1Drottinn talaði við Móse og sagði:2Tala þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Nú vill karl eða kona vinna heit nasírea til þess að helga sig Drottni,3þá skal hann halda sér frá víni og áfengum drykk. Hann skal hvorki drekka vínsýru né sýru úr áfengum drykk, né heldur skal hann drekka nokkurn vínberjalög, og vínber ný eða þurrkuð skal hann eigi eta.4Allan bindindistíma sinn skal hann eigi eta neitt það, sem búið er til af vínviði, hvorki kjarna né hýði.5Allan tíma bindindisheitis hans skal rakhnífur eigi koma á höfuð honum. Uns þeir dagar eru fullnaðir, er hann hefir helgað sig Drottni, skal hann vera heilagur. Skal hann láta höfuðhár sitt vaxa sítt.6Alla þá stund, er hann hefir helgað sig Drottni, skal hann ekki koma nærri líki.7Hann skal ekki saurga sig vegna föður síns, vegna móður sinnar, vegna bróður síns eða vegna systur sinnar, er þau deyja, því að helgun Guðs hans er á höfði honum.8Allan bindindistíma sinn er hann helgaður Drottni.9Og verði einhver maður bráðkvaddur hjá honum, svo að helgað höfuð hans saurgast, þá skal hann raka höfuð sitt á hreinsunardegi sínum. Á sjöunda degi skal hann raka það.10Og á áttunda degi skal hann færa prestinum tvær turtildúfur eða tvær ungar dúfur að dyrum samfundatjaldsins.11Og prestur skal fórna annarri í syndafórn, en hinni í brennifórn og friðþægja fyrir hann, vegna þess að hann hefir syndgast á líki. Og hann skal helga höfuð sitt samdægurs.12Og hann skal helga sig Drottni bindindistíma sinn og færa veturgamla kind í sektarfórn, en fyrri tíminn skal ónýttur, því að helgun hans var saurguð.13Þetta eru ákvæðin um nasíreann: Þegar bindindistími hans er liðinn, skal leiða hann að dyrum samfundatjaldsins.14Og hann skal færa Drottni fórn sína: veturgamalt hrútlamb gallalaust í brennifórn og veturgamla gimbur gallalausa í syndafórn og hrút gallalausan í heillafórn15og körfu með ósýrðu brauði úr fínu mjöli, kökur olíublandaðar og ósýrð flatbrauð olíusmurð, ásamt matfórninni og dreypifórnunum.16Og presturinn skal bera það fram fyrir Drottin og fórna syndafórn hans og brennifórn.17Og hann skal fórna Drottni hrútnum í heillafórn ásamt körfunni með ósýrða brauðinu, og presturinn skal fórna matfórn hans og dreypifórn.18Nasíreinn skal raka helgað höfuð sitt við dyr samfundatjaldsins og taka helgað höfuðhár sitt og kasta því á eldinn undir heillafórninni.19Og prestur skal taka soðna bóginn af hrútnum og eina ósýrða köku úr körfunni og eitt ósýrt flatbrauð og fá nasíreanum það í hendur, þá er hann hefir rakað helgað hár sitt.20Og prestur skal veifa því sem veififórn frammi fyrir Drottni. Það er heilagt og heyrir presti, ásamt bringunni, sem veifa skal, og lærinu, sem fórna skal. Upp frá því má nasíreinn drekka vín.21Þetta eru ákvæðin um nasírea, sem gjörir heit, um fórnargjöf hans Drottni til handa vegna helgunar hans, auk þess sem hann annars hefir efni á. Samkvæmt heitinu, sem hann hefir unnið, skal hann gjöra, eftir ákvæðunum um bindindi hans.22Drottinn talaði við Móse og sagði:23Mæl þú til Arons og sona hans og seg: Með þessum orðum skuluð þér blessa Ísraelsmenn:24Drottinn blessi þig og varðveiti þig!25Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur!26Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið!27Þannig skulu þeir leggja nafn mitt yfir Ísraelsmenn, og ég mun blessa þá.

6.3 Sterkir drykkir Lúk 1.16+ ; sbr Jer 35.5-8
6.5 Rakhnífur Dóm 13.5
6.13 Nasírei Post 21.23-24
6.18 Raka Post 18.18
6.23 Þið skuluð blessa sbr 1Kon 8.56-58; Slm 134.3; Sír 50.23-24
6.24 Varðveiti þig Slm 121.7
6.25 Ásjónu sína Slm 4.7; 31.17; 67.2; 119.135
6.26 Friður Slm 122.6
6.27 Nafn mitt Opb 3.12; 14.1; 22.4