1Eftir andlát Móse, þjóns Drottins, mælti Drottinn við Jósúa Núnsson, þjónustumann Móse, á þessa leið:2Móse, þjónn minn, er andaður. Rís þú nú upp og far yfir ána Jórdan með allan þennan lýð, inn í landið, sem ég gef þeim, Ísraelsmönnum.3Hvern þann stað, er þér stígið fæti á, mun ég gefa yður, eins og ég sagði Móse.4Frá eyðimörkinni og Líbanon allt til fljótsins mikla, Efratfljótsins, allt land Hetíta, allt til hafsins mikla mót sólar setri skal land yðar ná.5Enginn mun standast fyrir þér alla ævidaga þína. Svo sem ég var með Móse, svo mun ég og með þér vera. Ég mun eigi sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig.6Ver þú hughraustur og öruggur, því að þú skalt skipta meðal þessa lýðs landi því, er ég sór feðrum þeirra að gefa þeim.7Ver þú aðeins hughraustur og harla öruggur að gæta þess að breyta eftir öllu lögmálinu, því er Móse þjónn minn fyrir þig lagði. Vík eigi frá því, hvorki til hægri né vinstri, til þess að þér lánist vel allt, sem þú tekur þér fyrir hendur.8Eigi skal lögmálsbók þessi víkja úr munni þínum, heldur skalt þú hugleiða hana um daga og nætur, til þess að þú gætir þess að gjöra allt það, sem í henni er skrifað, því að þá munt þú gæfu hljóta á vegum þínum og breyta viturlega.9Hefi ég ekki boðið þér: Ver þú hughraustur og öruggur? Lát eigi hugfallast og óttast eigi, því að Drottinn Guð þinn er með þér í öllu, sem þú tekur þér fyrir hendur.10Þá bauð Jósúa tilsjónarmönnum lýðsins á þessa leið:11Farið um allar herbúðirnar og bjóðið lýðnum og segið: Búið yður veganesti, því að þrem dögum liðnum skuluð þér fara yfir ána Jórdan, svo að þér komist inn í og fáið til eignar landið, sem Drottinn, Guð yðar, gefur yður til eignar.12En við Rúbeníta, Gaðíta og hálfa ættkvísl Manasse mælti Jósúa á þessa leið:13Minnist þess, sem Móse, þjónn Drottins, bauð yður, er hann sagði: Drottinn, Guð yðar, mun veita yður hvíld og gefa yður þetta land.14Konur yðar, börn yðar og búsmali skal eftir verða í landi því, er Móse gaf yður hinumegin Jórdanar, en þér skuluð fara hertygjaðir fyrir bræðrum yðar, allir þér sem vopnfærir eruð, og veita þeim fulltingi,15þar til er Drottinn veitir bræðrum yðar hvíld eins og yður, og þeir hafa líka tekið til eignar land það, sem Drottinn, Guð yðar, gefur þeim. Þá skuluð þér snúa aftur í eignarland yðar og setjast þar að, í landinu, sem Móse, þjónn Drottins, gaf yður hinumegin Jórdanar, austanmegin.16Þeir svöruðu Jósúa á þessa leið: Vér skulum gjöra allt sem þú býður oss, og fara hvert sem þú sendir oss.17Eins og vér í öllu hlýddum Móse, svo viljum vér og hlýða þér. Veri Drottinn, Guð þinn, með þér, eins og hann var með Móse.18Hver sá er þverskallast gegn skipun þinni og hlýðir ekki orðum þínum í öllu, sem þú býður oss, skal líflátinn verða. Vertu aðeins hughraustur og öruggur.

1.1 Móse, þjónn Drottins 2Mós 14.31; 4Mós 12.7-8; 5Mós 34.5; Jós 1.2,7 o.fl.; 8.31;
9.24; o.fl.; Neh 1.7; 1Kro 6.34; 2Kro 1.3; 24.9; Heb 3.5 – Jósúa, þjónn Móse 2Mós 24.13; 33.11; 4Mós 11.28
1.3-4 Þann blett … Jós 14.9 – land ykkar skal ná 5Mós 11.24
1.5 Veitt viðnám 5Mós 7.24 – með þér 5Mós 20.1+ – ekki yfirgefa 5Mós 31.6,8
1.6 Darfur og hughraustur 5Mós 3.28+ – fyrirheitna landið 5Mós 1.8+
1.7 Framfylgja lögunum 5Mós 5.1+ – vík ekki frá 5Mós 5.32+ – að þér vegni vel 5Mós 29.8
1.8 Lögbók 5Mós 17.18-19; sbr 5Mós 28.61+
1.9 Láttu ekki hugfallast 5Mós 1.29-30
1.11 Yfir Jórdan 5Mós 11.31 – landið til eignar 5Mós 1.21+
1.13 Móse bauð 5Mós 3.18-20; 4Mós 32.6-32 – hvíld Jós 1.15; 21.44; 22.4; 23.1; 5Mós 3.20; 12.10; 25.19; 2Sam 7.1; Slm 95.11; Heb 3.7-4.11
1.15 Handan við Jórdan Jós 22.1-6
1.17 Veri Drottinn með þér 5Mós 20.1+
1.18 Hlýðir ekki 5Mós 17.12 – hraustur og djarfur Jós 1.6+