú á ég ekki lengur neitt ógjört á þessum slóðum, og mig hefur auk þess í mörg ár langað til að koma til yðar,24þegar ég færi til Spánar. Ég vona, að ég fái að sjá yður, er ég fer um hjá yður, og að þér búið ferð mína þangað, er ég fyrst hef nokkurn veginn fengið nægju mína hjá yður.25En nú fer ég á leið til Jerúsalem til að flytja hinum heilögu hjálp.26Því að Makedónía og Akkea hafa ákveðið að gangast fyrir samskotum handa fátæklingum meðal hinna heilögu í Jerúsalem.27Sjálfir ákváðu þeir það, enda eru þeir í skuld við þá. Fyrst heiðingjarnir hafa fengið hlutdeild í andlegum gæðum þeirra, þá er þeim og skylt að fulltingja þeim í líkamlegum efnum.28En þegar ég hef lokið þessu og tryggilega afhent þeim þennan ávöxt, mun ég fara um hjá yður til Spánar.29En ég veit, að þegar ég kem til yðar, mun ég koma með blessun Krists í fullum mæli.30En mikillega bið ég yður, bræður, fyrir sakir Drottins vors Jesú Krists og fyrir sakir kærleika andans, að þér stríðið með mér með því að biðja til Guðs fyrir mér,31til þess að ég frelsist frá hinum vantrúuðu í Júdeu, og hjálpin, sem ég fer með til Jerúsalem, verði vel þegin af hinum heilögu.32Þá get ég, ef Guð lofar, komið til yðar með fögnuði og endurhresstst ásamt yður.33Guð friðarins sé með yður öllum. Amen.

15.3 Sbr Slm 69.10
15.4 Okkur til fræðslu 1Kor 10.6,11; 2Tím 3.16 – uppörvun 1Makk 12.9; 2Makk 15.9
15.5 Guð veitir hugrekki Jes 40.1 – samhuga Fil 2.2
15.9 Sbr 2Sam 22.50; Slm 18.50
15.10 Sbr 5Mós 32.43
15.11 Sbr Slm 117.1
15.12 Sbr Jes 11.10
15.16 Líf kristins manns er fórn Róm 12.1; Fil 2.17 – postuladómur og þjónusta Róm 1.9
15.18 Hlýðni Róm 1.5+
15.21 Sbr Jes 52.15
15.25 Fyrirætlanir Páls 1Kor 16.6; Post 19.21
15.26 Samskot 1Kor 16.1-4; 2Kor 8-9; Gal 2.10
15.27 Hlutdeild í gæðum 1Kor 9.11; Gal 6.6
15.30 Stríðið með mér Kól 2.1; 4.12
15.31 Páll í hættu Post 20.3; 21.10-11,17-36