1Þá er upp var runninn hvítasunnudagur, voru þeir allir saman komnir.2Varð þá skyndilega gnýr af himni eins og aðdynjanda sterkviðris og fyllti allt húsið, þar sem þeir voru.3Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvern og einn þeirra.4Þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla.5Í Jerúsalem dvöldust Gyðingar, guðræknir menn, frá öllum löndum undir himninum.6Er þetta hljóð heyrðist, dreif að fjölda manns. Þeim brá mjög við, því að hver og einn heyrði þá mæla á sína tungu.7Þeir voru frá sér af undrun og sögðu: Eru þetta ekki allt Galíleumenn, sem hér eru að tala?8Hvernig má það vera, að vér, hver og einn, heyrum þá tala vort eigið móðurmál?9Vér erum Partar, Medar og Elamítar, vér erum frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu,10frá Frýgíu og Pamfýlíu, Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýrene, og vér, sem hingað erum fluttir frá Róm.11Hér eru bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar og Arabar. Vér heyrum þá tala á vorum tungum um stórmerki Guðs.12Þeir voru allir furðu lostnir og ráðalausir og sögðu hver við annan: Hvað getur þetta verið?13En aðrir höfðu að spotti og sögðu: Þeir eru drukknir af sætu víni.14Þá steig Pétur fram og þeir ellefu, og hann hóf upp rödd sína og mælti til þeirra: Gyðingar og allir þér Jerúsalembúar! Þetta skuluð þér vita. Ljáið eyru orðum mínum.15Eigi eru þessir menn drukknir, eins og þér ætlið, enda aðeins komin dagmál.16Hér er að rætast það, sem spámaðurinn Jóel segir:17Það mun verða á efstu dögum, segir Guð, að ég mun úthella anda mínum yfir alla menn. Synir yðar og dætur munu spá, ungmenni yðar munu sjá sýnir og gamalmenni yðar mun drauma dreyma.18Jafnvel yfir þræla mína og ambáttir mínar mun ég á þeim dögum úthella anda mínum, og þau munu spá.19Og ég mun láta undur verða á himnum uppi og tákn á jörðu niðri, blóð og eld og reykjarmökk.20Sólin mun snúast í myrkur og tunglið í blóð, áður dagur Drottins kemur, hinn mikli og dýrlegi.21En hver sá, sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast.22Ísraelsmenn, heyrið þessi orð: Jesús frá Nasaret var maður, sem Guð sannaði yður með kraftaverkum, undrum og táknum, er Guð lét hann gjöra meðal yðar, eins og þér sjálfir vitið.23Hann var framseldur að fyrirhuguðu ráði Guðs og fyrirvitund, og þér létuð heiðna menn negla hann á kross og tókuð hann af lífi.24En Guð leysti hann úr nauðum dauðans og reisti hann upp, enda gat það aldrei orðið, að dauðinn fengi haldið honum,25því að Davíð segir um hann: Ávallt hafði ég Drottin fyrir augum mér, því að hann er mér til hægri hliðar, til þess að ég bifist ekki.26Fyrir því gladdist hjarta mitt, og tunga mín fagnaði. Meira að segja mun líkami minn hvílast í von.27Því að ekki munt þú skilja sálu mína eftir í helju og eigi láta þinn heilaga verða rotnun að bráð.28Kunna gjörðir þú mér lífsins vegu. Þú munt mig fögnuði fylla fyrir þínu augliti.29Bræður, óhikað get ég við yður talað um ættföðurinn Davíð. Hann dó og var grafinn, og leiði hans er til hér allt til þessa dags.30En hann var spámaður og vissi, að Guð hafði með eiði heitið honum að setja í hásæti hans einhvern niðja hans.31Því sá hann fyrir upprisu Krists og sagði: Ekki varð hann eftir skilinn í helju, og ekki varð líkami hans rotnun að bráð.32Þennan Jesú reisti Guð upp, og erum vér allir vottar þess.33Nú er hann upp hafinn til Guðs hægri handar og hefur af föðurnum tekið við heilögum anda, sem fyrirheitið var, og úthellt honum, eins og þér sjáið og heyrið.34Ekki steig Davíð upp til himna, en hann segir: Drottinn sagði við minn drottin: Set þig mér til hægri handar,35þangað til ég gjöri óvini þína að fótskör þinni.36Með öruggri vissu viti þá öll Ísraels ætt, að þennan Jesú, sem þér krossfestuð, hefur Guð gjört bæði að Drottni og Kristi.37Er þeir heyrðu þetta, var sem stungið væri í hjörtu þeirra, og þeir sögðu við Pétur og hina postulana: Hvað eigum vér að gjöra, bræður?38„Pétur sagði við þá: Gjörið iðrun og látið skírast hver og einn í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar synda yðar; þá munuð þér öðlast að gjöf heilagan anda.“39Því að yður er ætlað fyrirheitið, börnum yðar og öllum þeim, sem í fjarlægð eru, öllum þeim, sem Drottinn Guð vor kallar til sín.40Og með öðrum fleiri orðum vitnaði hann, áminnti þá og sagði: Látið frelsast frá þessari rangsnúnu kynslóð.41En þeir, sem veittu orði hans viðtöku, voru skírðir, og þann dag bættust við um þrjú þúsund sálir.42Þeir ræktu trúlega uppfræðslu postulanna og samfélagið, brotning brauðsins og bænirnar.43Ótta setti að hverjum manni, en mörg undur og tákn gjörðust fyrir hendur postulanna.44Allir þeir sem trúðu héldu hópinn og höfðu allt sameiginlegt.45Þeir seldu eignir sínar og fjármuni og skiptu meðal allra eftir því sem hver hafði þörf á.46Daglega komu þeir saman með einum huga í helgidóminum, þeir brutu brauð í heimahúsum, neyttu fæðu saman í fögnuði og einlægni hjartans.47Þeir lofuðu Guð og höfðu vinsældir af öllum. En Drottinn bætti daglega við í hópinn þeim, er frelsast létu.

