1Og hann kallaði til sín lærisveina sína tólf og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum, að þeir gætu rekið þá út og læknað hvers kyns sjúkdóm og veikindi.2Nöfn postulanna tólf eru þessi: Fyrstur Símon, sem kallast Pétur, og Andrés bróðir hans, þá Jakob Sebedeusson og Jóhannes bróðir hans,3Filippus og Bartólómeus, Tómas og Matteus tollheimtumaður, Jakob Alfeusson og Taddeus,4Símon vandlætari og Júdas Ískaríot, sá er sveik hann.5Þessa tólf sendi Jesús út og mælti svo fyrir: Haldið ekki til heiðinna manna og farið ekki í samverska borg.6Farið heldur til týndra sauða af Ísraelsætt.7Farið og prédikið: Himnaríki er í nánd.8Læknið sjúka, vekið upp dauða, hreinsið líkþráa, rekið út illa anda. Gefins hafið þér fengið, gefins skuluð þér láta í té.9Takið ekki gull, silfur né eir í belti,10eigi mal til ferðar eða tvo kyrtla og hvorki skó né staf. Verður er verkamaðurinn fæðis síns.11Hvar sem þér komið í borg eða þorp, spyrjist þá fyrir um, hver þar sé verðugur, og þar sé aðsetur yðar, uns þér leggið upp að nýju.12Þegar þér komið í hús, þá árnið því góðs,13og sé það verðugt, skal friður yðar koma yfir það, en sé það ekki verðugt, skal friður yðar aftur hverfa til yðar.14Og taki einhver ekki við yður né hlýði á orð yðar, farið þá úr því húsi eða þeirri borg og hristið dustið af fótum yðar.15Sannlega segi ég yður: Bærilegra mun landi Sódómu og Gómorru á dómsdegi en þeirri borg.16Sjá, ég sendi yður eins og sauði meðal úlfa. Verið því kænir sem höggormar og falslausir sem dúfur.17Varið yður á mönnunum. Þeir munu draga yður fyrir dómstóla og húðstrýkja yður í samkundum sínum.18Þér munuð leiddir fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna þeim og heiðingjunum til vitnisburðar.19En þá er menn draga yður fyrir rétt, skuluð þér ekki hafa áhyggjur af því, hvernig eða hvað þér eigið að tala. Yður verður gefið á sömu stundu, hvað segja skal.20Þér eruð ekki þeir sem tala, heldur andi föður yðar, hann talar í yður.21Bróðir mun selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða.22Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns. En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.23Þegar þeir ofsækja yður í einni borg, þá flýið í aðra. Sannlega segi ég yður: Þér munuð ekki hafa náð til allra borga Ísraels, áður en Mannssonurinn kemur.24Ekki er lærisveinn meistaranum fremri né þjónn herra sínum.25Nægja má lærisveini að vera sem meistari hans og þjóni sem herra hans. Fyrst þeir kölluðu húsföðurinn Beelsebúl, hvað kalla þeir þá heimamenn hans?26Óttist þá því eigi. Ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, er eigi verður kunnugt.27Það sem ég segi yður í myrkri, skuluð þér tala í birtu, og það sem þér heyrið hvíslað í eyra, skuluð þér kunngjöra á þökum uppi.28Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða, en fá ekki deytt sálina. Hræðist heldur þann, sem megnar að tortíma bæði sálu og líkama í helvíti.29Eru ekki tveir spörvar seldir fyrir smápening? Og ekki fellur einn þeirra til jarðar án vitundar föður yðar.30Á yður eru jafnvel höfuðhárin öll talin.31Verið því óhræddir, þér eruð meira verðir en margir spörvar.32Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum, mun og ég við kannast fyrir föður mínum á himnum.33En þeim sem afneitar mér fyrir mönnum, mun og ég afneita fyrir föður mínum á himnum.34Ætlið ekki, að ég sé kominn að færa frið á jörð. Ég kom ekki að færa frið, heldur sverð.35Ég er kominn að gjöra son andvígan föður sínum, dóttur móður sinni og tengdadóttur tengdamóður sinni.36Og heimamenn manns verða óvinir hans.37Sá sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og sá sem ann syni eða dóttur meir en mér, er mín ekki verður.38Hver sem tekur ekki sinn kross og fylgir mér, er mín ekki verður.39Sá sem ætlar að finna líf sitt, týnir því, og sá sem týnir lífi sínu mín vegna, finnur það.40Sá sem tekur við yður, tekur við mér, og sá sem tekur við mér, tekur við þeim, er sendi mig.41Sá sem tekur við spámanni, vegna þess að hann er spámaður, mun fá spámanns laun, og sá sem tekur við réttlátum manni, vegna þess að hann er réttlátur, mun fá laun réttláts manns.42Og hver sem gefur einum þessara smælingja svaladrykk vegna þess eins, að hann er lærisveinn, sannlega segi ég yður, hann mun alls ekki missa af launum sínum.

