1Huggið, huggið lýð minn! segir Guð yðar.2Hughreystið Jerúsalem og boðið henni, að áþján hennar sé á enda, að sekt hennar sé goldin, að hún hafi fengið tvöfalt af hendi Drottins fyrir allar syndir sínar!3Heyr, kallað er: Greiðið götu Drottins í eyðimörkinni, ryðjið Guði vorum veg í óbyggðinni!4Sérhver dalur skal hækka, hvert fjall og háls lækka. Hólarnir skulu verða að jafnsléttu og hamrarnir að dalagrundum!5Dýrð Drottins mun birtast, og allt hold mun sjá það, því að munnur Drottins hefir talað það!6Heyr, einhver segir: Kalla þú! Og ég svara: Hvað skal ég kalla? Allt hold er gras og allur yndisleikur þess sem blóm vallarins.7Grasið visnar, blómin fölna, þegar Drottinn andar á þau. Sannlega, mennirnir eru gras.8Grasið visnar, blómin fölna, en orð Guðs vors stendur stöðugt eilíflega.9Stíg upp á hátt fjall, þú Síon fagnaðarboði! Hef upp raust þína kröftuglega, þú Jerúsalem fagnaðarboði! Hef upp raustina, óttast eigi, seg borgunum í Júda: Sjá, Guð yðar kemur!10Sjá, hinn alvaldi Drottinn kemur sem hetja, og armleggur hans aflar honum yfirráða. Sjá, endurgjald hans fylgir honum, og fengur hans fer á undan honum.11Eins og hirðir mun hann halda hjörð sinni til haga, taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu, en leiða mæðurnar.12Hver hefir mælt vötnin í lófa sínum og stikað himininn með spönn sinni, innilukt duft jarðarinnar í mælikeri og vegið fjöllin á reislu og hálsana á metaskálum?13Hver hefir leiðbeint anda Drottins, hver hefir verið ráðgjafi hans og frætt hann?14Hvern hefir hann sótt að ráðum, þann er gæfi honum skilning og kenndi honum leið réttvísinnar, uppfræddi hann í þekkingu og vísaði honum veg viskunnar?15Sjá, þjóðirnar eru sem dropi í vatnskjólu og metnar sem ryk á vogarskálum. Sjá, eylöndunum lyftir hann upp eins og duftkorni.16Og Líbanon-skógur hrekkur ekki til eldsneytis og dýrin í honum ekki til brennifórnar.17Allar þjóðir eru sem ekkert fyrir honum, þær eru minna en ekki neitt og hégómi í hans augum.18Við hvern viljið þér þá samlíkja Guði, og hvað viljið þér taka til jafns við hann?19Líkneskið steypir smiðurinn, og gullsmiðurinn býr það slegnu gulli og setur á silfurfestar,20en sá, sem eigi á fyrir slíkri fórnargjöf, velur sér þann við, er ekki fúni, og leitar að góðum smið, er reist geti svo líkneski, að ekki haggist!21Vitið þér ekkert? Heyrið þér ekki? Hefir yður eigi verið kunngjört það frá upphafi? Hafið þér engan skilning hlotið frá grundvöllun jarðar?22Það er hann, sem situr hátt yfir jarðarkringlunni, og þeir, sem á henni búa, eru sem engisprettur. Það er hann, sem þenur út himininn eins og þunna voð og slær honum sundur eins og tjaldi til þess að búa í.23Það er hann, sem lætur höfðingjana verða að engu og gjörir drottna jarðarinnar að hégóma.24Varla eru þeir gróðursettir, varla niðursánir, varla hefir stofn þeirra náð að festa rætur í jörðinni fyrr en hann andar á þá, og þá skrælna þeir upp og stormbylurinn feykir þeim burt eins og hálmleggjum.25Við hvern viljið þér samlíkja mér, að ég sé honum jafn? segir Hinn heilagi.26Hefjið upp augu yðar til hæða og litist um: Hver hefir skapað stjörnurnar? Hann, sem leiðir út her þeirra með tölu og kallar þær allar með nafni. Sökum mikilleiks kraftar hans og af því að hann er voldugur að afli verður einskis þeirra vant.27Hví segir þú þá svo, Jakobsætt, og hví mælir þú þá svo, Ísrael: Hagur minn er hulinn fyrir Drottni, og réttur minn er genginn úr höndum Guði mínum?28Veistu þá ekki? Hefir þú ekki heyrt? Drottinn er eilífur Guð, er skapað hefir endimörk jarðarinnar. Hann þreytist ekki, hann lýist ekki, speki hans er órannsakanleg.29Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa.30Ungir menn þreytast og lýjast, og æskumenn hníga,31en þeir, sem vona á Drottin, fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.

40.1 Huggið Jes 49.13; 51.3,12; 52.9; 61.2
40.2 Tvöfalt 2Mós 22.4,7,9; Jer 16.18
40.3 Kallað er Matt 3.3 og hlst. Jóh 1.23 – Drottni veg Jes 49.11; Mal 3.1,23-24; Lúk 1.76
40.5 Dýrð Drottins Jes 58.8; 60.1-2 – birtist Jes 35.2 – allt hold Jes 49.26; 66.16,23; Jer 32.27
40.7 Gras Jes 40.23-24; 51.12; Jak 1.10-11; 1Pét 1.24 – mennirnir Jes 42.6; 49.8
40.8 Orð Guðs vors … Slm 119.89; 1Pét 1.25
40.9 Fagnaðarboði Jes 41.27; 52.7; 60.6; 61.1
40.10 Drottinn kemur í mætti Jes 62.11; Opb 22.12 – armur Jes 51.5,9; 52.10; 53.1; 59.16; 62.8; 63.5,12; sjá Slm 77.16; 89.14
40.11 Eins og hirðir Esk 34.11-31; Lúk 15.4-7; Jóh 10
40.13 Hver gat … ? Job 38.4-39.30; Okv 30.4; Sír 1.2-3; Róm 11.34; 1Kor 2.16 – Kýrus, útvalinn Jes 41.2-4; 41.25-42.9; 44.28; 45.1-6,13; 46.10-11; 48.14-15; Esr 1.1-5; 6.3-5; 2Kro 36.22-23
40.14 Ráðgjafi Drottins Job 21.22
40.15 Eyjarnar Jes 41.1,5; 42.4,10,12; 49.1; 51.5; 60.9; 66.19
40.16 Líbanon Jes 2.13+
40.18 Líkja Jes 40.25; 44.7; 46.5; Jer 10.6; 49.19; Post 17.29
40.19 Skurðgoð Jes 41.6-7; 44.9-20; 46.6-7; Jer 2.27-28; 10.3-5,14-15; 51.17-18; Slm 115.4-8; 135.15-18; SSal 13.10-19; BJer 3-72
40.21 Frá öndverðu Jes 41.26; 46.10; 48.16; sbr 45.21 – grundvöllun jarðar Jes 44.24+
40.23-24 Drottinn og þjóðhöfðingjarnir Jes 17.13; Job 34.18-20
40.25 Hinn heilagi Jes 6.3+ ; Hab 3.3; Job 6.10
40.26 Skapari stjarnanna Slm 147.4; Bar 3.35; sbr 1Mós 1.14-19
40.27 Ísrael guggnar Jes 49.4
40.28 Drottinn er eilífur 1Mós 21.33 – og órannsakanlegur Róm 11.33
40.31 Vona á Drottin Jes 30.18+ ; sbr Slm 9.11+