1Vei mér, því að það hefir farið fyrir mér eins og þegar ávöxtum er safnað, eins og við eftirtíning vínberjatekju: ekkert vínber eftir til að eta, engin árfíkja, er mig langaði í.2Guðhræddir menn eru horfnir úr landinu, og ráðvandir eru ekki til meðal mannanna, þeir sitja allir um að fremja morð og reyna að veiða hver annan í net.3Til ills eru báðar hendur fram réttar. Höfðinginn heimtar og dómarinn dæmir gegn endurgjaldi. Og stórmennið er bermált um það, sem hjarta hans girnist, og þeir flækja málin.4Hinn besti meðal þeirra er sem þyrnir og hinn ráðvandasti verri en þyrnigerði. Dagurinn sem varðmenn þínir hafa talað um, hegningardagur þinn, kemur. Þá verða þeir úrræðalausir.5Trúið eigi kunningja yðar, treystið eigi vini, gæt dyra munns þíns fyrir henni, sem hvílir í faðmi þínum.6Því að sonurinn fyrirlítur föður sinn, dóttirin setur sig upp á móti móður sinni, tengdadóttirin á móti tengdamóður sinni, heimilismennirnir eru óvinir húsbónda síns.7Ég vil mæna til Drottins, bíða eftir Guði hjálpræðis míns! Guð minn mun heyra mig!8Hlakka eigi yfir mér, fjandkona mín, því þótt ég sé fallin, rís ég aftur á fætur, þótt ég sitji í myrkri, þá er Drottinn mitt ljós.9Reiði Drottins vil ég þola því að ég hefi syndgað á móti honum þar til er hann sækir sök mína og lætur mig ná rétti mínum. Hann mun leiða mig út til ljóssins, ég mun horfa ánægð á réttlæti hans.10Fjandkona mín mun sjá það, og smán mun hylja hana, hún sem nú segir við mig: Hvar er Drottinn, Guð þinn? Augu mín munu horfa hlakkandi á hana, þá mun hún verða troðin niður eins og saur á strætum.11Sá dagur kemur, að múrar þínir verða endurreistir, þann dag munu landamerki þín færast mikið út.12Á þeim degi munu menn koma til þín frá Assýríu allt til Egyptalands og frá Egyptalandi allt til Efrats, frá hafi til hafs og frá fjalli til fjalls.13En jörðin mun verða að auðn vegna íbúa hennar, sökum ávaxtarins af gjörðum þeirra.14Gæt þú þjóðar þinnar með staf þínum, sauða arfleifðar þinnar, þeirra sem byggja einir sér kjarrskóginn innan um aldingarðana. Lát þá ganga í Basanshaglendi og í Gíleað eins og forðum daga.15Lát hana sjá undur, eins og þegar þú fórst af Egyptalandi.16Þjóðirnar skulu sjá það og verða til skammar, þrátt fyrir allan styrkleika sinn. Þær munu leggja höndina á munninn, eyru þeirra munu verða heyrnarlaus.17Þær munu sleikja duft eins og höggormur, eins og kvikindi, sem skríða á jörðinni, skjálfandi skulu þær koma fram úr fylgsnum sínum, líta hræddar til Drottins, Guðs vors, og óttast þig.18Hver er slíkur Guð sem þú, sá er fyrirgefur leifum arfleifðar sinnar misgjörð þeirra og umber fráhvarf þeirra, sem eigi heldur fast við reiði sína eilíflega, heldur hefir unun af að vera miskunnsamur?19Þú munt aftur miskunna oss, troða niður misgjörðir vorar. Já, þú munt varpa öllum syndum vorum í djúp hafsins.20Þú munt auðsýna Jakob trúfesti og Abraham miskunnsemi, eins og þú sórst feðrum vorum forðum daga.

7.2 Enginn guðhræddur Jer 5.1; Slm 14.2-3 – úthella blóði Jer 5.26; Hós 6.9; Slm 10.9; 59.4
7.3 Mútuþægni höfðingja Mík 3.11+
7.6 Sbr Matt 10.35-36 og hlst.
7.7 Mæna til Drottins Hab 2.1
7.8 Hlakka ekki Ób 12 – í myrkri Jes 42.7; 49.9; Slm 88.7; 107.10; 143.3; Préd 5.16; Lúk 1.79; Jóh 8.12; 12.46 – Drottinn er ljós mitt Slm 18.29; 27.1; 36.10
7.10 Hvar er Guð þinn? Slm 42.4,11
7.11 Múrar endurreistir Neh 2.17; 6.15; Slm 51.20 – land stækka 5Mós 19.8; Jes 54.2
7.14 Drottinn er hirðir Mík 5.3; Jer 23.3; Esk 34.11-16; Slm 180.2; 95.7 – eigin hjörð 5Mós 9.26,29; 1Kon 8.53; Jer 10.16; Slm 28.9; 74.2 – eins og forðum Am 9.11; Slm 143.5
7.15 Frá Egyptalandi 2Mós 12.41-42; 13.3; 20.2; Jós 24.17; Jer 32.21; Post 13.17
7.16-17 Heiðingjarnir til skammar Jes 26.11
7.18 Enginn er sem Guð Jes 40.18; Sl 89.7 – Guð fyrirgefur Jer 50.20; Slm 32.1-2 – reiðin varir ekki 4Mós 14.18; Jl 2.13+ ; Nah 1.3+ ; Slm 203.9
7.19 Miskunnsamur Guð Jes 30.18; sbr 2Mós 33.19
7.20 Fyrirheit Drottins 1Mós 22.16-18; sbr 28.13-15; Lúk 1.73