1Guð talaði öll þessi orð og sagði:2Ég er Drottinn Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.3Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.4Þú skalt engar líkneskjur gjöra þér né nokkrar myndir eftir því, sem er á himnum uppi, eður því, sem er á jörðu niðri, eður því, sem er í vötnunum undir jörðinni.5Þú skalt ekki tilbiðja þær og ekki dýrka þær, því að ég, Drottinn Guð þinn, er vandlátur Guð, sem vitja misgjörða feðranna á börnunum, já í þriðja og fjórða lið, þeirra sem mig hata,6en auðsýni miskunn þúsundum, þeirra sem elska mig og varðveita boðorð mín.7Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma, því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt, sem leggur nafn hans við hégóma.8Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.9Sex daga skalt þú erfiða og vinna allt þitt verk,10en sjöundi dagurinn er hvíldardagur helgaður Drottni Guði þínum. Þá skalt þú ekkert verk vinna og ekki sonur þinn eða dóttir þín, þræll þinn eða ambátt þín eða skepnur þínar, eða nokkur útlendingur, sem hjá þér er innan borgarhliða þinna,11því að á sex dögum gjörði Drottinn himin og jörð, hafið og allt sem í þeim er, og hvíldist sjöunda daginn. Fyrir því blessaði Drottinn hvíldardaginn og helgaði hann.12Heiðra föður þinn og móður þína, svo að þú verðir langlífur í því landi, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.13Þú skalt ekki morð fremja.14Þú skalt ekki drýgja hór.15Þú skalt ekki stela.16Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.17Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, ekki þræl hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna, né nokkuð það, sem náungi þinn á.18Allt fólkið heyrði og sá reiðarþrumurnar og eldingarnar og lúðurþytinn og fjallið rjúkandi. Og er fólkið sá þetta, skelfdust þeir og stóðu langt í burtu.19Þeir sögðu þá við Móse: Tala þú við oss og vér skulum hlýða, en lát ekki Guð tala við oss, að vér deyjum ekki.20Og Móse sagði við fólkið: Óttist ekki, því að Guð er kominn til þess að reyna yður og til þess að hans ótti sé yður fyrir augum, svo að þér syndgið ekki.21Stóð fólkið þá kyrrt langt í burtu, en Móse gekk að dimma skýinu, sem Guð var í.22Drottinn mælti við Móse: Svo skalt þú segja Ísraelsmönnum: Þér hafið sjálfir séð, að ég hefi talað til yðar af himnum.23Þér skuluð eigi til búa aðra guði jafnhliða mér. Guði af silfri eða guði af gulli skuluð þér ekki búa yður til.24Þú skalt gjöra mér altari af torfi, og á því skalt þú fórna brennifórnum þínum og þakkarfórnum, sauðum þínum og nautum. Alls staðar þar sem ég læt minnast nafns míns, mun ég koma til þín og blessa þig.25En gjörir þú mér altari af steinum, þá mátt þú ekki hlaða það af höggnu grjóti, því að berir þú meitil á það, þá vanhelgar þú það.26Og eigi mátt þú þrep upp ganga að altari mínu, svo að blygðun þín opinberist þar ekki.

20.1 Boðorðin tíu Jer 7.9; Hós 4.2; Mrk 10.19 og hlst.; Róm 13.9
20.2 Ég er Drottinn Dóm 6.8-10; Jes 43.11; 44.24; Slm 81.11 – þrælahúsið 2Mós 13.3,14; 5Mós 5.6; 6.12; 7.8; 8.14; 13.6,11; Jós 24.17; Dóm 6.8; Jer 34.13; Mík 6.4
20.3 Ekki aðra guði 2Mós 34.14; Jer 25.6; Hós 3.1; 13.4; Slm 81.10; sbr 1Kon 11.4-8
20.4 Engar líkneskjur 2Mós 34.17; 3Mós 19.4; 26.1; 5Mós 4.15-20; sbr 2Mós 32.1-6; 1Kon 12.26-29
20.5 Afbrýðisamur Guð 2Mós 34.14; 5Mós 4.24; 6.15
20.5-6 Í þriðja og fjórða lið … þúsundum 2Mós 34.7; 4Mós 14.18; 5Mós 7.9-10
20.7 Leggja við hégóma 2Mós 22.27; 3Mós 19.12; Matt 5.33; 7.21; sbr 3Mós 24.10-16,23
20.8 Hvíldardagurinn 2Mós 16.23,29; 3Mós 19.3; 23.3; sbr 4Mós 15.32-36; Lúk 13.14-16+
20.11 Á sex dögum … sjöunda daginn 1Mós 2.2-3
20.12 Heiðra föður þinn og móður 2Mós 21.17; 3Mós 19.3,32; 5Mós 27.16; Sír 3.1-16; Lúk 2.51; Ef 6.2-3; sbr 2Sam 15-18; Matt 15.4-9
20.13 Ekki morð fremja 2Mós 21.12-15; 1Mós 9.5-6; 3Mós 24.17; Matt 5.21; Jak 2.11; sbr 1Kon 21; Matt 26.52
20.14 Ekki drýgja hór 3Mós 20.10; Slm 50.18; Matt 5.27; Jak 2.11; sbr 2Sam 11-12; Jóh 8.1-11
20.15 Ekki stela 2Mós 21.16; 3Mós 19.11; 5Mós 24.7; Slm 50.18; sbr 1Mós 37.25-28
20.16 Ljúgvitni 2Mós 23.1-3; 3Mós 19.15-16; Slm 50.19-20; Matt 5.37; Jak 5.12; sbr 1Kon 21; Matt 26.59-62 og hlst.
20.17 Ekki girnast 3Mós 19.35-36; Jes 5.8; Mík 2.2; sbr Jós 7.10-26; 1Kon 21
20.18 Þrumur, eldingar, hornablástur 5Mós 5.23-31; Heb 12.18-19
20.21 Skýsorti 1Kon 8.12; Slm 18.10; sbr 2Mós 13.21+
20.23 Guðir af gulli 2Mós 32.1-6
20.24 Fórnir 3Mós 1-5
20.25 Ekki úr tilhöggnum steinum 5Mós 27.5-7; Jós 8.31