1Þessi er blessunin, er guðsmaðurinn Móse blessaði með Ísraelsmenn, áður en hann andaðist:2Drottinn kom frá Sínaí og rann upp fyrir þeim á Seír. Hann lét ljós sitt skína frá Paranfjöllum og kom frá hinum helgu tíu þúsundum, eldingarnar í hægri hendi hans voru þeim til varnar.3Já, hann elskar sinn lýð, allir hans heilögu eru í hans hendi. Og þeir fara eftir leiðsögu þinni, sérhver þeirra meðtekur af orðum þínum.4Móse setti oss lögmál, óðal Jakobs safnaðar.5Og Drottinn varð konungur í Jesjúrún, þá er höfðingjar lýðsins söfnuðust saman, ættkvíslir Ísraels allar samt.6Lifi Rúben og deyi ekki, þannig að menn hans verði fáir að tölu.7Og þetta er blessunin um Júda: Heyr, Drottinn, bænir Júda, og leið hann aftur til þjóðar sinnar, með höndum sínum hefir hann barist fyrir hana og ver þú honum hjálp gegn fjendum hans.8Og um Leví sagði hann: Túmmím þín og úrím heyra mönnum hollvinar þíns, þess er þú reyndir hjá Massa og barðist gegn hjá Meríbavötnum,9heyra þeim, er sagði um föður og móður: Ég sá þau ekki, er eigi kannaðist við bræður sína og leit eigi við börnum sínum. Því að þeir varðveittu orð þitt og héldu sáttmála þinn.10Þeir kenna Jakob dóma þína og Ísrael lögmál þitt, þeir bera reykelsi fyrir vit þín og alfórn á altari þitt.11Blessa, Drottinn, styrkleik hans, og lát þér þóknast verk handa hans. Myl sundur lendar óvina hans og þeirra er hata hann, svo að þeir fái eigi risið upp aftur.12Um Benjamín sagði hann: Ljúflingur Drottins býr óhultur hjá honum. Hann verndar hann alla daga og hefir tekið sér bólfestu milli hálsa hans.13Um Jósef sagði hann: Blessað af Drottni er land hans með himinsins dýrmætustu gjöf, dögginni, og með djúpinu, er undir hvílir,14með hinu dýrmætasta, er sólin framleiðir, og með hinu dýrmætasta, sem tunglin láta spretta,15með hinu besta á hinum eldgömlu fjöllum og með hinu dýrmætasta á hinum eilífu hæðum,16með hinu dýrmætasta af jörðinni og öllu því, sem á henni er, og með þóknun hans, sem bjó í þyrnirunninum. Þetta komi yfir höfuð Jósefs og í hvirfil hans, sem er höfðingi meðal bræðra sinna!17Prýðilegur er frumgetinn uxi hans, og horn hans eru sem horn vísundarins. Með þeim rekur hann þjóðir undir, allt til endimarka jarðarinnar. Þetta eru tíu þúsundir Efraíms, og þetta eru þúsundir Manasse!18Um Sebúlon sagði hann: Gleðst þú, Sebúlon, yfir sæförum þínum, og þú, Íssakar, yfir tjöldum þínum!19Þjóðflokkum bjóða þeir til fjallsins, þar fórna þeir réttum fórnum, því að þeir munu sjúga í sig nægtir hafsins og hina huldustu fjársjóðu sandsins.20Um Gað sagði hann: Blessaður sé sá, sem veitir Gað landrými! Hann hefir lagst niður sem ljónynja, og rífur sundur arm og hvirfil.21Hann valdi sér landið, er fyrst var tekið, því að þar var landshluti geymdur ætthöfðingja. Og hann kom með höfðingjum lýðsins, hann framkvæmdi réttlæti Drottins og dóma hans ásamt Ísrael.22Um Dan sagði hann: Dan er ljónshvolpur, sem kemur stökkvandi frá Basan.23Um Naftalí sagði hann: Naftalí, saddur velþóknunar og fullur af blessun Drottins, tak þú sjó og Suðurland til eignar!24Um Asser sagði hann: Blessaðastur af sonunum sé Asser! Veri hann eftirlæti bræðra sinna og vökvi fót sinn í olíu!25Slár þínar séu af járni og eir, og afl þitt réni eigi fyrr en ævina þrýtur!26Enginn er sem Guð Jesjúrúns, er ekur yfir himininn til hjálpar þér og á skýjunum í tign sinni!27Hæli er hinn eilífi Guð, og hið neðra eru eilífir armar. Hann stökkti óvinum þínum undan þér og sagði: Gjöreyð!28Og síðan bjó Ísrael óhultur, lind Jakobs ein sér, í landi korns og vínlagar, þar sem himinninn lætur dögg drjúpa.29Heill þér, Ísrael! Hver er sem þú? lýður, sigursæll fyrir hjálp Drottins! Hann er skjöldur þíns fulltingis, og hann er sverð tignar þinnar. Óvinir þínir munu smjaðra fyrir þér, og þú munt fram bruna á hæðum þeirra.

33.2 Drottinn kom frá Sínaí Slm 68.18 – á Seír Dóm 5.4 – Paranfjöll Hab 3.3
33.3 Guð elskar 5Mós 4.37+ – Ísrael, heilög þjóð 5Mós 7.6+
33.5 Jesjúrún 5Mós 32.15+ – ættbálkar Ísrael Jós 24
33.6 Rúben 1Mós 49.3-4
33.7 Júda 1Mós 49.8-12
33.8 Leví 1Mós 49.5-7 – úrím og túmmín 2Mós 28.30; Esr 2.63 – reyna 5Mós 8.2+ – Meríba 5Mós 6.16; 2Mós 17.1-7; 4Mós 20.1-13
33.9 Fórnfýsi levítanna 2Mós 32.26-29; sbr Matt 19.29 og hlst. – föður og móður Matt 10.37+
33.10 Kenna lög 3Mós 10.11+ ; Sír 45.17 – helgisiðir 1Sam 2.28
33.12 Benjamín 1Mós 49.27 – sá sem elskar Drottinn 1Þess 1.4; 2Þess 2.13
33.13 Jósef 1Mós 49.22-26
33.16 Þyrnirunni 2Mós 3.1-6
33.17 Horn vísundarins sbr 4Mós 23.22+ ; Slm 92.11
33.18 Sebúlon 1Mós 49.13 – Íssakar 1Mós 49.14-15
33.19 Fórna rétt Slm 4.6; 51.21 – gnótt hafsins Jes 60.5
33.20 Gað 1Mós 49.19 – ljónynja 1Mós 49.9; 4Mós 24.9; 1Kro 12.9
33.21 Landið sem fyrst var tekið 5Mós 3.12-17; 4Mós 32 – framfylgja 5Mós 3.18-20, Jós 4.12-13
33.22 Dan 1Mós 49.16-18 – ljónshvolpur 1Mós 49.9
33.23 Naftalí 1Mós 49.21
33.24 Asser 1Mós 49.20
33.26 Enginn er sem Guð 5Mós 3.24; 2Mós 15.11; sbr 5Mós 32.39+ – Jesjúrún 5Mós 32.15+ – skýjin, vagn Guðs Slm 104.3+
33.27 Hæli, athvarf Slm 90.1 – eyða 5Mós 2.34
33.28 Óhultur 5Mós 33.12; Jer 23.6 – ein sér 4Mós 23.9 – dögg af himni 1Mós 27.28
33.29 Heill Slm 1.1+ – Guð er skjöldur Slm 3.4+