1Eftir þetta fór Páll frá Aþenu og kom til Korintu.2Þar hitti hann Gyðing nokkurn, Akvílas að nafni, ættaðan frá Pontus, nýkominn frá Ítalíu, og Priskillu konu hans, en Kládíus hafði skipað svo fyrir, að allir Gyðingar skyldu fara burt úr Róm. Páll fór til þeirra,3og af því hann stundaði sömu iðn, settist hann að hjá þeim og vann með þeim. Þeir voru tjaldgjörðarmenn að iðn.4Hann ræddi við menn í samkunduhúsinu hvern hvíldardag og reyndi að sannfæra bæði Gyðinga og Grikki.5Þegar þeir Sílas og Tímóteus komu norðan frá Makedóníu, gaf Páll sig allan að boðun orðsins og vitnaði fyrir Gyðingum, að Jesús væri Kristur.6En er þeir stóðu í gegn og lastmæltu, hristi hann dustið af klæðum sínum og sagði við þá: Blóð yðar komi yfir höfuð yðar. Ekki er mér um að kenna. Upp frá þessu fer ég til heiðingjanna.7Og hann fór þaðan og kom í hús manns nokkurs, er hét Títus Jústus og dýrkaði Guð. Hús hans var hjá samkunduhúsinu.8Krispus samkundustjóri tók trú á Drottin og allt heimili hans, og margir Korintumenn, sem á hlýddu, tóku trú og létu skírast.9En Drottinn sagði við Pál um nótt í sýn: Óttast þú eigi, heldur tala þú og þagna ekki,10ég er með þér. Enginn skal ráðast að þér og vinna þér mein, því að ég á margt fólk í þessari borg.11Hann var þar um kyrrt þrjú misseri og kenndi þeim orð Guðs.12En þegar Gallíón var landstjóri í Akkeu, bundust Gyðingar samtökum gegn Páli, drógu hann fyrir dómstólinn13og sögðu: Maður þessi tælir menn til að dýrka Guð gagnstætt lögmálinu.14Páll bjóst til að svara, og þá sagði Gallíón við Gyðingana: Væri hér um einhver lögbrot eða illvirki að ræða, bæri mér að sinna yður, Gyðingar.15En fyrst það eru þrætur um orð og nöfn og lögmál yðar, þá ráðið sjálfir fram úr því. Dómari í þeim sökum vil ég ekki vera.16Og hann rak þá burt frá dómstólnum.17Þá tóku þeir allir Sósþenes samkundustjóra og fóru að berja hann fyrir framan dómstólinn, og lét Gallíón sig það engu skipta.18Páll var þar enn um kyrrt allmarga daga, kvaddi síðan bræðurna og sigldi til Sýrlands og með honum Priskilla og Akvílas. Lét hann áður skera hár sitt í Kenkreu, því að heit hafði hvílt á honum.19Þeir komu til Efesus. Þar skildi hann við þá, en gekk sjálfur inn í samkunduhúsið og ræddi við Gyðinga.20Þeir báðu hann að standa lengur við, en hann varð ekki við því,21heldur kvaddi þá og sagði: Ég skal koma aftur til yðar, ef Guð lofar. Síðan lét hann í haf frá Efesus,22lenti í Sesareu, fór upp eftir til Jerúsalem og heilsaði söfnuðinum. Síðan hélt hann norður til Antíokkíu.23Þegar hann hafði dvalist þar um hríð, hélt hann af stað og fór eins og leið liggur um Galataland og Frýgíu og styrkti alla lærisveinana.24En Gyðingur nokkur, Apollós að nafni, ættaður frá Alexandríu, kom til Efesus. Hann var maður vel máli farinn og fær í ritningunum.25Hann hafði verið fræddur um veg Drottins, og brennandi í andanum talaði hann og kenndi kostgæfilega um Jesú. Þó þekkti hann aðeins skírn Jóhannesar.26Þessi maður tók nú að tala djarflega í samkunduhúsinu. Priskilla og Akvílas heyrðu til hans, tóku hann að sér og skýrðu nánar fyrir honum Guðs veg.27Hann fýsti að fara yfir til Akkeu. Bræðurnir hvöttu hann til þess og rituðu lærisveinunum þar að taka honum vel. Hann kom þangað og varð til mikillar hjálpar þeim, sem fyrir Guðs náð höfðu tekið trú,28því hann hrakti skarplega rök Gyðinga í allra áheyrn og sannaði af ritningunum, að Jesús væri Kristur.

18.2 Akvílas og Priskilla Post 18.18,26; Róm 16.3-4; 1Kor 16.19; 2Tím 4.19
18.3 Stunduðu sömu iðn Post 20.34; 1Kor 4.12; 9.13-15; 1Þess 2.9; 2Þess 3.8
18.5 Sílas Post 15.22+ – Tímóteus Post 16.1+ – frá Makedóníu Post 17.14-15; 1Þess 1.1; 3.1-6; 2Þess 1.1 – Jesús er Kristur Post 5.42+
18.6 Frá Gyðingum til heiðingja Post 13.45-46; 28.28 – hrista dustið Matt 10.14+ og hlst.; sbr Post 22.23 – að þið farist Matt 27.25+ ; Post 5.28 – ekki mér að kenna Post 20.26
18.7 Sótti samkundu … Post 13.43+
18.8 Krispus 1Kor 1.14 – og allt heimili hans Post 10.2+
18.9 Páll sér sýn Post 9.12; 10.3; 13.31; 16.9-10; 23.11; 26.16,19; 27.23
18.9-10 Óttast þú eigi … Jes 41.10; 43.5; Jer 1.8; Post 27.24; sbr 1Kor 2.3
18.10 Fólk Guðs Post 15.14
18.13 Gegn lögmálinu sbr Post 17.7
18.14-15 Ekki lögbrot Post 23.29; 25.18-19
18.15 Lögmál ykkar Jóh 18.31 – snertir ekki Rómarétt Post 16.35-39; 17.8-9; 19.37-38; 23.29; 24.20-22; 26.31-32
18.18 Priskilla og Akvílas Post 18.2+ – skar hár sitt 4Mós 6.9-18; Post 21.23-27
18.19 Efesus Post 19.1+ – í samkunduhúsi Post 17.2+
18.21 Kem aftur ef Guð lofar Róm 1.10; 1Kor 4.19
18.22 Sesarea Post 23.23+ – söfnuðurinn Post 5.11+ – Antíokkía Post 6.5; 11.19; 13.1; 14.26; 15.22; Gal 2.11
18.23 Galataland Post 16.6+ – lærisveinar Post 6.1+
18.24 Apollós Post 19.1; 1Kor 1.12; 3.4-6,22; 4.6; 16.12; Tít 3.13
18.25 Vegur Drottins Post 9.2+ – brennandi í andanum Róm 12.11 – aðeins skírn Jóhannesar Post 19.3
18.26 Í samkunduhúsinu Post 19.8; sbr 17.2+ – Priskilla og Akvílas Post 18.2+
18.27 Kristnir menn Post 1.15+ – meðmælabréf 2Kor 3.1 – lærisveinarnir Post 6.1+
18.28 Sannaði af ritningunum Post 9.22; 17.3 – Jesús er Kristur Post 5.42+