1Drottinn talaði við Móse í Sínaí-eyðimörk, í samfundatjaldinu, á fyrsta degi annars mánaðar á öðru ári eftir brottför þeirra af Egyptalandi og mælti:2Takið manntal alls safnaðar Ísraelsmanna eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, alla karlmenn mann fyrir mann.3Alla herfæra menn í Ísrael frá tvítugs aldri og þaðan af eldri skuluð þér telja eftir hersveitum þeirra, þú og Aron.4Og með ykkur skal vera einn maður af ættkvísl hverri, og sé hann höfuð ættar sinnar.5Þessi eru nöfn þeirra manna, er ykkur skulu aðstoða: Af Rúben: Elísúr Sedeúrsson.6Af Símeon: Selúmíel Súrísaddaíson.7Af Júda: Nakson Ammínadabsson.8Af Íssakar: Netanel Súarsson.9Af Sebúlon: Elíab Helónsson.10Af Jósefssonum: Af Efraím: Elísama Ammíhúdsson. Af Manasse: Gamlíel Pedasúrsson.11Af Benjamín: Abídan Gídeóníson.12Af Dan: Akíeser Ammísaddaíson.13Af Asser: Pagíel Ókransson.14Af Gað: Eljasaf Degúelsson.15Af Naftalí: Akíra Enansson.16Þessir voru tilnefndir af söfnuðinum, höfðingjar yfir ættkvíslum feðra sinna. Voru þeir höfuð Ísraels þúsunda.17Móse og Aron tóku menn þessa, sem nafngreindir eru,18og stefndu saman öllum söfnuðinum á fyrsta degi annars mánaðar og skrifuðu þá á ættarskrárnar eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, mann fyrir mann.19Svo sem Drottinn hafði boðið Móse, taldi hann þá í Sínaí-eyðimörk.20Synir Rúbens, frumgetins sonar Ísraels, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, maður fyrir mann, allir karlmenn frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,21þeir er taldir voru af ættkvísl Rúbens, voru 46.500.22Synir Símeons, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, maður fyrir mann, allir karlmenn frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,23þeir er taldir voru af ættkvísl Símeons, voru 59.300.24Synir Gaðs, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,25þeir er taldir voru af ættkvísl Gaðs, voru 45.650.26Synir Júda, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,27þeir er taldir voru af ættkvísl Júda, voru 74.600.28Synir Íssakars, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,29þeir er taldir voru af ættkvísl Íssakars, voru 54.400.30Synir Sebúlons, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,31þeir er taldir voru af ættkvísl Sebúlons, voru 57.400.32Synir Jósefs: Synir Efraíms, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,33þeir er taldir voru af ættkvísl Efraíms, voru 40.500.34Synir Manasse, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,35þeir er taldir voru af ættkvísl Manasse, voru 32.200.36Synir Benjamíns, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,37þeir er taldir voru af ættkvísl Benjamíns, voru 35.400.38Synir Dans, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,39þeir er taldir voru af ættkvísl Dans, voru 62.700.40Synir Assers, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,41þeir er taldir voru af ættkvísl Assers, voru 41.500.42Synir Naftalí, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn,43þeir er taldir voru af ættkvísl Naftalí, voru 53.400.44Þessir eru þeir, er taldir voru, sem þeir Móse, Aron og höfðingjar Ísraels töldu. Voru þeir tólf, einn fyrir hverja ættkvísl hans.45Og allir þeir af Ísraelsmönnum, er taldir voru eftir ættum þeirra, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn, voru,46allir þeir er taldir voru, voru 603.550.47En levítarnir, eftir ættbálki sínum, voru eigi taldir meðal þeirra.48Drottinn talaði við Móse og sagði:49Þú skalt þó eigi telja ættkvísl Leví og eigi taka manntal þeirra meðal Ísraelsmanna.50En þú skalt setja levítana yfir sáttmálsbúðina og yfir öll áhöld hennar og yfir allt, sem til hennar heyrir. Þeir skulu bera búðina og öll áhöld hennar, og þeir skulu þjóna að henni, og þeir skulu tjalda umhverfis búðina.51Og er búðin tekur sig upp, skulu levítarnir taka hana niður, og þegar reisa skal búðina, skulu levítarnir setja hana upp. En komi nokkur annar þar nærri, skal hann líflátinn verða.52Ísraelsmenn skulu tjalda hver á sínum stað í herbúðunum og hver hjá sínu merki, eftir hersveitum sínum.53En levítarnir skulu tjalda umhverfis sáttmálsbúðina, að reiði komi eigi yfir söfnuð Ísraelsmanna. Og levítarnir skulu annast sáttmálsbúðina.54Ísraelsmenn gjörðu svo. Þeir gjörðu í alla staði svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

1.1-47 Manntal 4Mós 26.1-51; 2Mós 30.11-16; Lúk 2.1-5
1.7 Nakson 2Mós 6.23
1.46 603.550 4Mós 26.51; 2Mós 12.37
1.50 Tjaldbúðin 2Mós 36-38 – tjalda 4Mós 2.17
1.51 Taka niður, setja upp 4Mós 4.4-33
1.53 Reiði 4Mós 18.5