1Er Abram var níutíu og níu ára gamall, birtist Drottinn honum og sagði: Ég er Almáttugur Guð. Gakk þú fyrir mínu augliti og ver grandvar,2þá vil ég gjöra sáttmála milli mín og þín, og margfalda þig mikillega.3Þá féll Abram fram á ásjónu sína, og Guð talaði við hann og sagði:4Sjá, það er ég, sem hefi gjört við þig sáttmála, og þú skalt verða faðir margra þjóða.5Því skalt þú eigi lengur nefnast Abram, heldur skalt þú heita Abraham, því að föður margra þjóða gjöri ég þig.6Og ég mun gjöra þig mjög frjósaman og gjöra þig að þjóðum, og af þér skulu konungar koma.7Og ég gjöri sáttmála milli mín og þín og þinna niðja eftir þig, frá einum ættlið til annars, ævinlegan sáttmála: að vera þinn Guð og þinna niðja eftir þig.8Og ég mun gefa þér og niðjum þínum eftir þig það land, sem þú nú býr í sem útlendingur, allt Kanaanland til ævinlegrar eignar, og ég skal vera Guð þeirra.9Guð sagði við Abraham: Þú skalt halda minn sáttmála, þú og niðjar þínir eftir þig, frá einum ættlið til annars.10Þetta er minn sáttmáli, sem þér skuluð halda, milli mín og yðar og niðja þinna eftir þig: Allt karlkyn meðal yðar skal umskera.11Yður skal umskera á holdi yfirhúðar yðar, og það sé merki sáttmálans milli mín og yðar.12Átta daga gömul skal öll sveinbörn umskera meðal yðar, ættlið eftir ættlið, bæði þau, er heima eru fædd, og eins hin, sem keypt eru verði af einhverjum útlendingi, er eigi er af þínum ættlegg.13Umskera skal bæði þann, sem fæddur er í húsi þínu, og eins þann, sem þú hefir verði keyptan, og þannig sé minn sáttmáli í yðar holdi sem ævinlegur sáttmáli.14En óumskorinn karlmaður, sá er ekki er umskorinn á holdi yfirhúðar sinnar, hann skal upprættur verða úr þjóð sinni. Sáttmála minn hefir hann rofið.15Guð sagði við Abraham: Saraí konu þína skalt þú ekki lengur nefna Saraí, heldur skal hún heita Sara.16Og ég mun blessa hana, og með henni mun ég einnig gefa þér son. Og ég mun blessa hana, og hún skal verða ættmóðir heilla þjóða, hún mun verða ættmóðir þjóðkonunga.17Þá féll Abraham fram á ásjónu sína og hló og hugsaði með sjálfum sér: Mun hundrað ára gamall maður eignast barn, og mun Sara níræð barn ala?18Og Abraham sagði við Guð: Ég vildi að Ísmael mætti lifa fyrir þínu augliti!19Og Guð mælti: Vissulega skal Sara kona þín fæða þér son, og þú skalt nefna hann Ísak, og ég mun gjöra sáttmála við hann sem ævinlegan sáttmála fyrir niðja hans eftir hann.20Og að því er Ísmael snertir hefi ég bænheyrt þig. Sjá, ég mun blessa hann og gjöra hann frjósaman og margfalda hann mikillega. Tólf þjóðhöfðingja mun hann geta, og ég mun gjöra hann að mikilli þjóð.21En minn sáttmála mun ég gjöra við Ísak, sem Sara mun fæða þér um þessar mundir á næsta ári.22Og er Guð hafði lokið tali sínu við Abraham, sté hann upp frá honum.23Þá tók Abraham son sinn Ísmael og alla, sem fæddir voru í hans húsi, og alla, sem hann hafði verði keypta, allt karlkyn meðal heimamanna Abrahams, og umskar hold yfirhúðar þeirra á þessum sama degi, eins og Guð hafði boðið honum.24Abraham var níutíu og níu ára gamall, er hann var umskorinn á holdi yfirhúðar sinnar.25Og Ísmael sonur hans var þrettán ára, er hann var umskorinn á holdi yfirhúðar sinnar.26Á þessum sama degi voru þeir umskornir Abraham og Ísmael sonur hans,27og allir hans heimamenn. Bæði þeir, er heima voru fæddir, og eins þeir, sem verði voru keyptir af útlendingum, voru umskornir með honum.

17.1 Almáttugur Guð 1Mós 28.3; 35.11; 43.14; 48.3; 49.2; 2Mós 6.3; 4Mós 24.4,16
17.2 Sáttmáli 1Mós 6.18+
17.4-5 Faðir margra þjóða 1Mós 12.2+ ; Neh 9.7; Róm 4.17 – skalt þú heita 1Mós 17.15; 32.28; 35.18; 41.45; 2Kon 23.34; 24.17; Dan 1.7
17.8 Fyrirheit um land 1Mós 12.7+
17.10-14 Umskurn 1Mós 17.23-27; 34.14-17, 2Mós 4.24-26; 12.48; 1Makk 1.60-61; Post 7.8; Róm 4.11; sbr 1Sam 14.6; Jer 4.4; 9.25; Fil 3.2-3; Kól 2.11-13
17.11 Tákn sáttmálans 1Mós 9.12+
17.12 Átta daga 1Mós 21.4; 3Mós 12.3; Lúk 2.21
17.13 Ævinlegur sáttmáli Esk 37.26; Slm 105.8-10; Lúk 1.72-73
17.18 Ísmael 1Mós 16.11,15-16
17.20 Mikil þjóð 1Mós 16.10+
17.21 Á næsta ári 1Mós 18.14