1Sál talaði við Jónatan son sinn og við alla þjóna sína um að drepa Davíð. En Jónatan, sonur Sáls, hafði miklar mætur á Davíð.2Fyrir því sagði Jónatan Davíð frá þessu og mælti: Sál faðir minn situr um að drepa þig. Ver því var um þig á morgun snemma og fel þig og ver þú kyrr í því leyni.3„En ég ætla sjálfur að fara út og nema staðar við hlið föður míns á mörkinni, þar sem þú ert, og ég ætla að tala um þig við föður minn; og ef ég verð nokkurs vísari, mun ég segja þér það.“4Jónatan talaði vel um Davíð við Sál föður sinn og sagði við hann: Syndgast þú ekki, konungur, á Davíð þjóni þínum, því að hann hefir ekki syndgað á móti þér og verk hans hafa verið þér mjög gagnleg.5Hann lagði líf sitt í hættu og felldi Filistann, og þannig veitti Drottinn öllum Ísrael mikinn sigur. Þú sást það og gladdist. Hvers vegna vilt þú syndgast á saklausu blóði með því að deyða Davíð án saka?6Sál skipaðist við orð Jónatans og sór: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, þá skal hann ekki verða drepinn.7Þá kallaði Jónatan á Davíð og tjáði honum öll þessi orð. Síðan leiddi Jónatan Davíð til Sáls, og hann var hjá honum sem áður.8Er ófriður hófst að nýju, fór Davíð og barðist við Filista og felldi mikinn fjölda af þeim, svo að þeir flýðu fyrir honum.9„Þá kom illur andi frá Drottni yfir Sál; en hann sat í húsi sínu og hafði spjót í hendi sér, og Davíð lék hörpuna hendi sinni.“10Þá reyndi Sál að reka Davíð í gegn með spjótinu upp við vegginn, en hann skaut sér undan Sál, svo að hann rak spjótið inn í vegginn. Og Davíð flýði og komst undan.11Hina sömu nótt sendi Sál sendimenn í hús Davíðs til þess að hafa gætur á honum, svo að hann fengi drepið hann um morguninn. En Míkal, kona hans, sagði Davíð frá og mælti: Ef þú forðar ekki lífi þínu í nótt, þá verður þú drepinn á morgun.12Þá lét Míkal Davíð síga niður út um gluggann, og hann fór og flýði og komst undan.13Síðan tók Míkal húsgoðið og lagði í rúmið, og hún lagði blæju úr geitarhári yfir höfðalagið og breiddi ábreiðu yfir.14Og þegar Sál sendi menn til þess að sækja Davíð, þá sagði hún: Hann er sjúkur.15Þá sendi Sál mennina aftur til að vitja um Davíð og sagði: Færið mér hann í rúminu, til þess að ég geti drepið hann.16En er sendimennirnir komu, sjá, þá lá húsgoðið í rúminu og geitarhársblæjan yfir höfðalaginu.17Þá sagði Sál við Míkal: Hví hefir þú svikið mig svo og látið óvin minn í burt fara, svo að hann hefir komist undan? Míkal sagði við Sál: Hann sagði við mig: Lát mig komast burt, ella mun ég drepa þig!18Davíð flýði og komst undan og kom til Samúels í Rama og sagði honum frá öllu, sem Sál hafði gjört honum. Og hann fór með Samúel og þeir bjuggu í Najót.19Nú var Sál sagt svo frá: Sjá, Davíð er í Najót í Rama!20Sendi Sál þá menn til að sækja Davíð. En er þeir sáu hóp spámanna, sem voru í spámannlegum guðmóði, og Samúel standa þar sem foringja þeirra, þá kom Guðs andi yfir sendimenn Sáls, svo að þeir komust einnig í spámannlegan guðmóð.21Og menn sögðu Sál frá þessu, og hann sendi aðra menn, en þeir komust einnig í spámannlegan guðmóð. Þá sendi Sál enn menn hið þriðja sinn, en þeir komust einnig í spámannlegan guðmóð.22Þá fór hann sjálfur til Rama. Og er hann kom að vatnsþrónni miklu í Sekó, þá spurði hann og mælti: Hvar eru þeir Samúel og Davíð? Og menn sögðu: Þeir eru í Najót í Rama.23En er hann fór þaðan til Najót í Rama, þá kom og Guðs andi yfir hann, og var hann stöðugt í spámannlegum guðmóði alla leiðina til Najót í Rama.24Þá fór hann einnig af klæðum sínum, og hann var líka í spámannlegum guðmóði frammi fyrir Samúel og lá þar nakinn allan þennan dag og alla nóttina. Fyrir því segja menn: Er og Sál meðal spámannanna?

19.1 Jónatan og Davíð 18.1+
19.5 Saklaust blóð 5Mós 19.10,13; 21.8-9; 27.25; 2Kon 21.16; 24.4
19.9 Illur andi 1Sam 16.14
19.11 Sál sendi … Slm 59.1
19.12 Út um glugga Jós 2.15; Post 9.25; 2Kor 11.32-33
19.21 Sendi aðra menn 2Kon 1.9-14
19.23 Spámannleg leiðsla 1Sam 10.6,10
19.24 Í hópi spámannanna 1Sam 10.12