1Á níunda ríkisári Sedekía konungs í Júda, í tíunda mánuðinum, kom Nebúkadresar konungur í Babýlon og allur her hans til Jerúsalem, og settust um hana.2En á ellefta ríkisári Sedekía, í fjórða mánuðinum, níunda dag mánaðarins, var brotið skarð inn í borgina.3En er Jerúsalem var unnin, komu allir hershöfðingjar Babelkonungs og settust að í Miðhliðinu, þeir Nergalsareser, höfðingi í Símmagir, Nebúsarsekím hirðstjóri og margir aðrir höfðingjar Babelkonungs.4En er Sedekía Júdakonungur og allir hermennirnir sáu þetta, flýðu þeir og fóru um nóttina út úr borginni, veginn sem liggur út að konungsgarðinum, gegnum hliðið milli beggja múranna og héldu leiðina til Jórdandalsins.5En her Kaldea veitti þeim eftirför og náði Sedekía á Jeríkó-völlum. Tóku þeir hann og fluttu hann til Ribla í Hamathéraði til Nebúkadresars Babelkonungs. Hann kvað upp dóm hans.6Lét Babelkonungur drepa sonu Sedekía í Ribla fyrir augum hans. Sömuleiðis lét Babelkonungur drepa alla tignarmenn í Júda.7En Sedekía lét hann blinda og binda eirfjötrum til þess að flytja hann til Babýlon.8Kaldear brenndu konungshöllina og hús lýðsins og rifu niður múra Jerúsalem.9En leifar lýðsins, þá er eftir voru í borginni, og liðhlaupana, þá er hlaupist höfðu í lið með honum, og leifar lýðsins, þá er eftir voru, herleiddi Nebúsaradan lífvarðarforingi til Babýlon,10en af almúgamönnum, sem ekkert áttu, lét Nebúsaradan lífvarðarforingi nokkra verða eftir í Júda og gaf þeim þann dag víngarða og akra.11En um Jeremía gaf Nebúkadresar Babelkonungur út svolátandi skipun fyrir milligöngu Nebúsaradans lífvarðarforingja:12Tak hann og annast hann og gjör honum ekkert illt, heldur gjör við hann svo sem hann mælist til við þig!13Þá sendu þeir Nebúsaradan lífvarðarforingi og Nebúsasban hirðstjóri og Nergalsareser hershöfðingi og allir yfirmenn Babelkonungs14menn og létu sækja Jeremía í varðgarðinn og seldu hann í hendur Gedalja Ahíkamssyni, Safanssonar, að hann færi með hann heim. Og þannig varð hann kyrr meðal lýðsins.15Meðan Jeremía sat innilokaður í varðgarðinum, hafði orð Drottins komið til hans:16Far og seg við Ebed-Melek Blálending: Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Sjá, ég læt orð mín um ógæfu, en eigi um hamingju, koma fram á þessari borg, og þau skulu rætast fyrir augum þínum á þeim degi.17En ég skal frelsa þig á þeim degi segir Drottinn og þú skalt ekki seldur verða á vald mönnum þeim, er þú hræðist,18heldur skal ég láta þig komast undan og þú skalt ekki falla fyrir sverði, og þú skalt hljóta líf þitt að herfangi, af því að þú hefir treyst mér segir Drottinn.

39.1 Níunda ár, tíundi mánuður Jer 52.4; 2Kon 25.1 – Nebúkadresar Jer 21.2+
39.2 Rofinn Jer 52.7; 2Kon 25.4
39.3 Hirðstjóri Jer 39.13; sbr Dan 1.3
39.4-10 Sedekía flýr, næst og er dæmdur Jer 52.7-11; 2Kon 25.4-7
39.8 Hús almennings Jer 17.27
39.9 Nebúsaradan Jer 39.11; 41.10; 52.12; 2Kon 25.8
39.12 Gæta Jer 40.4
39.14 Varðhald Jer 32.2+ – Gedalja Jer 26.24+
39.16 Ebed-Melek Jer 38.7-13
39.17 Björgun Jer 20.13
39.18 Komast undan Jer 21.9