1Nú komu til Jesú farísear og fræðimenn frá Jerúsalem og sögðu:2Hvers vegna brjóta lærisveinar þínir erfikenning forfeðranna? Þeir taka ekki handlaugar, áður en þeir neyta matar.3Hann svaraði þeim: Hvers vegna brjótið þér sjálfir boðorð Guðs sakir erfikenningar yðar?4Guð hefur sagt: Heiðra föður þinn og móður, og: Hver sem formælir föður eða móður, skal dauða deyja.5En þér segið: Hver sem segir við föður sinn eða móður: Það sem þér hefði getað orðið til styrktar frá mér, er musterisfé,6hann á ekki að heiðra föður sinn eða móður . Þér ógildið orð Guðs með erfikenning yðar.7Hræsnarar, sannspár var Jesaja um yður, er hann segir:8Lýður þessi heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt frá mér.9Til einskis dýrka þeir mig, er þeir kenna þá lærdóma, sem eru mannasetningar einar.10Og hann kallaði til sín mannfjöldann og sagði: Heyrið og skiljið.11Ekki saurgar það manninn, sem inn fer í munninn, hitt saurgar manninn, sem út fer af munni.12Þá komu lærisveinar hans og sögðu við hann: Veistu, að farísearnir hneyksluðust, þegar þeir heyrðu orð þín?13Hann svaraði: Sérhver jurt, sem faðir minn himneskur hefur eigi gróðursett, mun upprætt verða.14Látið þá eiga sig! Þeir eru blindir, leiðtogar blindra. Ef blindur leiðir blindan, falla báðir í gryfju.15Þá sagði Pétur við hann: Skýrðu fyrir oss líkinguna.16Hann svaraði: Eruð þér líka skilningslausir ennþá?17Skiljið þér ekki, að allt sem inn kemur í munninn, fer í magann og lendir síðan í safnþrónni?18En það sem út fer af munni, kemur frá hjartanu. Og slíkt saurgar manninn.19Því að frá hjartanu koma illar hugsanir, manndráp, hórdómur, saurlifnaður, þjófnaður, ljúgvitni, lastmælgi.20Þetta er það, sem saurgar manninn. En að eta með óþvegnum höndum saurgar engan mann.21Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar.22Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: Miskunna þú mér, herra, sonur Davíðs! Dóttir mín er mjög kvalin af illum anda.23En hann svaraði henni engu orði. Lærisveinar hans komu þá og báðu hann: Láttu hana fara, hún eltir oss með hrópum.24Hann mælti: Ég er ekki sendur nema til týndra sauða af Ísraelsætt.25Konan kom, laut honum og sagði: Herra, hjálpa þú mér!26Hann svaraði: Ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.27Hún sagði: Satt er það, herra, þó eta hundarnir mola þá, sem falla af borðum húsbænda þeirra.28Þá mælti Jesús við hana: Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt. Og dóttir hennar varð heil frá þeirri stundu.29Þaðan fór Jesús og kom að Galíleuvatni. Og hann gekk upp á fjall og settist þar.30Menn komu til hans hópum saman og höfðu með sér halta menn og blinda, fatlaða, mállausa og marga aðra og lögðu þá fyrir fætur hans, og hann læknaði þá.31Fólkið undraðist, þegar það sá mállausa mæla, fatlaða heila, halta ganga og blinda sjá. Og þeir lofuðu Guð Ísraels.32Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði: Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Þeir hafa nú hjá mér verið þrjá daga og hafa ekkert til matar. Ég vil ekki láta þá fara fastandi frá mér, þeir gætu örmagnast á leiðinni.33Lærisveinarnir sögðu: Hvar fáum vér nóg brauð til að metta allt þetta fólk hér í óbyggðum?34Jesús spyr: Hve mörg brauð hafið þér? Þeir svara: Sjö, og fáeina smáfiska.35Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina,36tók brauðin sjö og fiskana, gjörði þakkir og braut þau og gaf lærisveinunum, en lærisveinarnir fólkinu.37Allir neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur fullar.38En þeir, sem neytt höfðu, voru fjórar þúsundir karlmanna auk kvenna og barna.39Síðan lét hann fólkið fara, sté í bátinn og kom í Magadanbyggðir.

15.1-20 Hlst. Mrk 7.1-23
15.2 Þvo hendur Lúk 11.38; sbr 2Mós 30.18-21; 5Mós 21.6
15.4 Sbr 2Mós 20.12; 5Mós 5.16; Matt 19.19; Mrk 10.19; Lúk 18.20; Ef 6.2; 2Mós 21.17; sbr 3Mós 20.9
15.7 Hræsnarar Matt 6.2+
15.8-9 Sbr Jes 29.13; Slm 78.36-37
15.10 Skiljið Matt 13.13,14,51; 16.12
15.11 Sem út fer af munni Matt 12.34
15.12 Fyrtust Matt 5.29+
15.13 Guð gróðursetur Jes 5.1-7 – gróðursetja, uppræta sbr Lúk 13.6-9; Jóh 15.2
15.14 Blindir, leiðtogar blindra Matt 23.16,24; Lúk 6.39; Róm 2.19
15.15 Beðið um útskýringu Matt 13.36; Mrk 4.10; 7.17; Lúk 8.9
15.19 Lestir Róm 1.29-30; 1Kor 5.10-11; 6.9-10; Gal 5.19-21; Ef 5.2-5; Kól 3.5-8; 1Tím 1.9-10; 1Pét 4.3; Opb 21.8; 22.15
15.21-28 Hlst. Mrk 7.24-30
15.22 Miskunna þú Matt 9.27; 20.30-31; Mrk 10.47-48; Lúk 18.38-39
15.24 Týndir sauðir af Ísraelsætt Matt 10.5-6; 18.12-14
15.28 Mikil er trú þín Matt 8.10 – sem þú vilt Matt 8.13; 9.29
15.30 Haltir, blindir Matt 11.5; 21.14
15.31 Fólkið undrast Mrk 7.37 – lofa Guð Matt 9.8+
15.32-38 Hlst. Mrk 8.1-10
15.32 Kenndi í brjósti um þá Matt 9.36+ – senda fólkið burt Matt 14.15+
15.33 Lærisveinar úrræðalausir Mrk 6.37; Jóh 6.5
15.36 Gerði þakkir 1Kor 11.24