1En síðar meir mun ég úthella anda mínum yfir allt hold. Synir yðar og dætur yðar munu spá, gamalmenni yðar mun drauma dreyma, ungmenni yðar munu sjá sjónir.2Já, einnig yfir þræla og ambáttir mun ég á þeim dögum úthella anda mínum.3Og ég mun láta tákn verða á himni og á jörðu: blóð, eld og reykjarstróka.4Sólin mun snúast í myrkur og tunglið í blóð, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur.5Og hver sem ákallar nafn Drottins, mun frelsast. Því að á Síonfjalli og í Jerúsalem mun frelsun verða, eins og Drottinn hefir sagt, meðal flóttamannanna, sem Drottinn kallar.6Sjá, á þeim dögum og í þann tíð, er ég sný við högum Júda og Jerúsalem,7vil ég saman safna öllum þjóðum og færa þær ofan í Jósafatsdal og ganga þar í dóm við þær vegna lýðs míns og arfleifðar minnar Ísraels, af því að þeir hafa dreift henni meðal heiðingjanna og skipt sundur landi mínu.8Þeir köstuðu hlutum um lýð minn og gáfu svein fyrir skækju og seldu mey fyrir vín og drukku.9Og hvað viljið þér mér, Týrus og Sídon og öll héruð Filisteu! Ætlið þér að gjalda mér það, sem yður hefir gjört verið, eða ætlið þér að gjöra mér eitthvað? Afar skyndilega mun ég láta gjörðir yðar koma sjálfum yður í koll.10Þér hafið rænt silfri mínu og gulli og flutt bestu gersemar mínar í musteri yðar.11Júdamenn og Jerúsalembúa hafið þér selt Íónum til þess að flytja þá langt burt frá átthögum þeirra.12Sjá, ég mun kalla þá frá þeim stað, þangað sem þér hafið selt þá, og ég mun láta gjörðir yðar koma sjálfum yður í koll.13Og ég mun selja sonu yðar og dætur Júdamönnum, og þeir munu selja þá Sabamönnum, fjarlægri þjóð, því að Drottinn hefir sagt það.14Boðið þetta meðal þjóðanna: Búið yður í heilagt stríð! Kveðjið upp kappana! Allir herfærir menn komi fram og fari í leiðangur!15Smíðið sverð úr plógjárnum yðar og lensur úr sniðlum yðar! Heilsuleysinginn hrópi: Ég er hetja!16Flýtið yður og komið, allar þjóðir sem umhverfis eruð, og safnist saman. Drottinn, lát kappa þína stíga niður þangað!17Hreyfing skal koma á þjóðirnar og þær skulu halda upp í Jósafatsdal, því að þar mun ég sitja til þess að dæma allar þjóðirnar, sem umhverfis eru.18Bregðið sigðinni, því að kornið er fullþroskað, komið og troðið, því að vínlagarþróin er full, það flóir út af lagarkerunum, því að illska þeirra er mikil.19Flokkarnir þyrpast saman í dómsdalnum, því að dagur Drottins er nálægur í dómsdalnum.20Sól og tungl eru myrk orðin, og stjörnurnar hafa misst birtu sína.21En Drottinn þrumar frá Síon og lætur raust sína gjalla frá Jerúsalem, svo að himinn og jörð nötra. En Drottinn er athvarf sínum lýð og vígi Ísraelsmönnum.22Og þér skuluð viðurkenna, að ég er Drottinn, Guð yðar, sem bý á Síon, mínu heilaga fjalli. Og Jerúsalem skal vera heilög og útlendingar skulu ekki framar inn í hana koma.23Á þeim degi munu fjöllin löðra í vínberjalegi og hálsarnir fljóta í mjólk og allir lækir í Júda renna vatnsfullir. Og lind mun fram spretta undan húsi Drottins og vökva dal akasíutrjánna.24Egyptaland mun verða að öræfum og Edóm að óbyggðri eyðimörk, sökum ofríkis við Júdamenn, af því að þeir úthelltu saklausu blóði í landi þeirra.25En Júda mun eilíflega byggt verða og Jerúsalem frá kyni til kyns.26Og ég mun láta hefnt verða blóðs þeirra, sem ég hefi ekki enn hefnt, og Drottinn mun búa kyrr á Síon.

3.1-5 Sbr Post 2.17-21 – andinn og spádómsgáfan 4Mós 11.25-29
3.4 Sól myrkvast Opb 6.12, Jl 2.10+ – dagur Drotins Jl 1.15+
3.5 Sbr Róm 10.13 – ákalla nafn Drottins 1Kon 18.24; 2Kon 5.11; Sef 3.9; Sak 13.9; Slm 80.19; 99.6; 116.4; Hlj 3.55; Post 22.16 – frelsun á Síon fjalli Ób 17; Opb 14.1 – Drottinn kallar Jes 42.6; 51.2; 55.5; Róm 1.6; 8.28; 9.11,24; 1Kor 1.9,24,26; Gal 1.15; 1Þess 2.12; 5.24; 1Pét 2.9