1Vakna þú, vakna þú, íklæð þig styrk þínum, Síon! Klæð þig skartklæðum þínum, Jerúsalem, þú hin heilaga borg! því að enginn óumskorinn eða óhreinn skal framar inn í þig ganga.2Hrist af þér rykið, rís upp og sest í sæti þitt, Jerúsalem! Losa þú af þér hálsfjötra þína, þú hin hertekna, dóttirin Síon!3Svo segir Drottinn: Þér voruð seldir fyrir ekkert, þér skuluð og án silfurs leystir verða.4Svo segir hinn alvaldi Drottinn: Til Egyptalands fór lýður minn forðum til þess að dveljast þar um hríð, og Assýringar kúguðu hann heimildarlaust.5Og nú, hvað hefi ég hér að gjöra segir Drottinn þar sem lýður minn hefir verið burt numinn fyrir ekkert? Yfirdrottnarar hans dramba segir Drottinn og stöðugt er nafn mitt smáð liðlangan daginn.6Fyrir því skal lýður minn fá að þekkja nafn mitt, fá að reyna það á þeim degi, að það er ég, sem segi: Sjá, hér er ég!7Hversu yndislegir eru á fjöllunum fætur fagnaðarboðans, sem friðinn kunngjörir, gleðitíðindin flytur, hjálpræðið boðar og segir við Síon: Guð þinn er setstur að völdum!8Varðmenn þínir hefja upp raustina allir í einu, þeir æpa fagnaðaróp, því að með eigin augum sjá þeir Drottin hverfa aftur til Síonar.9Hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp allar í einu, þér eyðirústir Jerúsalem, því að Drottinn huggar lýð sinn, leysir Jerúsalem.10Drottinn hefir beran gjört heilagan armlegg sinn í augsýn allra þjóða, og öll endimörk jarðarinnar skulu sjá hjálpræði Guðs vors.11Farið burt, farið burt, gangið út þaðan! Snertið ekkert óhreint! Gangið burt þaðan, hreinsið yður, þér sem berið ker Drottins!12Því að eigi skuluð þér í flýti brott ganga né fara með skyndingu, því að Drottinn fer fyrir yður í fararbroddi og Guð Ísraels gengur aftastur í flokki yðar.13Sjá, þjónn minn mun giftusamur verða, hann mun verða mikill og veglegur og mjög hátt upp hafinn.14Eins og margir urðu agndofa af skelfingu yfir honum svo afskræmd var ásýnd hans framar en nokkurs manns og mynd hans framar en nokkurs af mannanna sonum15eins mun hann vekja undrun margra þjóða, og konungar munu afturlykja munni sínum fyrir honum. Því að þeir munu sjá það, sem þeim hefir aldrei verið frá sagt, og verða þess áskynja, er þeir hafa aldrei heyrt.

52.1 Vakna þú Jes 51.9,17 – hin heilaga borg Jes 48.2 – enginn óumskorinn Esk 44.9
52.2 Rykið sbr Jes 47.1- hin hernumda Jes 49.25; sbr Jer 48.46
52.3 Án endurgjalds Jes 45.13+ ; sbr 1Pét 1.18
52.4 Til Egyptalands 1Mós 46-47 – Assýringar kúguðu Jes 10.24
52.5 Stjórnendur kveina Jes 49.7 – nafn mitt smáð Esk 36.20-22; Róm 2.24
52.6 Játa Jes 49.23+ – nafn mitt Esk 39.7 – það er ég Jes 41.4+ – sjá, hér er ég Jes 40.9-10; 58.9
52.7 Fagnaðarboðans Jes 40.9+ ; Nah 2.1; Róm 10.15; Opb 14.6 – sestur að völdum Slm 93.1+
52.8 Varðmenn Jes 56.10; Jer 6.17; Esk 3.17; Hab 2.1 – Drottinn hverfur til Síonar Esk 43.4
52.9 Drottinn huggar Jes 40.1+ – leysir Jerúsalem Jes 41.14+
52.10 Í augsýn allra þjóða sbr Jes 40.5 – armleggur Drottins Jes 40.10+ – endimörk jarðarinnar Jes 45.22+ ; Slm 98.1-4
52.11 Haldið af stað Jes 48.20+ ; 2Kor 6.17; Opb 18.4
52.12 Í flýti 2Mós 12.11,33-34; 5Mós 16.3 – fer fyrir Jes 45.2+ – á eftir 2Mós 14.19; Jes 58.8
52.13 Þjónn minn Jes 42.1+ ; sbr Jer 23.5 – veglegur, upp hafinn Jes 57.15; Jóh 12.32; Post 3.13; Fil 2.9
52.14 Hryllti við honum Jes 49.7
52.15 Sjá Róm 15.21 – undrun þjóða Mík 7.16 – konungar Jes 49.7 – sjá, verða áskynja Jes 64.3