1Davíðssálmur. Minningarljóð.2Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni.3Örvar þínar standa fastar í mér, og hönd þín liggur þungt á mér.4Enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum sakir reiði þinnar, ekkert heilt í beinum mínum sakir syndar minnar.5Misgjörðir mínar ganga mér yfir höfuð, sem þung byrði eru þær mér of þungar orðnar.6Ódaun leggur af sárum mínum, rotnun er í þeim sakir heimsku minnar.7Ég er beygður og mjög bugaður, ráfa um harmandi daginn langan.8Lendar mínar eru fullar bruna, og enginn heilbrigður blettur er á líkama mínum.9Ég er lémagna og kraminn mjög, kveina af angist hjartans.10Drottinn, öll mín þrá er þér kunn og andvörp mín eru eigi hulin þér.11Hjarta mitt berst ákaft, kraftur minn er þrotinn, jafnvel ljós augna minna er horfið mér.12Ástvinir mínir og kunningjar hörfa burt fyrir kröm minni, og frændur mínir standa fjarri.13Þeir er sitja um líf mitt, leggja snörur fyrir mig, þeir er leita mér meins, mæla skaðræði og hyggja á svik allan liðlangan daginn.14En ég er sem daufur, ég heyri það ekki, og sem dumbur, er eigi opnar munninn,15ég er sem maður er eigi heyrir og engin andmæli eru í munni hans.16Því að á þig, Drottinn, vona ég, þú munt svara mér, Drottinn minn og Guð minn,17því að ég segi: Lát þá eigi hlakka yfir mér, eigi hælast um af því, að mér skriðni fótur.18Því að ég er að falli kominn, og þjáningar mínar eru mér æ fyrir augum.19Ég játa misgjörð mína, harma synd mína,20og þeir sem án saka eru óvinir mínir, eru margir, fjölmargir þeir er hata mig að ástæðulausu.21Þeir gjalda mér gott með illu, sýna mér fjandskap, af því ég legg stund á það sem gott er.22Yfirgef mig ekki, Drottinn, Guð minn, ver ekki fjarri mér,23skunda til liðs við mig, Drottinn, þú hjálp mín.

38.2 Í reiði Slm 6.2+
38.3 Örvar þínar Job 6.4; 16.13
38.4 Enginn heill blettur Jes 1.5-6
38.5 Yfir höfuð Esr 9.6 – misgjörðir mínar Slm 40.13
38.7 Bugaður og harmandi Slm 35.14; 42.10
38.9 Lémagna Slm 102.4-6
38.10 Þrá mín er þér kunn 2Mós 2.24; 6.5; Slm 5.2; 79.11
38.11 Ljós augnanna horfið Slm 6.8; 31.10-11
38.12 Halda sig fjarri Slm 31.12+
38.13 Snörur Slm 35.7; 57.7 – svik Slm 35.20
38.14 Sem dumbur Slm 39.2-3+
38.16 Vona á Drottinn Slm 31.25; sbr 25.3; 27.14
38.17 Eigi hlakka yfir mér Slm 35.15,19
38.19 Syndajátning Slm 32.5+
38.20 Án saka Slm 35.19+
38.21 Gjalda gott með illu Slm 35.12+
38.22 Yfirgef mig ekki Slm 22.2; 27.9; 71.18; 119.8 – ver ekki fjarri Slm 22.12; 35.22; 71.12
38.23 Skunda til hjálpar Slm 22.20+