1Davíðs-lofsöngur. Ég vil vegsama þig, ó Guð minn, þú konungur, og prísa nafn þitt um aldur og ævi.2Á hverjum degi vil ég prísa þig og lofa nafn þitt um aldur og ævi.3Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, mikilleikur hans er órannsakanlegur.4Ein kynslóðin vegsamar verk þín fyrir annarri og kunngjörir máttarverk þín.5Þær segja frá tign og dýrð vegsemdar þinnar: Ég vil syngja um dásemdir þínar.6Og um mátt ógnarverka þinna tala þær: Ég vil segja frá stórvirkjum þínum.7Þær minna á þína miklu gæsku og fagna yfir réttlæti þínu.8Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.9Drottinn er öllum góður, og miskunn hans er yfir öllu, sem hann skapar.10Öll sköpun þín lofar þig, Drottinn, og dýrkendur þínir prísa þig.11Þeir tala um dýrð konungdóms þíns, segja frá veldi þínu.12Þeir kunngjöra mönnum veldi þitt, hina dýrlegu tign konungdóms þíns.13Konungdómur þinn er konungdómur um allar aldir og ríki þitt stendur frá kyni til kyns. Drottinn er trúfastur í öllum orðum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum.14Drottinn styður alla þá, er ætla að hníga, og reisir upp alla niðurbeygða.15Allra augu vona á þig, og þú gefur þeim fæðu þeirra á réttum tíma.16Þú lýkur upp hendi þinni og seður allt sem lifir með blessun.17Drottinn er réttlátur á öllum sínum vegum og miskunnsamur í öllum sínum verkum.18Drottinn er nálægur öllum sem ákalla hann, öllum sem ákalla hann í einlægni.19Hann uppfyllir ósk þeirra er óttast hann, og hróp þeirra heyrir hann og hjálpar þeim.20Drottinn varðveitir alla þá er elska hann, en útrýmir öllum níðingum.21Munnur minn skal mæla orðstír Drottins, allt hold vegsami hans heilaga nafn um aldur og ævi.

145.1 Guð minn, konungur Slm 5.3; 44.5; 84.4; sbr 93.1+ – tigna þig Slm 30.2 – lofa nafn þitt Slm 34.2; sbr 68.20
145.3 Mikill er Drottinn Slm 48.2; 95.5; 147.5 – mjög vegsamlegur Slm 18.4; 96.4
145.4 Kynslóð eftir kynslóð Slm 78.4
145.8 Náðugur og miskunnsamur 2Mós 34.6+
145.10 Verk þín Slm 103.22
145.14 Styður alla þá Slm 94.18 – reisir Slm 146.8
145.15-16 Vona … þú gefur Slm 104.27-28
145.17 Miskunnsamur í öllu 5Mós 32.4
145.18 Nálægur öllum sem ákalla hann 5Mós 4.7; Jes 58.9; Jer 29.13
145.19 Óttast Drottinn Slm 15.4+ – hann heyrir og hjálpar Slm 34.18