1Davíðssálmur, er hann kvað fyrir Drottni sakir Kús Benjamíníta.2Drottinn, Guð minn, hjá þér leita ég hælis, hjálpa mér undan öllum ofsækjendum mínum og bjarga mér,3svo að þeir rífi mig ekki í sundur eins og ljón, tæti mig í sundur og enginn bjargi mér.4Drottinn, Guð minn, hafi ég gjört þetta: sé ranglæti í höndum mínum,5hafi ég illt gjört þeim er lifðu í friði við mig, eða gjört fjandmönnum mínum mein að ástæðulausu,6þá elti mig óvinur minn og nái mér, troði líf mitt til jarðar og varpi sæmd minni í duftið. Sela7Rís þú upp, Drottinn, í reiði þinni, hef þig gegn ofsa fjandmanna minna og vakna mér til hjálpar, þú sem hefir fyrirskipað réttan dóm.8Söfnuður þjóðanna umkringi þig, og tak þú sæti uppi yfir honum á hæðum.9Þú Drottinn, sem dæmir þjóðirnar, lát mig ná rétti mínum, Drottinn, samkvæmt réttlæti mínu og ráðvendni.10Lát endi á verða illsku óguðlegra, en styrk hina réttlátu, þú, sem rannsakar hjörtun og nýrun, réttláti Guð!11Guð heldur skildi fyrir mér, hann hjálpar hinum hjartahreinu.12Guð er réttlátur dómari, hann reiðist illskunni dag hvern.13Vissulega hvetur hinn óguðlegi aftur sverð sitt, bendir boga sinn og leggur til hæfis,14en sjálfum sér hefir hann búið hin banvænu vopn, skotið brennandi örvum.15Já, hann getur illsku, er þungaður af ranglæti og elur tál.16Hann gróf gröf og gjörði hana djúpa, en sjálfur fellur hann í gryfjuna er hann gjörði.17Ranglæti hans kemur sjálfum honum í koll, og ofbeldi hans fellur í höfuð honum sjálfum.18Ég vil lofa Drottin fyrir réttlæti hans og lofsyngja nafni Drottins hins hæsta.

7.2 Leita hælis Slm 11.1; 17.7; 31.2-4,20; 34.9,23; 37.40; 46.2; 61.4; 71.1-3; 91.9; 141.8; 142.6
7.3 Enginn hjálpar Slm 50.22; 71.11; Dóm 18.28; Hós 2.12+; Job 5.4
7.4 Saklaus maður Slm 17.3-5; 26.4-5
7.9 Drottinn dæmir Slm 9.9 – ná rétti mínum Slm 26.1; 35.23,24; 43.1
7.10 Þú, sem rannsakar Slm 11.4-5; 17.3; 26.2; 139.23 – hjörtu og nýru Slm 26.2; Jer 11.20; 17.10; 20.12; Opb 2.23
7.12 Guð er réttlátur dómari Slm 9.5; 82.1; Jer 11.20
7.14 Banvæn vopn sbr Slm 11.6; 64.8
7.15 Þungaður af illsku Jes 59.4-5; Job 15.35
7.16 Falla í gröf Slm 9.16; 35.7-8; 57.7; 141.9; Okv 26.27
7.17 Ranglæti … í koll Slm 37.15; 94.23; Jer 2.19; Job 4.8; Okv 5.22; 22.8; Gal 6.7-8