10.1-4 Hlst. Mrk 3.13-19; Lúk 6.12-16
10.1 Lækningar Matt 9.35; Mrk 1.34; Lúk 7.21
10.2 Hinir tólf Matt 26.14; Mrk 6.7; Lúk 9.1 – postular Post 1.26; Opb 21.14 – nöfn þeirra tólf Mrk 3.16-19; Lúk 6.14-16; Post 1.13-14 – Símon, Pétur og Andrés Matt 4.18+ – Jakob og Jóhannes Matt 4.21+
10.3 Filippus Jóh 1.43-48; 6.5,7; 12.21-22; 14.8-9 – Tómas Lúk 6.15; Jóh 11.16; 14.5; 20.24-28; 21.2 – Matteus Matt 9.9+ – tollheimtumenn Matt 5.46+
10.4 Júdas Ískaríot Matt 26.14,25,47 og hlst.; 27.3; Jóh 6.71; 12.4; 13.2,26; 18.2; Post 1.16,25
10.5-15 Hlst. Mrk 6.7-13; Lúk 9.1-6
10.5 Senda Matt 10.16,40; 15.24; Jóh 3.17,34; 5.36-37; 17.3,18 o.fl. – samverskur Lúk 10.30-37; Jóh 4.4-48; Post 1.8
10.6 Týndir sauðir Jer 50.6; Matt 15.24
10.7 Himnaríki í nánd Matt 3.2; 4.17; Lúk 10.9,11
10.10 Réttur verkamanns 4Mós 18.31; Lúk 10.7; 1Kor 9.14; 1Tím 5.18
10.14 Hristið dustið Lúk 10.11; Post 13.51
10.15 Sódóma og Gómorra 1Mós 18-19; Matt 10.15; 11.23; Lúk 10.12; 17.29; Róm 9.29; 2Pét 2.6; Júd 7; Opb 11.8
10.16-25 Hlst. Mrk 13.9-13; Lúk 21.12-17
10.16 Sauðir og úlfar Jóh 10.12; Post 20.29
10.17 Draga fyrir dómstóla Mrk 13.9; Lúk 21.12-13
10.18 Bera vitni Matt 24.14
10.19 Ekki hafa áhyggjur Lúk 12.11-12
10.21 Bróðir gegn bróður Mík 7.6
10.22 Hataðir vegna Jesú Matt 24.9 – sá sem staðfastur er Matt 24.13
10.23 Mannssonurinn Matt 8.20+ – koma hans Matt 16.27; 25.31; sbr Matt 24.3+
10.24 Lærisveinn og meistari Lúk 6.40; Jóh 13.16; 15.20
10.25 Beelsebúl 2Kon 1.2; Matt 12.24,27; Mrk 3.22; Lúk 11.15,18,19
10.26-31 Hlst. Lúk 12.2-7
10.26 Hulið verður opinbert Mrk 4.22; Lúk 8.17; sbr Matt 10.7
10.32-33 Hlst. Lúk 12.8-9; Opb 3.5
10.32 Kannast við Jesú Lúk 12.8-9; Opb 3.5
10.33 Afneita Jesú Matt 26.34,74 og hlst.; Lúk 9.26; 2Tím 2.12; sbr Matt 7.23; 25.12
10.34-39 Hlst Lúk 12.51-53; 14.26-27
10.35-6 Mík 7.6
10.37 Unna Matt 5.43; 19.19; 22.37-39 – faðir og móðir 5Mós 33.9; Lúk 14.26
10.38 Taka kross sinn Matt 16.24
10.39 Týna og finna Matt 16.25; Lúk 17.33; Jóh 12.25
10.40-42 Hlst. Mrk 9.41
10.40 Taka við Jesú Matt 18.5; Gal 4.14 – sá, sem sendi mig Jóh 12.44
10.41 Taka við spámanni 1Kon 17.9-24; 2Kon 4.8-37 – spámaður og réttlátur Matt 13.17; 23.29
10.42 Smælingjar Matt 18.5,10; 25.40,45