1Þetta eru þá skipanir þær, lög og ákvæði, sem Drottinn Guð yðar hefir boðið, að þér skylduð læra og breyta eftir í því landi, er þér haldið nú yfir til, til þess að fá það til eignar,2svo að þú óttist Drottin Guð þinn og varðveitir öll lög hans og skipanir, sem ég legg fyrir þig, bæði þú sjálfur og sonur þinn og sonarsonur þinn, alla ævidaga þína og svo að þú verðir langlífur.3Heyr því, Ísrael, og gæt þess að breyta eftir þeim, svo að þér vegni vel og yður megi fjölga stórum, eins og Drottinn, Guð feðra þinna, hefir heitið þér, í landi, sem flýtur í mjólk og hunangi.4„Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn!“5Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum.6Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst.7Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau, þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú fer á fætur.8Þú skalt binda þau til merkis á hönd þér og hafa þau sem minningarbönd á milli augna þinna9og þú skalt skrifa þau á dyrastafi húss þíns og á borgarhlið þín.10Þegar Drottinn Guð þinn leiðir þig inn í landið, sem hann sór feðrum þínum, Abraham, Ísak og Jakob, að gefa þér, stórar og fagrar borgir, sem þú hefir ekki reist,11og hús full af öllum góðum hlutum, án þess að þú hafir fyllt þau, og úthöggna brunna, sem þú hefir eigi út höggvið, víngarða og olíutré, sem þú hefir ekki gróðursett, og þú etur og verður saddur,12þá gæt þú þín, að þú gleymir ekki Drottni, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.13Drottin Guð þinn skalt þú óttast, og hann skalt þú dýrka og við nafn hans skalt þú sverja.14Eigi skuluð þér elta neina aðra guði af guðum þjóða þeirra, er umhverfis yður búa,15því að Drottinn Guð þinn, sem býr hjá þér, er vandlátur Guð, til þess að eigi upptendrist reiði Drottins Guðs þíns í gegn þér og hann eyði þér úr landinu.16Eigi skuluð þér freista Drottins Guðs yðar, eins og þér freistuðuð hans í Massa.17Varðveitið kostgæfilega skipanir Drottins Guðs yðar og fyrirmæli hans og lög, þau er hann hefir fyrir þig lagt.18Þú skalt gjöra það, sem rétt er og gott í augum Drottins, svo að þér vegni vel og þú komist inn í og fáir til eignar landið góða, sem Drottinn sór feðrum þínum,19með því að hann stökkvir burt öllum óvinum þínum undan þér, eins og Drottinn hefir heitið.20Þegar sonur þinn spyr þig á síðan og segir: Hvað eiga fyrirmælin, lögin og ákvæðin að þýða, sem Drottinn Guð vor hefir fyrir yður lagt?21þá skalt þú segja við son þinn: Vér vorum þrælar Faraós í Egyptalandi, en Drottinn leiddi oss af Egyptalandi með sterkri hendi.22Og hann gjörði mikil og skæð tákn og undur á hendur Egyptalandi, Faraó og öllu húsi hans að oss ásjáandi.23Og hann leiddi oss út þaðan til þess að fara með oss hingað og gefa oss landið, sem hann sór feðrum vorum.24Og hann bauð oss að halda öll þessi lög með því að óttast Drottin Guð vorn, svo að oss mætti vegna vel alla daga og hann halda oss á lífi, eins og allt til þessa.25Og vér munum taldir verða réttlátir, ef vér gætum þess að breyta eftir öllum þessum skipunum fyrir augliti Drottins Guðs vors, eins og hann hefir boðið oss.

6.1 Landið 5Mós 1.21+
6.2 Virðið Guð 5Mós 4.10+ – set ykkur 5Mós 4.2+ – langlífi 5Mós 4.26+
6.3 Halda þau 5Mós 5.1+ – að þér vegni vel 5Mós 4.40+
6.4 Heyr Ísrael 5Mós 4.1; Mrk 12.29 – Drottinn einn sbr 5Mós 4.35; 1Kor 8.4
6.5 Elska Guð 5Mós 5.10+ – af öllu hjarta 5Mós 4.29+
6.6 Ég boða þér 5Mós 4.2+
6.7 Kenna börnunum 2Mós 10.2+
6.9 Á dyrastafi 5Mós 11.20
6.10 Hið fyrirheitna land 5Mós 1.8+
6.11 Matast og verða mettur 5Mós 8.10,12; 11.15; 31.20; Okv 30.8-9
6.12 Ekki gleyma Drottni 5Mós 4.9+ – út af Egyptalandi 5Mós 5.6+ – þrælahúsið 5Mós 5.6+
6.13 Óttast Drottinn 5Mós 4.10+ – þjóna Guði Matt 4.10
6.14 Aðrir guðir 5Mós 11.28; 13.3,7,14; 29.25; 2Mós 20.3+ ; 3Mós 19.4+
6.15 Afbrýðisamur Guð 2Mós 20.5+ – Drottinn sem hjá þér er 5Mós 4.7+
6.16 Reyna Drottin Matt 4.7+ – Massa 2Mós 17.7+
6.18 Rétt í augum Drottins 5Mós 12.25,28; 13.19; 21.9; 2Mós 15.26; 1Kon 11.33; 14.8; Jer 34.15 – vegni vel 5Mós 4.40+ – gott land 5Mós 1.25+ – fyrirheitna landið 5Mós 1.8+
6.20 Kenna börnunum 2Mós 10.2+
6.21 Þrælar í Egyptalandi 5Mós 5.15+ – með sterkri hendi 5Mós 3.24+
6.22 Tákn og máttarverk 5Mós 4.34+
6.23 Út af Egyptalandi 5Mós 5.6+
6.24 Óttast Drottin 5Mós 4.10+ – halda boðorðin og lifa 5Mós 4.1+
6.25 Gæta þess að fylgja 5Mós 5.1+ – öllum fyrirmælum 5Mós 5.31+