1Snerum vér nú á leið og héldum veginn, sem liggur til Basan. En Óg, konungur í Basan, fór í móti oss með öllu liði sínu til þess að heyja bardaga hjá Edreí.2Þá sagði Drottinn við mig: Eigi skalt þú óttast hann, því að ég gef hann og lið hans allt og land hans í þínar hendur, og skalt þú svo fara með hann eins og þú fórst með Síhon, Amorítakonung, er bjó í Hesbon.3Drottinn Guð vor gaf oss þannig og í hendur Óg, konung í Basan, og lið hans allt, og vér felldum hann, svo að enginn var eftir skilinn, er undan kæmist.4Þá unnum vér allar borgir hans. Var engin sú borg, að vér eigi næðum henni frá þeim: sextíu borgir, allt Argóbhérað, konungsríki Ógs í Basan.5Allt voru þetta borgir víggirtar háum múrveggjum, hliðum og slagbröndum, auk mikils fjölda af óumgirtum þorpum.6Og vér gjöreyddum þær, eins og vér höfðum áður gjört við Síhon, konung í Hesbon, með því að gjöreyða hverja borg að karlmönnum, konum og börnum.7En fénaðinn allan og ránsfenginn úr borgunum tókum vér að herfangi.8Þannig tókum vér í það skipti úr höndum beggja Amorítakonunga land allt hinumegin Jórdanar frá Arnoná til Hermonfjalls9Hermon kalla Sídoningar Sirjon, en Amorítar kalla það Senír ,10allar borgir á sléttlendinu, Gíleað allt og Basan, alla leið til Salka og Edreí, þær borgir í Basan, er heyrðu konungsríki Ógs.11Því að Óg, konungur í Basan, var sá eini, sem eftir var af Refaítum. Sjá, líkkista hans var gjör úr járni og er enn til í Rabba hjá Ammónítum. Hún er níu álna löng og fjögra álna breið eftir venjulegu alinmáli.12Þetta land tókum vér þá til eignar. Frá Aróer, sem liggur við Arnoná, og hálft Gíleaðfjalllendi og borgirnar í því gaf ég Rúbenítum og Gaðítum,13en það, sem eftir var af Gíleað, og allt Basan, konungsríki Ógs, gaf ég hálfri ættkvísl Manasse, allt Argóbhérað. Basan allt er kallað Refaítaland.14Jaír, son Manasse, nam allt Argóbhérað allt að landamærum Gesúríta og Maakatíta og kallaði það, sem sé Basan, eftir nafni sínu Jaírsþorp, og helst það nafn enn í dag.15Makír gaf ég Gíleað,16og Rúbenítum og Gaðítum gaf ég land frá Gíleað suður að Arnoná, í dalinn miðjan, voru það suðurtakmörkin, og alla leið að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta.17Enn fremur sléttlendið með Jórdan á mörkum, frá Genesaretvatni suður að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, undir Pisgahlíðum, austanmegin.18Þá bauð ég yður og sagði: Drottinn Guð yðar hefir gefið yður þetta land til eignar. Farið vígbúnir fyrir bræðrum yðar, Ísraelsmönnum, allir þér sem vopnfærir eruð.19En konur yðar og börn og búsmali yðar ég veit að þér eigið mikinn fénað skal verða eftir í borgunum, sem ég hefi gefið yður,20þar til er Drottinn Guð yðar veitir bræðrum yðar hvíld, eins og yður, og þeir hafa líka tekið til eignar land það, er Drottinn Guð yðar gefur þeim hinumegin Jórdanar. Þá megið þér snúa aftur, hver til óðals síns, er ég hefi gefið yður.21Jósúa bauð ég þá og sagði: Þú hefir séð allt það með eigin augum, sem Drottinn Guð yðar hefir gjört þessum tveimur konungum. Eins mun Drottinn fara með öll þau konungaríki, sem þú ert á leið til.22Eigi skuluð þér óttast þau, því að Drottinn Guð yðar berst fyrir yður.23Þá bað ég Drottin líknar og sagði:24Ó Drottinn Guð! Þú hefir nú þegar sýnt þjóni þínum, hve mikill þú ert og hve sterk hönd þín er, því að hver er sá guð á himni eða jörðu, sem gjöri önnur eins verk og þú og jafnmikil máttarverk?25Æ, leyf mér að fara yfir um og sjá landið góða, sem er hinumegin Jórdanar, þetta fagra fjalllendi og Líbanon.26En Drottinn reiddist mér yðar vegna og bænheyrði mig ekki, og Drottinn sagði við mig: Nóg um það. Tala eigi meira um þetta mál við mig.27Far þú upp á Pisgatind og horf þú í vestur, norður, suður og austur og lít það með augum þínum, því að þú munt ekki komast yfir hana Jórdan.28En skipa þú Jósúa foringja og tel hug í hann og gjör hann öruggan, því að hann skal fara yfir um fyrir þessu fólki og hann skal skipta milli þeirra landinu, sem þú sér.29Dvöldum vér nú um hríð í dalnum á móts við Bet Peór.

3.1 Breytt um stefnu 5Mós 1.7+ – Óg 5Mós 1.4+
3.2 Ekki óttast óvininn 5Mós 1.21; 3.22; 7.18, 31.8; 4Mós 21.4; Jós 8.1; 10.8; 11.6
3.7 Rándfengur 5Mós 2.35+
3.8 Gíleað skipt 4Mós 32; Slm 135.10-12; 136.17-22
3.11 Refaítar 5Mós 2.11+
3.12 Rúben Jós 13.15-23 – Gað Jós 13.24-28
3.13 Manasse Jós 13.29-31
3.14 Héröð Jaírs 4Mós 32.41, Jós 13.30; Dóm 10.4; 1Kon 4.13
3.17 Jórdan Jós 13.23,27 – Pisga 5Mós 3.27; 34.1; 4Mós 21.20
3.18 Guð gaf landið Jós 1.2,11; sbr 5Mós 1.8+ – Rúben, Gað, Manasse berjast 4Mós 32.17-32
3.20 Hvíld 5Mós 12.9; 1Kon 8.56; Slm 95.11; Heb 3.11-4.11 – landið, sem Drottinn gefur 5Mós 4.1; 11.31 – arfur 5Mós 4.21; 15.4; 19.10; 20.16; 21.23; 24.4; 25.19; 26.1
3.21 Jósúa 5Mós 1.38+
3.22 Ekki óttast 5Mós 3.2+ – Guð berst fyrir Ísrael 5Mós 1.30; 20.4; 2Mós 14.25; Jós 10.14,42; 23.3,10; Sak 14.3; sbr Dóm 7.1-22; 1Sam 7.10; 2Kro 20.20-25
3.24 Máttur Drottins 5Mós 5.24; 11.2-3; sbr 2Mós 15.6-7 – sterk hönd 5Mós 6.21; 7.8; 9.26; sbr 4.34+ – hver er sem Guð? 2Mós 15.11; Slm 86.8
3.25 Gott land 5Mós 1.25+
3.26 Drottinn reiðist Móse 5Mós 1.37+
3.27 Pisga 5Mós 3.17+ – land fyrirheitsins 4Mós 27.12+
3.28 Jósúa 5Mós 1.38+ – hugur og öryggi 5Mós 31.6,23; Jós 1.6,18; 10.25; 1Kro 22.13; 28.20; 2Kro 32.7
3.29 Bet Peór 4Mós 25.1-18+