1Halelúja. Þjónar Drottins, lofið, lofið nafn Drottins.2Nafn Drottins sé blessað héðan í frá og að eilífu.3Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað.4Drottinn er hafinn yfir allar þjóðir og dýrð hans yfir himnana.5Hver er sem Drottinn, Guð vor? Hann situr hátt6og horfir djúpt á himni og á jörðu.7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu, lyftir snauðum upp úr saurnum8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum, hjá tignarmönnum þjóðar hans.9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa í næði sem glaða barnamóður. Halelúja.

113.1 Hallelúja Slm 106.1+ – þjónar Drottins Slm 134.1; 135.1; VDan 3.63 – lofa nafn Drottins Slm 135.1
113.2 Blessað að eilífu Slm 41.14; Job 1.21; Dan 2.20
113.3 Sólarupprás, sólarlag Slm 50.1; Mal 1.11; sbr Jes 59.19
113.4 Drottinn er hafinn yfir … Slm 57.6; 97.9; 99.2
113.5 Hver er sem Drottinn? Slm 35.10+
113.6 Lítur til jarðar Slm 11.4+ ; 138.6; Jes 63.15; sbr Ef 4.10
113.7 Reisir lítilmagnann 1Sam 2.8; Lúk 1.52; Jak 2.5
113.9 Óbyrja … móðir 1Mós 18.10-11; 25.21; 30.22; 1Sam 1.2,19-20; Jes 54.1; Lúk 1.7,13 – hallelúja Slm 104.35+