1Þá sagði Drottinn við Móse: Ég vil enn láta eina plágu koma yfir Faraó og Egyptaland. Eftir það mun hann leyfa yður að fara héðan. Þegar hann gefur yður fullt fararleyfi, þá mun hann jafnvel reka yður burt héðan.2Seg nú í áheyrn fólksins, að hver maður skuli biðja granna sinn og hver kona grannkonu sína um silfurgripi og gullgripi.3Drottinn lét fólkið öðlast hylli Egypta, enda var Móse mjög mikils virtur maður í Egyptalandi, bæði af þjónum Faraós og lýðnum.4Þá sagði Móse: Svo segir Drottinn: Um miðnætti vil ég ganga mitt í gegnum Egyptaland,5og þá skulu allir frumburðir í Egyptalandi deyja, frá frumgetnum syni Faraós, sem situr í hásæti sínu, til frumgetnings ambáttarinnar, sem stendur við kvörnina, og allir frumburðir fénaðarins.6Þá skal verða svo mikið harmakvein um allt Egyptaland, að jafnmikið hefir ekki verið og mun aldrei verða.7En eigi skal svo mikið sem rakki gelta að nokkrum Ísraelsmanna, hvorki að mönnum né skepnum, svo að þér vitið, að Drottinn gjörir greinarmun á Ísraelsmönnum og Egyptum.8Þá skulu allir þessir þjónar þínir koma til mín, falla til jarðar fyrir mér og segja: Far þú á burt og allt það fólk, sem þér fylgir, og eftir það mun ég á burt fara. Síðan gekk hann út frá Faraó og var hinn reiðasti.9En Drottinn sagði við Móse: Faraó mun ekki láta að orðum yðar, svo að stórmerki mín verði mörg í Egyptalandi.10En þeir Móse og Aron gjörðu öll þessi stórmerki fyrir Faraó. En Drottinn herti hjarta Faraós, og ekki leyfði hann Ísraelsmönnum að fara burt úr landi sínu.

11.1 Reka burt 2Mós 6.1
11.2 Silfur- og gullpeningar 2Mós 3.22+
11.5 Allir frumburðir … 2Mós 12.29+
11.7 Greinarmunur 2Mós 8.22+
11.8 Far bur 2Mós 8.21+
11.9 Harðúð 2Mós 7.3+