1Vei hirðunum, sem eyða og tvístra gæsluhjörð minni! segir Drottinn.2Fyrir því segir Drottinn, Ísraels Guð, svo um hirðana, sem gæta þjóðar minnar: Þér hafið tvístrað sauðum mínum og sundrað þeim og ekki litið eftir þeim. Sjá, ég skal vitja vonskuverka yðar á yður segir Drottinn.3En ég vil sjálfur safna leifum hjarðar minnar saman úr öllum löndum, þangað sem ég hefi rekið þá, og leiða þá aftur í haglendi þeirra, og þeir skulu frjóvgast og þeim fjölga.4Og ég vil setja hirða yfir þá, og þeir skulu gæta þeirra, og þeir skulu eigi framar hræðast né skelfast og einskis þeirra skal saknað verða segir Drottinn.5Sjá, þeir dagar munu koma segir Drottinn að ég mun uppvekja fyrir Davíð réttan kvist, er ríkja skal sem konungur og breyta viturlega og iðka rétt og réttlæti í landinu.6Á hans dögum mun Júda hólpinn verða og Ísrael búa óhultur, og þetta mun verða nafn hans, það er menn nefna hann með: Drottinn er vort réttlæti!7Sjá, fyrir því munu þeir dagar koma segir Drottinn að menn munu eigi framar segja: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er leiddi Ísraelsmenn út af Egyptalandi!8heldur: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sá er leiddi og flutti heim niðja Ísraels húss úr landinu norður frá og úr öllum þeim löndum, þangað sem ég hafði rekið þá, svo að þeir mættu búa í landi sínu!9Um spámennina: Hjartað í brjósti mér er sundurmarið, öll bein mín skjálfa. Ég er eins og drukkinn maður, eins og maður sem vínið hefir bugað, vegna Drottins og vegna hans heilögu orða.10Landið er fullt af hórkörlum, já, vegna bölvunarinnar syrgir landið, og beitilöndin í öræfunum eru skrælnuð. Þeir hlaupa á eftir vonsku og styrkur þeirra er ósannsögli.11Bæði spámenn og prestar eru guðlausir, jafnvel í húsi mínu hefi ég rekið mig á vonsku þeirra segir Drottinn.12Fyrir því mun vegur þeirra verða þeim eins og sleipir staðir í myrkri. Þeim skal verða hrundið, svo að þeir detti á honum, því að ég leiði óhamingju yfir þá árið sem þeim verður refsað segir Drottinn.13Hjá spámönnum Samaríu sá ég hneykslanlegt athæfi: Þeir spáðu í nafni Baals og leiddu lýð minn Ísrael afvega.14En hjá spámönnum Jerúsalem sá ég hryllilegt athæfi: Þeir drýgja hór og fara með lygar og veita illgjörðarmönnum liðveislu, svo að enginn þeirra snýr sér frá illsku sinni. Þeir eru allir orðnir mér eins og Sódóma og íbúar hennar eins og Gómorra.15Fyrir því segir Drottinn allsherjar svo um spámennina: Sjá, ég vil gefa þeim malurt að eta og eiturvatn að drekka, því að frá spámönnum Jerúsalem hefir guðleysi breiðst út um allt landið.16„Svo segir Drottinn allsherjar: Hlýðið ekki á orð spámannanna, sem spá yður; þeir draga yður á tálar. Þeir boða vitranir, sem þeir sjálfir hafa spunnið upp, en ekki fengið frá Drottni.“17Sífelldlega segja þeir við þá, er hafa hafnað orði Drottins: Yður mun heill hlotnast! Og við alla sem fara eftir þverúð hjarta síns, segja þeir: Engin ógæfa mun yfir yður koma!18Já, hver stendur í ráði Drottins? Hver sér og heyrir orð hans? Hver gefur gaum að orðum mínum og kunngjörir þau?19Sjá, stormur Drottins brýst fram reiði og hvirfilbylur hann steypist yfir höfuð hinna óguðlegu.20Reiði Drottins léttir ekki fyrr en hann hefir framkvæmt og leitt til lykta fyrirætlanir hjarta síns. Síðar meir munuð þér skilja það greinilega.21Ég hefi ekki sent spámennina, og þó hlupu þeir. Ég hefi eigi talað til þeirra, og þó spáðu þeir.22Hefðu þeir staðið í mínu ráði, þá mundu þeir kunngjöra þjóð minni mín orð og snúa þeim frá þeirra vonda vegi og frá þeirra vondu verkum.23Er ég þá aðeins Guð í nánd segir Drottinn og ekki Guð í fjarlægð?24Getur nokkur falið sig í fylgsnum, svo að ég sjái hann ekki? segir Drottinn. Uppfylli ég ekki himin og jörð? segir Drottinn.25Ég heyri hvað spámennirnir segja, þeir sem boða lygar í mínu nafni. Þeir segja: Mig dreymdi, mig dreymdi!26Hversu lengi á þetta svo að ganga? Ætla spámennirnir, þeir er boða lygar og flytja tál, er þeir sjálfir hafa upp spunnið27hvort hyggjast þeir að koma þjóð minni til að gleyma nafni mínu, með draumum sínum, er þeir segja