1En maður nokkur, Ananías að nafni, seldi ásamt Saffíru, konu sinni, eign2og dró undan af verðinu með vitund konu sinnar, en kom með nokkuð af því og lagði fyrir fætur postulanna.3En Pétur mælti: Ananías, hví fyllti Satan hjarta þitt, svo að þú laugst að heilögum anda og dróst undan af verði lands þíns?4Var landið ekki þitt, meðan þú áttir það, og var ekki andvirði þess á þínu valdi? Hvernig gastu þá látið þér hugkvæmast slíkt tiltæki? Ekki hefur þú logið að mönnum, heldur Guði.5Þegar Ananías heyrði þetta, féll hann niður og gaf upp öndina, og miklum ótta sló á alla þá, sem heyrðu.6En ungu mennirnir stóðu upp og bjuggu um hann, báru hann út og jörðuðu.7Að liðnum svo sem þrem stundum kom kona hans inn og vissi ekki, hvað við hafði borið.8Þá spurði Pétur hana: Seg mér, selduð þið jörðina fyrir þetta verð? En hún svaraði: Já, fyrir þetta verð.9Pétur mælti þá við hana: Hvernig gátuð þið orðið samþykk um að freista anda Drottins? Þú heyrir við dyrnar fótatak þeirra, sem greftruðu mann þinn. Þeir munu bera þig út.10Jafnskjótt féll hún niður við fætur hans og gaf upp öndina. Ungu mennirnir komu inn, fundu hana dauða, báru út og jörðuðu hjá manni hennar.11Og miklum ótta sló á allan söfnuðinn og alla, sem heyrðu þetta.12Fyrir hendur postulanna gjörðust mörg tákn og undur meðal lýðsins. Allur söfnuðurinn kom einum huga saman í Súlnagöngum Salómons.13Engir aðrir þorðu að samlagast þeim, en fólk virti þá mikils.14Og enn fleiri urðu þeir, sem trúðu á Drottin, fjöldi karla og kvenna.15Menn báru jafnvel sjúka út á strætin og lögðu þá á rekkjur og börur, ef verða mætti, er Pétur gengi hjá, að alltént skugginn af honum félli á einhvern þeirra.16Einnig kom fjöldi fólks frá borgunum umhverfis Jerúsalem og flutti með sér sjúka menn og þjáða af óhreinum öndum. Þeir læknuðust allir.17Þá hófst æðsti presturinn handa og allur sá flokkur, sem fylgdi honum, saddúkearnir. Fullir ofsa18létu þeir taka postulana höndum og varpa í fangelsið.19En engill Drottins opnaði um nóttina dyr fangelsisins, leiddi þá út og sagði:20Farið og gangið fram í helgidóminum og talið til lýðsins öll þessi lífsins orð.21Þeir hlýddu og fóru í dögun í helgidóminn og kenndu. Nú kom æðsti presturinn og hans menn, kölluðu saman ráðið, alla öldunga Ísraels, og sendu þjóna til fangelsisins að sækja postulana.22Þeir komu í fangelsið og fundu þá ekki, sneru aftur og skýrðu svo frá:23Fangelsið fundum vér að öllu tryggilega læst, og varðmennirnir stóðu fyrir dyrum, en er vér lukum upp, fundum vér engan inni.24Þegar varðforingi helgidómsins og æðstu prestarnir heyrðu þetta, urðu þeir ráðþrota og spurðu, hvar þetta ætlaði að lenda.25En þá kom maður og bar þeim þessa frétt: Mennirnir, sem þér settuð í fangelsið, standa í helgidóminum og eru að kenna lýðnum.26Þá fór varðforinginn með þjónunum og sótti þá. Beittu þeir samt ekki ofbeldi, því þeir óttuðust, að fólkið grýtti þá.27Þegar þeir voru komnir með þá, leiddu þeir þá fram fyrir ráðið, og æðsti presturinn tók að yfirheyra þá og sagði:28Stranglega bönnuðum vér yður að kenna í þessu nafni, og nú hafið þér fyllt