1Efraímítar sögðu við Gídeon: Hví gjörðir þú oss þetta, að kalla oss eigi? Heldur hefir þú farið einn til þess að berjast við Midíaníta. Og þeir þráttuðu ákaflega við hann.2Þá sagði hann við þá: Hvað hefi ég nú gjört í samanburði við yður? Er ekki eftirtíningur Efraíms betri en vínberjatekja Abíesers?3Í yðar hendur hefir Guð gefið höfðingja Midíans, þá Óreb og Seeb. Hvað hefi ég megnað að gjöra í samanburði við yður? Og er hann hafði þetta mælt, sefaðist reiði þeirra við hann.4Gídeon kom nú að Jórdan og fór yfir hana með þau þrjú hundruð manna, er með honum voru, en þeir voru þreyttir orðnir að reka flóttann.5Og hann sagði við Súkkótbúa: Gefið liðinu, sem fylgir mér, brauðhleifa, því að þeir eru þreyttir orðnir, þar eð ég er að elta þá Seba og Salmúna, Midíans konunga.6En höfðingjarnir í Súkkót sögðu: Eru þeir Seba og Salmúna þegar gengnir þér svo í greipar, að vér megum gefa her þínum brauð?7Þá sagði Gídeon: Sé það svo! Þegar Drottinn gefur Seba og Salmúna í mínar hendur, þá skal ég þreskja hold yðar með þyrnum eyðimerkurinnar og með þistlum.8Þaðan fór hann til Penúel og mælti við þá á sömu leið. En Penúelbúar svöruðu honum hinu sama og Súkkótbúar höfðu svarað.9Þá sagði hann og við Penúelbúa á þessa leið: Þegar ég kem aftur heilu og höldnu, mun ég brjóta niður kastala þennan.10Þeir Seba og Salmúna voru í Karkór og herlið þeirra með þeim, um fimmtán þúsundir manna, allir þeir, er eftir voru af öllum her austurbyggja, en eitt hundrað og tuttugu þúsundir vopnaðra manna voru fallnar.11Fór Gídeon nú tjaldbúaleið fyrir austan Nóba og Jogbeha og réðst á herbúðirnar, þá er herinn uggði eigi að sér.12Þeir Seba og Salmúna flýðu, en hann elti þá og tók höndum báða Midíanskonungana Seba og Salmúna, og tvístraði öllum hernum.13Eftir það sneri Gídeon Jóasson aftur úr leiðangrinum hjá Heresstígnum.14Og hann tók höndum svein nokkurn frá Súkkótbúum og kvaddi hann sagna, og sveinninn skrifaði upp fyrir hann höfðingjana í Súkkót og öldungana, sjötíu og sjö manns.15Og er hann kom til Súkkótbúa, sagði hann: Hér eru þú þeir Seba og Salmúna, er þér hædduð mig fyrir og sögðuð: Eru þeir Seba og Salmúna þegar gengnir svo í greipar þér, að vér megum gefa þreyttum mönnum þínum brauð?16Og hann tók öldunga borgarinnar og þyrna eyðimerkurinnar og þistla og lét Súkkótbúa kenna á þeim.17Og hann braut niður kastalann í Penúel og drap borgarbúa.18Síðan sagði hann við Seba og Salmúna: Hvernig voru þeir menn í hátt, er þið drápuð hjá Tabor? Þeir sögðu: Þeir voru alveg eins og þú. Voru þeir allir slíkir ásýndum sem væru þeir konungssynir.19Þá sagði hann: Þeir hafa verið bræður mínir, synir móður minnar. Svo sannarlega sem Drottinn lifir: Ef þið hefðuð gefið þeim líf, mundi ég ekki hafa drepið ykkur.20Því næst sagði hann við Jeter, frumgetinn son sinn: Far þú til og drep þá! En sveinninn brá ekki sverði sínu, því að hann bar ekki