1Davíð kannaði nú liðið, sem með honum var, og setti yfir þá þúsundhöfðingja og hundraðshöfðinga.2Og Davíð skipti liðinu í þrennt. Var þriðjungur undir forustu Jóabs, þriðjungur undir forustu Abísaí Serújusonar, bróður Jóabs, og þriðjungur undir forustu Íttaí frá Gat. Og konungur sagði við liðið: Ég er fastráðinn í að fara með yður í stríðið.3Liðið svaraði: Þú skalt hvergi fara. Því að þótt vér flýjum, munu þeir eigi hirða um oss, og þótt helmingurinn af oss félli, mundu þeir ekki hirða um oss, því að þú ert sem tíu þúsundir af oss. Er og betra, að þú sért viðbúinn að koma oss til liðs úr borginni.4Þá sagði konungur við þá: Svo vil ég gjöra, sem yður líst. Þá nam konungur staðar öðrumegin við borgarhliðið, en allt liðið hélt af stað, hundruðum og þúsundum saman.5En konungur lagði svo fyrir þá Jóab, Abísaí og Íttaí: Farið vægilega með sveininn Absalon. Og allt liðið heyrði konung bjóða hershöfðingjunum svo um Absalon.6Síðan hélt liðið út til bardaga við Ísrael, og hófst orusta í Efraímskógi.7Biðu Ísraelsmenn þar ósigur fyrir Davíðs mönnum. Varð þar mikið mannfall á þeim degi: tuttugu þúsund manns.8Dreifðist bardaginn þar um allt landið, og varð skógurinn fleiri mönnum að líftjóni heldur en sverðið hafði orðið þann dag.9Þá vildi svo til, að Absalon rakst á menn Davíðs. Absalon reið múl einum, og rann múllinn inn undir þétt lim mikillar eikar og festist höfuð hans í eikinni. Hékk hann þar milli himins og jarðar, en múllinn, sem hann reið, rann undan honum.10Þetta sá maður nokkur, sagði Jóab frá því og mælti: Sjá, ég sá Absalon hanga í eik einni.11Þá sagði Jóab við manninn, sem færði honum tíðindin: Nú, fyrst þú sást hann, hví vannst þú þá ekki þegar á honum? Þá skyldi ég hafa gefið þér tíu sikla silfurs og belti.12Þá sagði maðurinn við Jóab: Þó að taldir væru í lófa mér þúsund siklar silfurs, mundi ég samt ekki leggja hönd á konungsson, því að í áheyrn vorri lagði konungur svo fyrir þig, Abísaí og Íttaí: Gætið sveinsins Absalons.13En ef ég hefði breytt sviksamlega við hann og enginn hlutur er konungi hulinn, þá mundir þú hafa staðið fjarri.14Þá sagði Jóab: Ekki má ég þá lengur tefja hjá þér, greip þrjú skotspjót og rak þau í brjóst Absalons. En með því að hann var enn með lífi í limi eikarinnar,15þustu að tíu knapar, skjaldsveinar Jóabs, og lustu Absalon til bana.16Þá lét Jóab þeyta lúðurinn, og liðið hætti að elta Ísrael, því að Jóab stöðvaði herinn.17Síðan tóku þeir Absalon, köstuðu honum í gryfju eina mikla þar í skóginum og urpu yfir hann afar mikla steindys, en allir Ísraelsmenn flýðu, hver heim til sín.18Absalon hafði þegar í lifanda lífi tekið merkissteininn í Kóngsdal og reist hann sér að minnisvarða, með því að hann hugsaði: Ég á engan son til að halda uppi nafni mínu, og nefnt merkissteininn nafni sínu. Fyrir því er hann enn í dag nefndur Absalonsvarði.19Akímaas Sadóksson mælti: Ég ætla að hlaupa og færa konungi fagnaðartíðindin, að Drottinn hafi rétt hluta hans á óvinum hans.20En Jóab sagði við hann: Þú ert ekki maður til að flytja