1Þessi eru þau orð, er Móse talaði við allan Ísrael hinumegin Jórdanar í eyðimörkinni, á sléttlendinu gegnt Súf, á milli Paran, Tófel, Laban, Haserót og Dí-Sahab.2Eru ellefu dagleiðir frá Hóreb til Kades Barnea, þegar farin er leiðin, sem liggur til Seírfjalla.3Á fertugasta ári, á fyrsta degi hins ellefta mánaðar, birti Móse Ísraelsmönnum allt það, er Drottinn hafði boðið honum um þá,4eftir að hann hafði unnið á Síhon Amorítakonungi, sem hafði aðsetur í Hesbon, og Óg, konungi í Basan, sem hafði aðsetur í Astarót, hjá Edreí.5Hinumegin Jórdanar, í Móabslandi, tók Móse að skýra lögmál þetta og mælti:6Drottinn, Guð vor, talaði við oss á Hóreb á þessa leið: Þér hafið nú dvalið nógu lengi á þessu fjalli.7Snúið á leið, leggið af stað og haldið til fjalllendis Amoríta og allra nábúa þeirra á sléttlendinu, í fjalllendinu, á láglendinu, í Suðurlandinu, á sjávarströndinni, inn í land Kanaaníta og til Líbanon, allt til fljótsins mikla, Efratfljótsins.8Sjá, ég fæ yður landið. Farið og takið til eignar landið, sem Drottinn sór feðrum yðar, Abraham, Ísak og Jakob, að gefa þeim og niðjum þeirra eftir þá.9Þá sagði ég við yður: Ég rís ekki einn undir yður.10Drottinn, Guð yðar, hefir margfaldað yður, og sjá, þér eruð í dag að fjölda til sem stjörnur himins.11Drottinn, Guð feðra yðar, gjöri yður þúsund sinnum fleiri en þér eruð og blessi yður, eins og hann hefir heitið yður.12Hvernig fæ ég einn borið þyngslin af yður, þunga yðar og deilur yðar!13Veljið til vitra menn, skynsama og valinkunna af hverri kynkvísl yðar, og mun ég skipa þá höfðingja yfir yður.14Þá svöruðuð þér mér og sögðuð: Það er vel til fallið að gjöra það, sem þú talar um.15Tók ég þá ætthöfðingja yðar, vitra menn og valinkunna, og skipaði þá höfðingja yfir yður, suma yfir þúsund, suma yfir hundrað, suma yfir fimmtíu, suma yfir tíu, og tilsjónarmenn meðal ættkvísla yðar.16Ég lagði þá svo fyrir dómendur yðar: Hlýðið á mál bræðra yðar og dæmið réttlátlega, hvort heldur mann greinir á við bróður sinn eða útlending, er hjá honum dvelur.17Gjörið yður eigi mannamun í dómum, hlýðið jafnt á lágan sem háan. Hræðist engan mann, því að dómurinn er Guðs. En ef eitthvert mál er yður ofvaxið, þá skjótið því til mín, og skal ég sinna því.18Þannig lagði ég þá fyrir yður allt það, er þér skylduð gjöra.19Því næst lögðum vér upp frá Hóreb og fórum yfir alla eyðimörkina miklu og hræðilegu, sem þér hafið séð, leiðina til fjalllendis Amoríta, eins og Drottinn Guð vor hafði fyrir oss lagt. Og vér komum til Kades Barnea.20Þá sagði ég við yður: Þér eruð komnir að fjalllendi Amoríta, sem Drottinn, Guð vor, gefur oss.21Sjá, Drottinn Guð þinn hefir fengið þér landið. Far þú og tak það til eignar, eins og Drottinn, Guð feðra þinna, hefir boðið þér. Óttast þú eigi og lát eigi hugfallast.22Þá genguð þér allir til mín og sögðuð: Sendum menn á undan oss, að þeir megi kanna landið fyrir oss og færa oss fregnir af veginum, sem vér eigum að fara, og af borgunum, er vér munum koma til.23Mér féll þetta vel í geð, og tók ég tólf menn af yður, einn mann af ættkvísl hverri.24Og þeir fóru af stað og héldu norður til fjalla og komust í Eskóldal og könnuðu landið.25Tóku þeir með sér nokkuð af ávöxtum landsins og færðu oss. Og þeir fluttu oss fregnir og sögðu: Gott er landið, sem Drottinn Guð vor gefur oss.26En þér vilduð eigi fara þangað og óhlýðnuðust skipun Drottins, Guðs yðar.27Og þér mögluðuð í tjöldum yðar og sögðuð: Af því að Drottinn hataði oss, hefir hann leitt oss burt af Egyptalandi til þess að selja oss í hendur Amorítum, svo að þeir eyði oss.28Hvert erum vér að fara? Bræður vorir hafa skelft hjörtu vor með því að segja: Fólkið er stærra og hærra að vexti en vér. Borgirnar eru stórar og víggirtar hátt í loft upp. Vér höfum meira að segja séð þar Anakíta.29Þá sagði ég við yður: Látið eigi hugfallast og hræðist þá ekki.30Drottinn Guð yðar, sem fyrir yður fer, mun berjast fyrir yður, eins og hann hjálpaði yður bersýnilega í Egyptalandi31og á