hug til, enda var hann ungur að aldri.21En þeir Seba og Salmúna sögðu: Far þú sjálfur til og vinn á okkur, því að afl fylgir aldri manns. Fór þá Gídeon til og drap þá Seba og Salmúna og tók tinglin, sem voru um hálsana á úlföldum þeirra.22Þá sögðu Ísraelsmenn við Gídeon: Drottna þú yfir oss, bæði þú og sonur þinn og sonarsonur þinn, því að þú hefir frelsað oss af hendi Midíans.23En Gídeon sagði við þá: Eigi mun ég drottna yfir yður, og eigi mun sonur minn heldur drottna yfir yður. Drottinn skal yfir yður drottna.24Þá sagði Gídeon við þá: Bónar vil ég biðja yður. Gefið mér allir eyrnahringa þá, er þér hafið fengið að herfangi, en Ísmaelítar báru eyrnahringa af gulli.25Þeir svöruðu: Vér viljum fúslega gefa þér þá. Og þeir breiddu út skikkju og köstuðu þangað hver og einn eyrnahringum þeim, er þeir höfðu fengið að herfangi.26En þyngd þessara eyrnahringa af gulli, er hann beiðst hafði, var eitt þúsund og sjö hundruð siklar gulls, fyrir utan tinglin, eyrnaperlurnar og purpuraklæðin, sem Midíanskonungarnir báru, og fyrir utan festar þær, sem voru um hálsana á úlföldum þeirra.27Og Gídeon gjörði úr því hökul og reisti hann upp í borg sinni, í Ofra, og allur Ísrael tók þar fram hjá með honum, og það varð Gídeon og húsi hans að tálsnöru.28Þannig urðu Midíanítar að lúta í lægra haldi fyrir Ísraelsmönnum og máttu aldrei síðan höfuð hefja. Var nú friður í landi í fjörutíu ár, meðan Gídeon var á lífi.29Því næst hélt Jerúbbaal Jóasson heim til sín og bjó í sínu húsi.30Gídeon átti sjötíu sonu, sem út gengnir voru af lendum hans, því að hann átti margar konur.31Og hjákona hans, sú er hann átti í Síkem, fæddi honum og son, og hann nefndi hann Abímelek.32Gídeon Jóasson dó í góðri elli og var grafinn í gröf Jóasar, föður síns, í Ofra Abíesrítanna.33En er Gídeon var dáinn, tóku Ísraelsmenn enn af nýju fram hjá með Baölum, og gjörðu Sáttmála-Baal að guði sínum.34Og Ísraelsmenn minntust ekki Drottins, Guðs síns, sem frelsað hafði þá úr höndum allra óvina þeirra hringinn í kring,35og ekki auðsýndu þeir heldur kærleika húsi Jerúbbaals, Gídeons, fyrir allt hið góða, sem hann hafði gjört Ísrael.

8.1 Þræta við Efraímíta Dóm 12.1-6
8.5 Súkkót Jós 13.27
8.8 Penúel 1Kon 12.25
8.10 Austurbyggjar Dóm 6.3+
8.14 Sjötíu og sjö manns sbr 1Mós 4.24; 46.27; Dóm 8.30; 9.2; 2Kon 10.1
8.18 Tabor Dóm 4.6
8.19 Hálfbræður 1Mós 43.29; 5Mós 13.7; Ljl 8.1
8.20 Blóðhefnd 1Mós 4.14-15,23-24; 4Mós 35.19-29; Jós 20.1-3; 2Sam 3.27,30; 14.7; 21.1-9
8.21 Gakktu frá okkur sjálfur Dóm 9.54
8.23 Drottinn skal drottna yfir ykkur 1Sam 8.7; 12.12
8.24 Eyrnagull 2Mós 32.2-3
8.27 Hökullíknesi Hós 3.4+ – tók fram hjá Hós 1.2+ – tálsnara Dóm 2.3+
8.28 Friður í landinu Dóm 3.11+
8.30 Sjötíu synir Dóm 9.5,24,56
8.32 Dó í hárri elli Dóm 10.2,5; 12.7,10,12,15; 16.31
8.33 Taka enn á ný fram hjá Dóm 2.19; 3.12; 4.1; 6.1; 10.6; 13.1 – sáttmála-Baal Dóm 9.4,46