hver öðrum, eins og feður þeirra gleymdu nafni mínu vegna Baals?28Sá spámaður, sem dreymir draum, segi drauminn, og sá, sem hefir mitt orð, flytji hann mitt orð í sannleika. Hvað er sameiginlegt hálmstrái og korni? segir Drottinn.29Er ekki orð mitt eins og eldur segir Drottinn og eins og hamar, sem sundurmolar klettana?30Sjá, þess vegna skal ég finna spámennina segir Drottinn sem stela orðum mínum hver frá öðrum.31Ég skal finna spámennina segir Drottinn sem taka til sinnar eigin tungu til þess að umla guðmæli.32Ég skal finna spámennina, sem kunngjöra lygadrauma segir Drottinn og segja frá þeim og leiða þjóð mína afvega með lygum sínum og gorti, og þó hefi ég ekki sent þá og ekkert umboð gefið þeim, og þeir gjöra þessari þjóð alls ekkert gagn segir Drottinn.33Þegar þessi lýður spyr þig, eða einhver spámaðurinn eða einhver presturinn, og segir: Hver er byrði Drottins? þá skalt þú segja við þá: Þér eruð byrðin, og ég mun varpa yður af mér segir Drottinn.34En sá spámaður og sá prestur og sá lýður, sem talar um byrði Drottins slíks manns vil ég vitja og húss hans.35Svo skuluð þér segja hver við annan og einn við annan: Hverju hefir Drottinn svarað? eða Hvað hefir Drottinn sagt?36En byrði Drottins skuluð þér ekki framar nefna, því að hverjum manni munu þau orð hans verða byrði, þar sem þér hafið rangfært orð hins lifanda Guðs, Drottins allsherjar, vors Guðs.37Svo skulu menn segja við spámanninn: Hverju hefir Drottinn svarað þér? eða Hvað hefir Drottinn sagt?38En ef þér talið um byrði Drottins þá segir Drottinn svo: Af því að þér viðhafið þetta orð byrði Drottins, þótt ég gjörði yður þá orðsending: Þér skuluð ekki tala um byrði Drottins39sjá, fyrir því vil ég hefja yður upp og varpa yður og borginni, sem ég gaf yður og feðrum yðar, burt frá mínu augliti.40Og ég legg á yður eilífa smán og eilífa skömm, sem aldrei mun gleymast.

23.1 Tvístra hjörðinni Jer 10.21; 50.6; Jes 53.6; Esk 34.5; sbr Mrk 6.34 og hlst; 1Pét 2.25
23.2 Slæmir hirðar Esk 34.1-10 – fyrir illvirki yðar Jer 27.22+
23.3 Sjálfur safna saman Esk 34.11-16; sbr Jer 29.10-14 – þeim sem eftir eru Jes 4.3+ – tvístruðum safnað saman Jer 29.14; 31.8,10; 32.37; 5Mós 30.3-4; Jes 11-12+ ; 27.13; 56.8; Esk 11.17; 20.41; 37.21-22 – leiða aftur … Jer 24.6; 27.22; 30.3; 32.37; 50.19
23.4 Hyggnir hirðar Jer 3.15 – skelfast ekki Jer 30.10
23.5 Réttlátur kvistur Jes 4.2; Sak 3.8; 6.12 – Davíðs Jer 33.15; 2Sam 7.12 – breyta viturlega Esk 34.23-24; Mík 5.3 – réttur og réttlæti Jer 33.15; Jes 9.6; sbr Jer 22.13+
23.6 Júda og Ísrael Jer 31.27-28; 33.7; 50.4 – óhultur Jer 32.37 – Drottinn er réttlæti okkar Jer 33.16; sbr Róm 1.17; 1Kor 1.30; 2Kor 5.21; Fil 3.9; sbr Mal 3.20
23.7-8 Þeir dagar koma Jer 16.14-15
23.8 Í norðri Jer 3.18; Jes 43.6; sbr Jer 1.14+
23.9 Spámenn Jer 2.8+
23.10 Hórkarlar Jer 23.14; sbr 9.1+ – landið syrgir Jer 4.28
23.11 Spámenn og prestar Jer 2.8+ – guðlausir Hlj 4.13
23.12 Háll vegur Slm 35.6; 73.18
23.14 Í Jerúsalem Jer 3.11 – hryllilegt athæfi Jer 5.30-31; 18.13 – ljúga Jer 3.10,23; 5.1,31; 6.13; 7.4,8,9; 8.8,10; 9.23; 10.14; 14.14; 16.19; 20.6; 23.25-26,32; 27.10,14-15; 28.15; 29.9,21,23,31; sbr 37.14; 40.16 – hverfa frá Jer 23.22 – Sódóma og Gómorra Jes 1.9+
23.15 Malurt Jer 9.14 – eitrað vatn Jer 8.14+ ; sbr 25.15+ – landið saurgað Jer 2.7; 3.2
23.16 Uppspunar sýnir Jer 14.14; Hlj 2.14
23.17 Spá heill Jer 6.14 – þverúð Jer 3.17+ – engin ógæfa Jer 5.12; Jes 28.15; Mík 3.11
23.18 Ráð Drottins 1Kon 22.19-22; Jes 6.1-3; Am 3.7; Job 1.6; 2.1; 15.8; sbr Jer 15.1; 18.20; Am 7.1-6
23.19 Hvirfilbylur Jer 4.11; 22.22; Jes 29.6; Nah 1.3; Slm 50.3+
23.20 Síðar meir Jós 3.5; Jóh 13.7,36
23.21 Sendi ekki Jer 23.32; 14.14-15+
23.22 Boða mín orð Jer 23.28; 15.19 – snúa frá vondri breytni Jer 18.11
23.24 Ég get ekki séð? Slm 139.11-12 – fylli himin og jörð SSal 1.7; sbr Post 7.49
23.26 Boða lygi í nafni Drottins Jer 14.14
23.29 Orð Drottins Heb 4.12 – eins og eldur Jer 5.14+
23.32 Ekki frá Guði Jer 23.21+ – einskis gagns Jer 7.8
23.36 Rangfæra orðið Matt 15.6 – lifandi Guð Jer 10.10; 5Mós 5.26