Jerúsalem með kenningu yðar og viljið steypa yfir oss blóði þessa manns.29En Pétur og hinir postularnir svöruðu: Framar ber að hlýða Guði en mönnum.30Guð feðra vorra hefur upp vakið Jesú, sem þér hengduð á tré og tókuð af lífi.31Hann hefur Guð hafið sér til hægri handar og gjört hann að foringja og frelsara til að veita Ísrael afturhvarf og fyrirgefningu synda sinna.32Vér erum vottar alls þessa, og heilagur andi, sem Guð hefur gefið þeim, er honum hlýða.33Þegar þeir heyrðu þetta, fylltust þeir bræði og hugðust deyða þá.34Reis þá upp í ráðinu farísei nokkur, Gamalíel að nafni, kennari í lögmálinu, virtur af öllum lýð. Hann bauð, að mennirnir væru látnir fara út stundarkorn.35Síðan sagði hann: Ísraelsmenn, athugið vel, hvað þér gjörið við þessa menn.36Ekki alls fyrir löngu kom Þevdas fram og þóttist vera eitthvað. Hann aðhylltust um fjögur hundruð manns. En hann var drepinn, og allir þeir, sem fylgdu honum, tvístruðust og hurfu.37Eftir hann kom fram Júdas frá Galíleu á dögum skrásetningarinnar og sneri fólki til fylgis við sig. Hann fórst líka, og þeir dreifðust allir, sem fylgdu honum.38Og nú segi ég yður: Látið þessa menn eiga sig og sleppið þeim. Sé þetta ráð eða verk frá mönnum, verður það að engu,39en sé það frá Guði, þá megnið þér ekki að yfirbuga þá. Eigi má það verða, að þér berjist við sjálfan Guð.40Þeir féllust á mál hans, kölluðu á postulana, húðstrýktu þá, fyrirbuðu þeim að tala í Jesú nafni og létu þá síðan lausa.41Þeir fóru burt frá ráðinu, glaðir yfir því, að þeir höfðu verið virtir þess að þola háðung vegna nafns Jesú.42Létu þeir eigi af að kenna dag hvern í helgidóminum og í heimahúsum og boða fagnaðarerindið um, að Jesús sé Kristur.

5.3 Satan fyllti hjarta þitt Jóh 13.2
5.5 Mikill ótti Post 2.43+
5.9 Storka anda Drottins 1Kor 10.9
5.11 Mikill ótti Post 2.43+ – söfnuðurinn, kirkjan Post 9.31; 11.26; 18.22; 20.28
5.12 Lífið í frumsöfnuðinum Post 2.41+ – tákn og undur Post 2.43+ – í Súlnagöngum Salómons Post 3.11+
5.14 Frumsöfnuðurinn vex Post 2.41+
5.15-16 Lækningakraftur Mrk 6.56; Post 19.11-12
5.17 Fullir ofstækis Post 4.1,6
5.19 Engill Drottins Post 8.26; 12.7-11,23; sbr 10.3,7,22; 11.13; Matt 1.20+
5.24 Varðforingi helgidómsins og æðstu prestarnir Post 4.1+
5.26 Óttuðust fólkið Matt 14.5+
5.28 Bönnuðu að kenna í nafni Jesú Post 4.18 – dauði þessa manns bitni á okkur Matt 27.25+ ; Post 18.6
5.29 Hlýða Guði fremur en mönnum Post 4.19
5.30 Guð upp vakti Jesú Post 2.24+ – tókuð af lífi Post 2.23+
5.31 Hefja upp Post 2.33 – höfðingi og frelsari Heb 2.10 – Jesús er frelsari Post 4.12+ – afturhvarf og fyrirgefning synda Lúk 24.47; Post 2.38; 3.19
5.32 Vottar Post 1.8+ – heilagur andi vitnar Jóh 15.26 – hlýða Guði Róm 1.5+
5.33 Fylltust bræði Post 7.54
5.34 Gamalíel Post 22.3
5.36 Uppreisn Post 21.38
5.37 Galíleumenn gera uppreisn Lúk 13.1-2
5.39 Berjast við Guð SSal 12.13-14
5.40 Bönnuðu að tala í nafni Jesú Post 4.18
5.41 Þola háðung vegna Jesú Matt 5.10-12; 1Pét 4.13 – nafnið Post 3.16+
5.42 Í helgidóminum og heimahúsum Post 2.46 – Kristur Jesús Post 9.22; 17.3; 18.5,28 sbr 2.36+