eyðimörkinni, þar sem þú sást, hvernig Drottinn, Guð þinn bar þig, eins og faðir ber barn sitt, alla þá leið, er þér hafið farið, þar til er þér komuð hingað.32En þrátt fyrir allt þetta vilduð þér ekki treysta Drottni Guði yðar,33sem gekk á undan yður á leiðinni til að leita upp tjaldstaði handa yður, á næturnar í eldi til þess að vísa yður veginn, sem þér ættuð að halda, en á daginn í skýi.34En er Drottinn heyrði umtölur yðar, varð hann reiður, sór og sagði:35Sannlega skal enginn af þessum mönnum, af þessari illu kynslóð, fá að sjá landið góða, sem ég sór að gefa feðrum yðar,36nema Kaleb Jefúnneson, hann skal fá að sjá það. Honum mun ég gefa landið, sem hann hefir stigið fæti á, og sonum hans, sökum þess að hann hefir fylgt Drottni trúlega.37Drottinn reiddist mér einnig yðar vegna og sagði: Þú skalt ekki heldur komast þangað.38Jósúa Núnsson, sem stendur fyrir augliti þínu, hann skal komast þangað. Tel þú hug í hann, því að hann mun úthluta því Ísrael til eignar.39Börn yðar, sem þér sögðuð að mundu verða fjandmönnunum að bráð, og synir yðar, sem í dag vita eigi grein góðs og ills, munu komast þangað. Þeim vil ég gefa það, og þeir skulu fá það til eignar.40En þér skuluð snúa á leið og halda inn í eyðimörkina, leiðina til Sefhafsins.41Þá svöruðuð þér og sögðuð við mig: Vér höfum syndgað gegn Drottni. Vér viljum fara og berjast, eins og Drottinn Guð vor hefir boðið oss. Og þér gyrtuð yður, hver sínum hervopnum, og tölduð það hægðarleik að leggja upp á fjöllin.42Þá sagði Drottinn við mig: Seg þeim: Þér skuluð eigi fara þangað og eigi berjast, því að ég er eigi meðal yðar, svo að þér bíðið eigi ósigur fyrir óvinum yðar.43Og ég talaði til yðar, en þér gegnduð ekki, heldur óhlýðnuðust skipun Drottins og gjörðuð yður svo djarfa að leggja upp á fjöllin.44Fóru þá Amorítar, sem bjuggu á fjöllum þessum, í móti yður, eltu yður, eins og býflugur gjöra, og tvístruðu yður alla leið frá Seír til Horma.45Og þér hurfuð aftur og grétuð frammi fyrir Drottni, en Drottinn heyrði ekki bænir yðar og hlýddi ekki á yður.46Þannig hélduð þér kyrru fyrir í Kades langan tíma, eins langan tíma og þér dvölduð þar.

1.1 Orð Móse í Móab 5Mós 4.45-49 – öllum Ísraelsmönnum 5Mós 5.1; 27.9; 29.1
1.4 Síhon og Óg 5Mós 2.24-3.17; 4.46-49; 4Mós 21.21-35; Jós 2.10; 12.2-6; 13.15-31; Slm 136.17-22
1.7 Snúið ykkur 5Mós 1.40; 2.1,3; 3.1
1.8 Drottinn sór að gefa land 5Mós 1.35; 6.10; 7.13; 8.1; 9.5; 10.11; 11.9; 26.3,15; 31.7,21,23; 34.4; 1Mós 12.7; 15.7-19; 26.2-5; 28.13-15; Jós 1.6; 5.6; 21.43; Sír 44.21
1.9 Embættismenn skipaðir 5Mós 16.18, 2Mós 18.13-26; 4Mós 11.11-17 – skyldur þeirra 5Mós 16.18-20; 17.8-13; 25.1-3; sbr 2Mós 23.2-8
1.10 Jafnmörg stjörnum himins 5Mós 10.22, 1Mós 15.5; 22.17; VDan 3.13; Heb 11.12
1.11 Guð feðranna 5Mós 1.21; 4.1; 6.3; 12.1; 26.7; 27.3; 2Mós 3.13; Jós 18.3; Dóm 2.12
1.16 Rannsaka mál 5Mós 17.4; Jóh 7.51
1.17 Ekki gjöra mannamun 3Mós 19.15; Okv 24.23; Jak 2.9; sbr 5Mós 10.17
1.19 Landið kannað, kurr lýðsins 4Mós 13-14
1.21 Landið til eignar 5Mós 4.5,14,22; 6.1; 7.1; 9.5; 11.8,11,29; 12.29; 23.20; 28.21,36; 30.16; 31.13; 32.47; Jós 1.11; sbr 5Mós 9.1 – Guð feðranna 5Mós 1.11+
1.25 Gott land 5Mós 1.35; 3.25; 4.21; 6.18; 8.7, 9.6; 11.17; 4Mós 14.7; Jós 23.13
1.28 Borgir girtar múrum 5Mós 9.1-2; 4Mós 13.28; Jós 14.12
1.29 Óttist ekki 5Mós 7.21; 20.1-4; 31.6; Jós 1.9
1.30 Verk Drottins 5Mós 29.2-3 – Guð mun berjast 5Mós 3.22+
1.31 Guð þinn bar þig Hós 11.3-4 – Ísrael, sonur Guðs 2Mós 4.22+ ; Jes 63.16; 64.7; Jer 31.9; Sír 36.17
1.33 Ský 2Mós 13.21+
1.35 Ill kynslóð 5Mós 2.14; 4Mós 14.22-23,29-30; Slm 95.11; Heb 3.16 – gott land 5Mós 1.8+
1.36 Kaleb 4Mós 14.24; 26.65 – synir hans Jós 14.6-15; Dóm 1.20
1.37 Drottinn reiðist Móse 5Mós 3.26; 4.21; 32.50-52; sbr 4Mós 20.12
1.38 Jósúa 5Mós 3.21,28; 31.7-8; 34.9; 4Mós 27.18,23; Jós 1.1,5-9
1.39 Börn að herfangi 4Mós 14.3
1.40 Snúa á leið 5Mós 1.7+
1.42 Ekki með ykkur 5Mós 31.17; 4Mós 14.43
1.44 Býflugur Slm 118.12 – tvístra 4Mós 14.45