2.1 Hvítasunnudagurinn 3Mós 23.15-21; 5Mós 16.9-11
2.3-4 Eldur, heilagur andi Matt 3.11; Lúk 3.16
2.4 Fylltust heilögum anda Post 4.31; 10.44-45; 19.6 – tala öðrum tungum Mrk 16.17; Post 10.46; 19.6; 1Kor 12-14; sbr 4Mós 11.25-29; 1Sam 10.5-6; 1Kon 22.10; sbr 1Mós 11.1-9
2.7 Galíleumenn Post 1.11
2.11 Tekið trú Gyðinga Post 6.5; sbr 13.43
2.14 Postulleg boun 1) fyrir Gyðingum Post 3.13-26; 4.10-12; 5.30-32; 10.36-43; 13.17-41 2) fyrir heiðingjum Post 14.15-17; 17.22-31
2.17-21 Sbr Jl 3.1-5
2.21 Hver, sem ákallar Róm 10.13
2.22 Frá Nasaret Matt 2.23+ ; Lúk 18.37+ ; Post 10.37 – sannaði með táknum Jóh 3.2; sbr Post 14.3; 2Kor 12.12; Heb 2.4
2.23 Fyrirhugað ráð Guðs Post 3.18,21; 4.28; 5.38-39; 20.27; 21.14; 22.14; sbr Post 1.7 – negla á kross Lúk 23.33,46 og hlst.; Jóh 19.18,30; Post 3.15; 4.10; 10.39
2.24 Guð reisti hann upp Lúk 24.5-6 og hlst.; Post 2.32; 3.15; 4.10; 17.31 – úr dauðans böndum 2Sam 22.6; Slm 18.6; 116.3
2.25-28 Sbr Slm 16.8-11
2.27 Ekki skilja eftir Post 13.35
2.29 Leiði Davíðs 1Kon 2.10; Post 13.36
2.30 Heitið með eiði Slm 132.11; sbr 2Sam 7.12-13
2.31 Eftir skilinn Slm 16.10
2.32 Vottar Post 1.8+
2.33 Hægri hendi Guðs Slm 118.16; Post 5.31 – Jesús tekur við og úthellir heilögum anda Jóh 14.16-17; 15.26; Post 1.4
2.34-35 Sbr Slm 110.1; Matt 22.44+
2.36 Guð gerði hann Post 5.30-31 – að Drottni Post 20.21; Róm 10.9; 1Kor 12.3; Fil 2.11 – og Kristi Post 5.42; 9.22; 17.3; 18.5,28; sbr Post 11.17; 28.31
2.37 Hvað eigum við að gera? Lúk 10.25+
2.38 Takið sinnaskiptum Matt 3.2+ – iðrun og fyrirgefning syndanna Post 3.19 – skírn í nafni Jesú Post 8.16; 10.48; 19.5; sbr 22.16 – skírn og gjöf heilags anda Post 1.5+
2.39 Í fjarlægð Jes 57.19; sbr Post 22.21 – öllum þeim … Jl 3.5; Róm 10.13
2.40 Þessi rangsnúna kynslóð Slm 78.8; Matt 12.39+
2.41 Frumsöfnuðurinn vex Post 2.47; 4.4; 5.14; 6.1-7; 9.31; 11.21-24; 16.5; 21.20
2.42-47 Lífið í frumsöfnuðinum Post 4.32-35; 5.12-14
2.42 Brotning brauðsins Post 2.46; 20.7
2.43 Ótti Post 5.5,11; 19.17; sbr Lúk 1.12+ – undur og tákn Post 2.22; 4.30; 5.12; 6.8; 14.3; 15.12
2.44 Þeir sem trúðu Post 4.32; 18.27; 19.18; 21.20; 1Þess 1.7; 2.10 o.fl. – héldu hópinn Post 2.42,46; 4.24,32; 5.12; 15.25 – allt sameiginlegt Post 4.32; sbr 9.36; 11.29
2.45 Sem hafði þörf á Post 4.34-35
2.46 Daglega í helgidóminum Lúk 24.53; Post 3.1; 5.12,20-21,42 – brjóta brauð Post 2.42+
2.47 Vinsældir af öllum Post 4.33; 5.13 – Drottinn bætti við Post 2.41+