1Fyrst vér erum umkringdir slíkum fjölda votta, léttum þá af oss allri byrði og viðloðandi synd og þreytum þolgóðir skeið það, sem vér eigum framundan.2Beinum sjónum vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúarinnar. Vegna gleði þeirrar, er beið hans, leið hann þolinmóðlega á krossi, mat smán einskis og hefur nú setst til hægri handar hásæti Guðs.3Virðið hann fyrir yður, sem þolað hefur slíkan fjandskap gegn sér af syndurum, til þess að þér þreytist ekki og látið hugfallast.4Í baráttu yðar við syndina hafið þér ekki enn þá staðið í gegn, svo að blóð hafi runnið.5Og þér hafið gleymt áminningunni, sem ávarpar yður eins og syni: Sonur minn, lítilsvirð ekki hirtingu Drottins, og lát ekki heldur hugfallast er hann tyftar þig.6Því að Drottinn agar þann, sem hann elskar, og hirtir harðlega hvern þann son, er hann að sér tekur.7Þolið aga. Guð fer með yður eins og syni. Hver er sá sonur, sem faðirinn ekki agar?8En séuð þér án aga, sem allir hafa fyrir orðið, þá eruð þér þrælbornir og ekki synir.9Enn er það, að vér bjuggum við aga jarðneskra feðra og bárum virðingu fyrir þeim. Skyldum vér þá ekki miklu fremur vera undirgefnir föður andanna og lifa?10Feður vorir öguðu oss um fáa daga, eftir því sem þeim leist, en oss til gagns agar hann oss, svo að vér fáum hlutdeild í heilagleika hans.11Í bili virðist allur agi að vísu ekki vera gleðiefni, heldur hryggðar, en eftir á gefur hann þeim, er við hann hafa tamist, ávöxt friðar og réttlætis.12Réttið því úr máttvana höndum og magnþrota knjám.13Látið fætur yðar feta beinar brautir, til þess að hið fatlaða vindist ekki úr liði, en verði heilt.14Stundið frið við alla menn og helgun, því að án hennar fær enginn Drottin litið.15Hafið gát á, að enginn missi af Guðs náð, að engin beiskjurót renni upp, sem truflun valdi, og margir saurgist af.16Gætið þess, að eigi sé neinn hórkarl eða vanheilagur, eins og Esaú, sem fyrir einn málsverð lét af hendi frumburðarrétt sinn.17Þér vitið, að það fór líka svo fyrir honum, að hann var rækur gjör, þegar hann síðar vildi öðlast blessunina, þó að hann grátbændi um hana. Hann fékk ekki færi á að iðrast.18Þér eruð ekki komnir til fjalls, sem á verður þreifað, ekki til brennandi elds og sorta, myrkurs, ofviðris19og básúnuhljóms og raustar sem talaði svo að þeir, sem hana heyrðu, báðust undan því að meira væri til sín talað.20Því að þeir þoldu ekki það, sem fyrir var skipað: Þó að það sé ekki nema skepna, sem kemur við fjallið, skal hún grýtt verða.21Svo ógurlegt var það, sem fyrir augu bar, að Móse sagði: Ég er mjög hræddur og skelfdur.22Nei, þér eruð komnir til Síonfjalls og borgar Guðs lifanda, hinnar himnesku Jerúsalem, til tugþúsunda engla,23til hátíðarsamkomu og safnaðar frumgetinna, sem á himnum eru skráðir, til Guðs, dómara allra, og til anda réttlátra, sem fullkomnir eru orðnir,24og til Jesú, meðalgangara nýs sáttmála, og til blóðsins, sem hreinsar og talar kröftuglegar en blóð Abels.25Gætið þess, að þér hafnið ekki þeim sem talar. Þeir, sem höfnuðu þeim er gaf guðlega bendingu á jörðu, komust ekki undan. Miklu síður munum vér undan komast, ef vér gjörumst fráhverfir honum, er guðlega bendingu gefur frá himnum.26Raust hans lét jörðina bifast fyrrum. En nú hefur hann lofað: Enn einu sinni mun ég hræra jörðina og ekki hana eina, heldur og himininn.27Orðin: Enn einu sinni, sýna, að það, sem bifast, er skapað og hverfur, til þess að það standi stöðugt, sem eigi bifast.28Þar sem vér því fáum ríki, sem ekki getur bifast, skulum vér þakka það og þjóna Guði, svo sem honum þóknast, með lotningu og ótta.29Því að vor Guð er eyðandi eldur.

12.1 Þolgóð Heb 10.32; 1Kor 9.24-27; Fil 3.12; 1Tím 6.12; 2Tím 2.5
12.2 Höfundur og fullkomnari Heb 2.10 – til hægri handar Matt 22.44+
12.5-6 Sbr Okv 3.11-12
12.7 Þolið aga 5Mós 8.5; 2Sam 7.14
12.12 Jes 35.3
12.13 Sbr Okv 4.26
12.15 5Mós 29.17-19; Heb 6.4-8; 10.26-31
12.16 Esaú 1Mós 25.33-34
12.17 Bón Esaú 1Mós 27.34
12.18-19 Opinberun Gusð á Sínaí 2Mós 19.16-21; 20.18-21; 5Mós 4.11-12; 5.23
12.20 2Mós 19.12-13
12.21 5Mós 9.19
12.22 Himnesk Jerúsalem Heb 11.10+
12.24 Nýr sáttmáli Heb 8.8-12 – Abel Heb11.4+
12.26 Hag 2.6
12.28 Fáum ríki Dan 7.18
12.29 Eyðandi eldur 5Mós 4.24; 9.3; Jes 33.14