tíðindin í dag. Öðru sinni getur þú flutt tíðindin, en í dag getur þú ekki flutt tíðindin, því að konungsson er dauður.21Því næst sagði Jóab við Blálendinginn: Far þú og seg konunginum það, sem þú hefir séð. Þá laut Blálendingurinn Jóab og hljóp af stað.22Akímaas Sadóksson kom enn að máli við Jóab og mælti: Komi hvað sem koma vill: Leyf og mér að fara og hlaupa á eftir Blálendingnum. Jóab svaraði: Til hvers viltu vera að hlaupa þetta, sonur minn, þar sem þér þó eigi munu greidd verða nein sögulaunin.23Hann svaraði: Komi hvað sem koma vill: Ég hleyp. Þá sagði Jóab við hann: Hlauptu þá! Þá hljóp Akímaas af stað veginn yfir Jórdansléttlendið og komst á undan Blálendingnum.24Davíð sat milli borgarhliðanna tveggja. En sjónarvörðurinn steig upp á þak hliðsins upp á múrinn, hóf upp augu sín og sá, hvar maður kom hlaupandi einn saman.25Sjónarvörðurinn kallaði og sagði konungi frá því. En konungur mælti: Ef hann fer einn saman, þá flytur hann góð tíðindi. En hinn hljóp í sífellu og bar hann óðum nær.26Þá sá sjónarvörðurinn annan mann koma hlaupandi. Kallaði sjónarvörðurinn þá niður í hliðið og mælti: Þarna kemur annar maður hlaupandi einn saman. Þá mælti konungur: Sá mun og flytja góð tíðindi.27Þá sagði sjónarvörðurinn: Mér sýnist hlaup hins fyrra vera líkt hlaupi Akímaas Sadókssonar. Konungur mælti: Hann er drengur góður og mun koma með góð tíðindi.28Akímaas bar þá að og mælti hann við konung: Sit heill! og laut á ásjónu sína til jarðar fyrir konungi og mælti: Lofaður sé Drottinn, Guð þinn, sem framselt hefir þá menn, er upplyftu hendi sinni gegn mínum herra, konunginum.29Konungur mælti: Líður sveininum Absalon vel? Akímaas svaraði: Ég sá mannþröng mikla, er Jóab sendi þjón þinn af stað, en ekki vissi ég hvað um var að vera.30Þá sagði konungur: Gakk til hliðar og stattu þarna. Og hann gekk til hliðar og nam þar staðar.31Í því kom Blálendingurinn. Og Blálendingurinn sagði: Minn herra konungurinn meðtaki þau fagnaðartíðindi, að Drottinn hefir rétt hluta þinn í dag á öllum þeim, er risið hafa í gegn þér.32Þá sagði konungur við Blálendinginn: Líður sveininum Absalon vel? Blálendingurinn mælti: Fari svo fyrir óvinum míns herra konungsins og öllum þeim, er gegn þér rísa til að vinna þér tjón, sem sveini þessum!33Þá varð konungi bilt. Gekk hann upp í þaksalinn uppi yfir hliðinu og grét. Og er hann gekk, mælti hann svo: Sonur minn Absalon, sonur minn, sonur minn Absalon! Ó, að ég hefði dáið í þinn stað, Absalon, sonur minn, sonur minn!

18.3 Hvergi fara 2Sam 21.17
18.5 Unga manninn Absalon 2Sam 14.21; 18.12,29; 19.6
18.7 Mikið mannfall 2Sam 17.9
18.8 Sverðið 2Sam 2.26+
18.9 Múldýr 2Sam 13.29
18.13 Ekkert er konungi hulið 2Sam 14.20
18.14 Jóab drepur Absalon 2Sam 3.27+
18.16 Þeyta hafurshorn 2Sam 2.28+
18.17 Steindys Jós 7.26; 8.29; 10.27
18.18 Minnisvarði 1Sam 15.12
18.20 Fagnaðartíðindi 2Sam 4.10
18.24 Vörður 2Sam 13.34; 2Kon 9.17-20
18.27 Líkt og 2Kon 9.20 –góður maður 1Kon 1.42
18.29 Ungi maðurinn Absalon 2Sam 18.5+
18.31 Dæmt þér í vil 1Sam 24.16+