1Son minn, gleym eigi kenning minni, og hjarta þitt varðveiti boðorð mín,2því að langa lífdaga og farsæl ár og velgengni munu þau veita þér í ríkum mæli.3Kærleiki og trúfesti munu aldrei yfirgefa þig. Bind þau um háls þér, rita þau á spjald hjarta þíns,4þá munt þú ávinna þér hylli og fögur hyggindi, bæði í augum Guðs og manna.5Treystu Drottni af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.6Mundu til hans á öllum þínum vegum, þá mun hann gjöra stigu þína slétta.7Þú skalt ekki þykjast vitur, óttast Drottin og forðast illt,8það mun verða heilnæmt fyrir líkama þinn og hressandi fyrir bein þín.9Tigna Drottin með eigum þínum og með frumgróða allrar uppskeru þinnar,10þá munu hlöður þínar verða nægtafullar og vínberjalögurinn flóa út af vínlagarþróm þínum.11Son minn, lítilsvirð eigi ögun Drottins og lát þér eigi gremjast umvöndun hans,12því að Drottinn agar þann, sem hann elskar, og lætur þann son kenna til, sem hann hefir mætur á.13Sæll er sá maður, sem öðlast hefir speki, sá maður, sem hyggindi hlotnast.14Því að betra er að afla sér hennar en að afla silfurs, og arðurinn af henni ágætari en gull.15Hún er dýrmætari en perlur, og allir dýrgripir þínir jafnast ekki á við hana.16Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar, auður og mannvirðingar í vinstri hendi hennar.17Vegir hennar eru yndislegir vegir og allar götur hennar velgengni.18Hún er lífstré þeim, sem grípa hana, og sæll er hver sá, er heldur fast í hana.19Drottinn grundvallaði jörðina með visku, festi himininn af hyggjuviti.20Fyrir þekking hans mynduðust hafdjúpin og drýpur döggin úr skýjunum.21Son minn, varðveit þú visku og gætni, lát þær eigi víkja frá augum þínum,22þá munu þær verða líf sálu þinni og prýði fyrir háls þinn.23Þá muntu ganga óhultur veg þinn og eigi drepa við fæti.24Þegar þú leggst til hvíldar, þarft þú ekki að hræðast, og hvílist þú, mun svefninn verða vær.25Þú þarft ekki að óttast skyndilega hræðslu, né eyðilegging hinna óguðlegu, þegar hún dynur yfir.26Því að Drottinn mun vera athvarf þitt og varðveita fót þinn, að hann verði eigi fanginn.27Synja eigi góðs þeim, er þarfnast þess, ef það er á þínu valdi að gjöra það.28Seg þú ekki við náunga þinn: Far og kom aftur! á morgun skal ég gefa þér ef þú þó átt það til.29Brugga eigi illt gegn náunga þínum, þegar hann býr öruggur hjá þér.30Deil ekki við neinn að ástæðulausu, ef hann hefir ekki gjört þér neitt mein.31Öfunda ekki ofbeldismanninn og haf engar mætur á neinum gjörðum hans.32Því að andstyggð er sá Drottni, er afvega fer, en ráðvandir menn alúðarvinir hans.33Bölvun Drottins er yfir húsi hins óguðlega, en bústað réttlátra blessar hann.34Spottsama spottar hann, en lítillátum veitir hann náð.35Vitrir menn munu heiður hljóta, en heimskingjar bera smán úr býtum.

3.1 Varðveita kenninguna Okv 1.8; 6.20,21; 7.2,3; 5Mós 30.16
3.2 Langlífi Okv 4.10; 9.11, 10.27; 5Mós 4.40
3.3 Spjald hjarta þíns 5Mós 6.6; Jer 31.33; 2Kor 3.3
3.5-6 Treysta Drottni Okv 22.19; Slm 9.11+ ; 55.24+
3.7 Óttast Drottin Okv 8.13+
3.11-12 Drottinn agar 5Mós 8.5; 2Sam 7.14; SSal 11.10; 1Kor 11.31-32
3.15 Gildi spekinnar Okv 8.11+
3.19-20 Guð og spekin Okv 8.22-31, SSal 7.25-26, Sír 24.1-10
3.28 Náungi 3Mós 19.18; Lúk 10.25-37
3.31 Öfunda ekki óguðlega Okv 23.17; 24.1,19; Slm 73.3+
3.32 Drottni andstyggð Okv 6.16-19; 15.8-9,26; 17.15; 20.23; 5Mós 25.16
3.33 Hlutskipti ranglátra Okv 2.22; 24.20; 1Sam 2.9; Jes 3.11; Job 20.4-29; Matt 25.45-46 – hlutskipti réttlátra Okv 10.6-7; Slm 5.13; Jes 3.10; SSal 5.15; Matt 25.46
3.34 Háðskir og hógværir Jak 4.6; 1Pét 5.5