1Set lúðurinn á munn þér! Eins og örn kemur hann yfir hús Drottins. Því að þeir hafa rofið sáttmála minn og vikið frá lögmáli mínu.2Þeir hrópa til mín: Guð minn! Vér Ísraelsmenn þekkjum þig!3Ísrael hefir hafnað blessuninni, fyrir því skulu óvinirnir elta hann.4Þeir hafa tekið sér konunga að mér fornspurðum, hafa valið sér höfðingja án minnar vitundar. Af silfri sínu og gulli hafa þeir gjört sér goðalíkneski, aðeins til þess að þeir tortímdust.5Andstyggilegur er kálfur þinn, Samaría. Reiði mín er upptendruð gegn þeim. Hversu langt mun þangað til þeir verða hreinir?6Því að úr Ísrael er hann, hagleiksmaður hefir smíðað hann, en guð er hann ekki. Nei, kálfur Samaríu skal klofinn í spón.7Þeir sá vindi, og storm skulu þeir uppskera, útsæði sem ekkert strá sprettur upp af og ekkert korn fæst úr, og ef nokkuð fengist úr því, mundu útlendingar gleypa það.8Ísrael mun gleyptur verða, hann er nú þegar meðal þjóðanna eins og ker, sem enginn skeytir um.9Því að þeir hafa farið á fund Assýringa eins og villiasni, sem tekur sig út úr. Efraím falar ástir.10En þótt þeir fali ástir meðal þjóðanna, þá mun ég nú saman safna þeim, til þess að þeir hætti bráðlega að smyrja konunga og höfðingja.11Já, Efraím hefir reist mörg ölturu, ölturun urðu honum til syndar.12Þótt ég riti honum lögmálssetningar þúsundum saman, þá eru þær álitnar sem orð útlendings.13Þeir fórna sláturfórnum, kjöti og eta það, Drottinn hefir enga velþóknun á þeim. Nú mun hann minnast misgjörðar þeirra og vitja synda þeirra. Þeir skulu hverfa aftur til Egyptalands.14Ísrael gleymdi skapara sínum og reisti sér hallir, og Júda byggði margar víggirtar borgir, en ég vil skjóta eldi í borgir hans, og eldurinn skal eyða skrauthýsum hans.

8.1 Hús Drottins Hós 9.15; Jer 12.7; sbr Sak 9.1
8.2 Rofinn sáttmáli Hós 6.7+
8.3 Telja sig þekkja Guð Hós 6.3; sbr 4.1+
8.4 Að mér forspurðum 2Kon 15.10,14,25
8.5 Kálfur Samaríu 2Kon 17.16; Hós 10.5-6; 13.2; sbr 2Mós 32.4,8; 5Mós 9.16; 1Kon 12.28,32; 2Kon 17.16; 2Kro 11.15; 13.8; Neh 9.18; Slm 106.19; Post 7.41
8.7 Þeir sáðu vindi Job 4.8; Okv 22.8; Gal 6.7
8.9 Til Assúr Hós 5.13 – kaupa sér vináttu Hós 2.7
8.11 Mörg ölturu Hós 10.1; 12.12
8.13 Drottni þóknast ekki Hós 6.6; Am 5.21-24+ – Drottinn minnist Hós 7.2+ – aftur til Egyptalands Hós 9.3; 11.5
8.14 Skaparinn gleymdur 5Mós 32.15,18; Jes 1.2-3; 51.13; Jer 2.32; 3.21; Esk 22.12