1Takið að yður hina óstyrku í trúnni, án þess að leggja dóm á skoðanir þeirra.2Einn er þeirrar trúar, að alls megi neyta en hinn óstyrki neytir einungis jurtafæðu.3Sá, sem neytir kjöts, fyrirlíti ekki hinn, sem lætur þess óneytt, og sá, sem lætur þess óneytt, dæmi ekki þann, sem neytir þess, því að Guð hefur tekið hann að sér.4Hver ert þú, sem dæmir annars þjón? Hann stendur og fellur herra sínum. Og hann mun standa, því að megnugur er Drottinn þess að láta hann standa.5Einn gjörir mun á dögum, en annar metur alla daga jafna. Sérhver hafi örugga sannfæringu í huga sínum.6Sá, sem tekur tillit til daga, gjörir það vegna Drottins. Og sá, sem neytir kjöts, gerir það vegna Drottins, því að hann gjörir Guði þakkir. Sá, sem lætur óneytt, hann lætur óneytt vegna Drottins og gjörir Guði þakkir.7Því að enginn af oss lifir sjálfum sér og enginn deyr sjálfum sér.8Ef vér lifum, lifum vér Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins.9Því að til þess dó Kristur og varð aftur lifandi, að hann skyldi drottna bæði yfir dauðum og lifandi.10En þú, hví dæmir þú bróður þinn? Eða þá þú, hví fyrirlítur þú bróður þinn? Allir munum vér verða að koma fram fyrir dómstól Guðs.11Því að ritað er: Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn, fyrir mér skulu öll kné beygja sig og sérhver tunga vegsama Guð.12Því skal þá sérhver af oss lúka Guði reikning fyrir sjálfan sig.13Dæmum því ekki framar hver annan. Ásetjið yður öllu heldur að verða bróður yðar ekki til ásteytingar eða falls.14Ég veit það og er þess fullviss, af því að ég lifi í samfélagi við Drottin Jesú, að ekkert er vanheilagt í sjálfu sér, nema þá þeim, sem heldur eitthvað vanheilagt, honum er það vanheilagt.15Ef bróðir þinn hryggist sökum þess, sem þú etur, þá ertu kominn af kærleikans braut. Hrind ekki með mat þínum í glötun þeim manni, sem Kristur dó fyrir.16Látið því ekki hið góða, sem þér eigið, verða fyrir lasti.17Því að ekki er Guðs ríki matur og drykkur, heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda.18Hver sem þjónar Kristi á þann hátt, hann er Guði velþóknanlegur og vel metinn manna á meðal.19Keppum þess vegna eftir því, sem til friðarins heyrir og til hinnar sameiginlegu uppbyggingar.20Brjóttu ekki niður verk Guðs vegna matar! Allt er að sönnu hreint, en það er þó illt þeim manni, sem etur öðrum til ásteytingar.21Það er rétt að eta hvorki kjöt né drekka vín né gjöra neitt, sem bróðir þinn steytir sig á.22Halt þú þeirri trú, sem þú hefur með sjálfum þér fyrir Guði. Sæll er sá, sem þarf ekki að áfella sig fyrir það, sem hann velur.23En sá sem er efablandinn og etur þó, hann er dæmdur af því að hann etur ekki af trú. Allt sem ekki er af trú er synd.

14.1 Trúarveik 1Kor 8.7-13 – dæma skoðanir 1Kor 10.23-33; Róm 15.7
14.2 Trúin veitir frelsi Kól 2.16-23; 1Tím 4.3-5; Tít 1.15
14.4 Drottinn einn dæmir Róm 14.7-10; Matt 7.1; 1Kor 4.5; Jak 4.12
14.5 Gera mun á dögum Gal 4.10; Kól 2.16
14.6 Færa Guði þakkir 1Kor 10.30; 1Tím 4.4
14.8 Lifa Drottni Róm 6.11; 1Kor 3.23; 2Kor 5.15; Gal 2.20; 1Þess 5.10
14.9 Drottna yfir dauðum og lifandi Lúk 20.38; Post 10.42; Fil 2.10-11
14.10 Dómstóll Guðs Post 17.31; Róm 2.16; 12.19; 2Kor 5.10; Matt 25.31-46
14.11 Sbr Jes 49.18; 45.23; Fil 2.10-11
14.12 Gera Guði skil Róm 2.5-6; Heb 4.13
14.13 Til ásteytingar og falls Matt 5.29+ ; 18.6; 1Kor 8.13; 1Jóh 2.10
14.14 Vanheilagt Post 10.15; Matt 15.11; 1Kor 10.23; 1Tím 4.4; Tít 1.15
14.15 Tillitssemi 1Kor 8.9-13
14.17 Ekki matur og drykkur 1Kor 8.8 – friður og fögnuður í heilögum anda Gal 5.22; 1Þess 1.6
14.18 Í metum Róm 12.17-18; 1Tím 2.2; 6.1; Tít 2.9-10
14.19 Friður Róm 12.17-18; 1Kor 7.15 – efling Róm 15.2; 1Kor 3.9; 14.5,12,26; 2Kor 13.10; Ef 2.21; 4.12,16,29
14.21 Kemur illa við 1Kor 8.13
14.22 Halt fast við trúna 1Kor 10.25-27 – áfella sig 1Kor 11.31
14.23 Ekki af því 1Kor 8.7; Jak 4.17