1Einu sinni var maður í Ús-landi. Hann hét Job. Hann var maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar.2Hann átti sjö sonu og þrjár dætur,3og aflafé hans var sjö þúsund sauða, þrjú þúsund úlfalda, fimm hundruð sameyki nauta, fimm hundruð ösnur og mjög mörg hjú, og var maður sá meiri öllum austurbyggjum.4Synir hans voru vanir að fara og búa veislu heima hjá sér, hver sinn dag, og þeir buðu systrum sínum þremur að eta og drekka með sér.5En er veisludagar voru liðnir, sendi Job eftir þeim og helgaði þau. Reis hann árla morguns og fórnaði brennifórn fyrir hvert þeirra. Því að Job hugsaði: Vera má að börn mín hafi syndgað og formælt Guði í hjarta sínu. Svo gjörði Job alla daga.6Nú bar svo til einn dag, að synir Guðs komu til þess að ganga fyrir Drottin, og kom Satan og meðal þeirra.7Mælti þá Drottinn til Satans: Hvaðan kemur þú? Satan svaraði Drottni og sagði: Ég hefi verið að reika um jörðina og arka fram og aftur um hana.8Og Drottinn mælti til Satans: Veittir þú athygli þjóni mínum Job? því að enginn er hans líki á jörðu, maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar.9Og Satan svaraði Drottni og sagði: Ætli Job óttist Guð fyrir ekki neitt? Hefir þú ekki lagt skjólgarð um hann og hús hans og allt, sem hann á, hringinn í kring?10Handaverk hans hefir þú blessað, og fénaður hans breiðir sig um landið.11En rétt þú út hönd þína og snert þú allt, sem hann á, og mun hann þá formæla þér upp í opið geðið.12Þá mælti Drottinn til Satans: Sjá, veri allt, sem hann á, á þínu valdi, en á sjálfan hann mátt þú ekki leggja hönd þína. Gekk Satan þá burt frá augliti Drottins.13Nú bar svo til einn dag, er synir hans og dætur átu og drukku vín í húsi elsta bróður síns,14að sendimaður kom til Jobs og sagði: Nautin voru að plægja og ösnurnar voru á beit rétt hjá þeim.15Gjörðu þá Sabear athlaup og tóku þau, en sveinana drápu þeir. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin.16En áður en hann hafði lokið máli sínu, kom annar og sagði: Eldur Guðs féll af himni og kveikti í hjörðinni og sveinunum og eyddi þeim. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin.17En áður en sá hafði lokið máli sínu, kom annar og sagði: Kaldear fylktu þremur flokkum, gjörðu áhlaup á úlfaldana og tóku þá, en sveinana drápu þeir. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin.18Áður en sá hafði lokið máli sínu, kom annar og sagði: Synir þínir og dætur átu og drukku vín í húsi elsta bróður síns.19Kom þá skyndilega fellibylur austan yfir eyðimörkina og lenti á fjórum hornum hússins, svo að það féll ofan yfir sveinana, og þeir dóu. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin.20Þá stóð Job upp og reif skikkju sína og skar af sér hárið, og féll til jarðar, tilbað21og sagði: Nakinn kom ég af móðurskauti og nakinn mun ég aftur þangað fara. Drottinn gaf og Drottinn tók, lofað veri nafn Drottins.22Í öllu þessu syndgaði Job ekki, og ekki átaldi hann Guð heimskulega.

1.1 Job Esk 14.14; Jak 5.11 – ráðvandur og réttlátur Job 1.8; 2.3,9; 12.4; 1Mós 6.9; Slm 26.1
1.3 Eignir 1Mós 24.35; 26.14
1.6 Ganga fyrir Drottin Job 2.1-3; 1Kon 22.19-22; Slm 82.1; Dan 7.9-10; Opb 5.11 – Satan Sak 3.1-2; Opb 12.10
1.9 Varið hann Job 3.23
1.11 Formæla þér Job 2.5-6
1.15 Árás Dóm 6.3-6; 1Sam 27.8-9
1.16 Eldur Guðs 3Mós 10.2; 2Kon 1.10-14; Lúk 9.54
1.19 Mikill stormur Matt 7.27
1.20 Merki um sorg Job 2.12; 3Mós 10.6+ ; Jós 7.6; Esk 27.30-31
1.21 Nakinn aftur hverfa 1Mós 3.19; Slm 49.18; Préd 5.14; Sír 40.1; 1Tím 6.7 – lofað veri nafn Drottins Slm 113.2; sbr Jak 5.11