1Hvað eigum vér þá að segja um Abraham, forföður vorn, hvað ávann hann?2Ef hann réttlættist af verkum, þá hefur hann hrósunarefni, en ekki fyrir Guði.3Því hvað segir ritningin: Abraham trúði Guði, og það var reiknað honum til réttlætis.4Þeim sem vinnur verða launin ekki reiknuð af náð, heldur eftir verðleika.5Hinum aftur á móti, sem ekki vinnur, en trúir á hann sem réttlætir óguðlegan, er trú hans reiknuð til réttlætis.6Eins og líka Davíð lýsir þann mann sælan, sem Guð tilreiknar réttlæti án tillits til verka:7Sælir eru þeir, sem afbrotin eru fyrirgefin og syndir þeirra huldar.8Sæll er sá maður, sem Drottinn tilreiknar ekki synd.9Nær þá sæluboðun þessi aðeins til umskorinna manna? Eða líka til óumskorinna? Vér segjum: Trúin var Abraham til réttlætis reiknuð.10Hvernig var hún þá tilreiknuð honum? Umskornum eða óumskornum? Hann var ekki umskorinn, heldur óumskorinn.11Og hann fékk tákn umskurnarinnar sem staðfestingu þess réttlætis af trú, sem hann átti óumskorinn. Þannig skyldi hann vera faðir allra þeirra, sem trúa óumskornir, til þess að réttlætið tilreiknist þeim,12og eins faðir þeirra umskornu manna, sem eru ekki aðeins umskornir heldur feta veg þeirrar trúar, er faðir vor Abraham hafði óumskorinn.13Ekki var Abraham eða niðjum hans fyrir lögmál gefið fyrirheitið, að hann skyldi verða erfingi heimsins, heldur fyrir trúar-réttlæti.14Ef lögmálsmennirnir eru erfingjar, er trúin ónýtt og fyrirheitið að engu gjört.15Því að lögmálið vekur reiði. En þar sem ekki er lögmál, þar eru ekki heldur lögmálsbrot.16Því er fyrirheitið byggt á trú, til þess að það sé af náð, og megi stöðugt standa fyrir alla niðja hans, ekki fyrir þá eina, sem hafa lögmálið, heldur og fyrir þá, sem eiga trú Abrahams. Hann er faðir vor allra,17eins og skrifað stendur: Föður margra þjóða hef ég sett þig. Og það er hann frammi fyrir Guði, sem hann trúði á, honum sem lífgar dauða og kallar fram það, sem ekki er til eins og það væri til.18Abraham trúði með von, gegn von, að hann skyldi verða faðir margra þjóða, samkvæmt því sem sagt hafði verið: Svo skal afkvæmi þitt verða.19Og ekki veiklaðist hann í trúnni þótt hann minntist þess, að hann var kominn að fótum fram hann var nálega tíræður, og að Sara gat ekki orðið barnshafandi sakir elli.20Um fyrirheit Guðs efaðist hann ekki með vantrú, heldur gjörðist styrkur í trúnni. Hann gaf Guði dýrðina,21og var þess fullviss, að hann er máttugur að efna það, sem hann hefur lofað.22Fyrir því var það honum og til réttlætis reiknað.23En að það var honum tilreiknað, það var ekki ritað hans vegna einungis,24heldur líka vor vegna. Oss mun það tilreiknað verða, sem trúum á hann, sem uppvakti Jesú, Drottin vorn, frá dauðum,25hann sem var framseldur vegna misgjörða vorra og vegna réttlætingar vorrar uppvakinn.

4.2 Mætti hrósa sér Róm 2.17+
4.3 Sbr 1Mós 15.6; Róm 4.9; Gal 3.6-9; Jak 2.20-24 – Abraham trúði 1Mós 12.1-5
4.4 Eftir verðleika, af náð Rom 11.6; Matt 20.1-16; Lúk 17.7-11
4.5 Réttlæti, lögmál, trú Gal 2.16
4.7-8 Sbr Slm 32.1-2
4.11 Abraham umskorinn 1Mós 17.9-14 – faðir þeirra sem trúa Gal 3.7-9
4.13 Fyrirheit 1Mós 12.2-3; 22.15-18; Gal 3.15-16 – Abraham trúði Heb 11.8-12
4.15 Hlutverk lögmálsins Róm 3.20; 5.13,20-21; 7.7-13; 1Kor 15.56; Gal 3.10,19-22
4.16 Erfingjar fyrir trú Gal 3.18,23-29
4.17 Sbr 1Mós 17.5 – Guð gerir dauða lifandi 5Mós 32.39; Esk 37.1-10; Heb 11.19
4.18 Sbr 1Mós 15.5
4.19 Nær tíræður 1Mós 17.1,15-22
4.20 Trúa á fyrirheitið Heb 6.15; 11.32-40 – gefa Guði dýrðina Jós 7.19; 1Sam 6.5
4.21 Guð efnir heit sín Jer 32.17-24; 1Mós 18.14; Lúk 1.35-38
4.22 Sbr 1Mós 15.6
4.24 Og okkar vegna Róm 15.4 – vakti upp frá dauðum Róm 10.9
4.25 Vegna okkar misgjörða Jes 53.6; Róm 8.32 – uppvakinn vegna réttlætingar vorrar 1Kor 15.17; Kól 2.11-13