1Orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:2Mannsson, spá þú um Ísraels hirða, spá þú og seg við þá: Svo segir Drottinn Guð: Vei hirðum Ísraels, er héldu sjálfum sér til haga. Eiga ekki hirðarnir að halda sauðunum til haga?3Mjólkurinnar neyttuð þér, klædduð yður af ullinni, slátruðuð alifénu, en sauðunum hafið þér eigi haldið til haga.4Þér komuð ekki þrótti í veiku skepnurnar og læknuðuð ekki hið sjúka, bunduð ekki um hið limlesta, sóttuð ekki það, er hrakist hafði, og leituðuð ekki hins týnda, heldur drottnuðuð þér yfir þeim með hörku og grimmd.5Og fyrir því tvístruðust þeir, af því að enginn var hirðirinn, og urðu öllum dýrum merkurinnar að bráð.6Sauðir mínir ráfuðu um öll fjöll og allar háar hæðir, sauðir mínir voru tvístraðir um allt landið, og enginn skeytti um þá og enginn leitaði þeirra.7Heyrið því orð Drottins, þér hirðar!8Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð: Vissulega, af því að sauðir mínir urðu að herfangi og af því að sauðir mínir urðu öllum dýrum merkurinnar að bráð, með því að enginn var hirðirinn og með því að hirðar mínir skeyttu eigi um sauði mína, því að hirðarnir héldu sjálfum sér til haga, en sauðum mínum héldu þeir ekki til haga9fyrir því heyrið orð Drottins, þér hirðar!10Svo segir Drottinn Guð: Sjá, ég skal finna hirðana og ég skal krefja sauða minna af hendi þeirra og gjöra enda á fjárgæslu þeirra. Og hirðarnir skulu ekki lengur halda sjálfum sér til haga, heldur skal ég hrífa sauði mína úr munni þeirra, svo að þeir verði þeim eigi framar að bráð.11Svo segir Drottinn Guð: Hér er ég sjálfur og mun leita sauða minna og annast þá.12Eins og hirðir annast hjörð sína þann dag, sem hann er á meðal hinna tvístruðu sauða sinna, þannig mun ég annast sauði mína og heimta þá úr öllum þeim stöðum, þangað sem þeir hröktust í þokunni og dimmviðrinu.13Og ég mun sækja þá til þjóðanna og saman safna þeim úr löndunum og leiða þá inn í land þeirra og halda þeim til haga á Ísraels fjöllum, í dölunum og á öllum byggðum bólum í landinu.14Ég mun halda þeim í góðu haglendi, og beitiland þeirra mun vera á háfjöllum Ísraels. Þar munu þeir liggja í góðu beitilandi og ganga í feitu haglendi á Ísraels fjöllum.15Ég mun sjálfur halda sauðum mínum til haga og sjálfur bæla þá, segir Drottinn Guð.16Ég mun leita að hinu týnda og sækja hið hrakta, binda um hið limlesta og koma þrótti í hið veika, en varðveita hið feita og sterka. Ég mun halda þeim til haga, eins og vera ber.17En þér, sauðir mínir, svo segir Drottinn Guð: Sjá, ég dæmi milli kindar og kindar, milli hrúta og hafra.18Nægir yður ekki að ganga í hinu besta haglendi, nema þér fótum troðið það, sem eftir er af haglendi yðar? Nægir yður ekki að drekka tæra vatnið, nema þér gruggið upp það, sem eftir er, með fótum yðar?19Og svo verða sauðir mínir að bíta það, sem þér hafið troðið með fótum yðar, og drekka það, sem þér hafið gruggað upp með fótum yðar.20Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, hér er ég sjálfur og dæmi milli hinnar feitu og hinnar mögru kindar.21Af því að þér hrunduð öllum veiku skepnunum með síðum og öxlum og stönguðuð þær með hornum yðar, uns þér fenguð hrakið þær út,22þá vil ég nú hjálpa sauðum mínum, svo að þeir verði eigi framar að herfangi, og ég mun dæma milli kindar og kindar.23Og ég mun skipa yfir þá einkahirði, hann mun halda þeim til haga, þjón minn Davíð. Hann mun halda þeim til haga og hann mun vera þeim hirðir.24Og ég Drottinn, mun vera Guð þeirra, og þjónn minn Davíð mun vera höfðingi meðal þeirra. Ég, Drottinn, hefi talað það.25Og ég mun gjöra friðarsáttmála við þá og reka öll illdýri úr landinu, svo að þeir skulu óhultir búa mega í eyðimörkinni og sofa í skógunum.26Og ég mun gjöra þá og landið umhverfis hæð mína að blessun, og ég mun láta steypiregnið niður falla á sínum tíma, það skulu verða blessunarskúrir.27Og tré merkurinnar munu bera sinn ávöxt, og jörðin mun bera sinn gróða, og þeir munu búa óhultir á sinni jörð og viðurkenna, að ég er Drottinn, þegar ég sundurbrýt oktré þeirra og frelsa þá undan valdi þeirra, er þá hafa þrælkað.28Og þeir skulu ekki framar verða þjóðunum að herfangi, né heldur skulu villidýrin rífa þá í sig, en þeir skulu búa óhultir og enginn skelfa þá.29Og ég mun láta til verða handa þeim vel ræktaðan gróðurreit og alls engir munu framar farast af hungri í landinu, og þeir skulu ekki framar liggja undir ámæli þjóðanna.30Og þeir skulu viðurkenna, að ég, Drottinn, Guð þeirra, er með þeim, og að þeir, Ísraelsmenn, eru mín þjóð, segir Drottinn Guð.31En þér eruð mínir sauðir. Mín gæsluhjörð eruð þér. Ég er yðar Guð, segir Drottinn Guð.

34.2 Hirðir Esk 34.10-16,23; Jes 56.11; Sak 11; Slm 23.1; 80.2; Jóh 10.11
34.4 Leiða með harðri hendi Esk 45.9; 1Sam 8.11-18; 1Kon 21; Mík 2.2
34.5 Hirðir var engin 4Mós 27.10; 1Kon 22.17; Sak 10.2; Matt 9.36
34.14 Guð er hirðir Jes 40.11; Jer 23.3; Slm 23.1-3; 80.2; sbr Jóh 10.1-30; 1Pét 5.2-4; Opb 7.17
34.16 Leita þess sem villist Lúk 15.4-7
34.17 Dæma Matt 25.32-33
34.23 Einn hirðir Esk 37.22,24
34.25 Sáttmáli Hós 2.20; sbr Jes 11.6-9 – búa óhultir Esk 28.26+
34.26 Regn 5Mós 11.14; 28.12; Jer 5.24
34.30 Ég er Drottinn Esk 20.42+