1Vei þeim, sem veita ranga úrskurði og færa skaðsemdarákvæði í letur2til þess að halla rétti fátækra og ræna lögum hina nauðstöddu á meðal fólks míns, til þess að ekkjurnar verði þeim að herfangi og þeir fái féflett munaðarleysingjana.3Hvað ætlið þér að gjöra á degi hegningarinnar og þegar eyðingin kemur úr fjarska? Til hvers viljið þér þá flýja um ásjá? Og hvar viljið þér geyma auðæfi yðar?4Er nokkuð annað fyrir hendi en að falla á kné meðal hinna fjötruðu eða hníga meðal hinna vegnu? Allt fyrir þetta linnir ekki reiði hans, og hönd hans er enn þá útrétt.5Vei Assúr, vendinum reiði minnar! Heift mín er stafurinn í höndum þeirra.6Ég sendi hann móti guðlausri þjóð, ég býð honum að fara á móti lýðnum, sem ég er reiður, til þess að ræna og rupla og troða hann fótum sem saur á strætum.7En hann skilur það eigi svo, og hjarta hans hugsar eigi svo, heldur girnist hann að eyða og uppræta margar þjóðir.8Hann segir: Eru ekki höfðingjar mínir allir saman konungar?9Fór ekki fyrir Kalne eins og fyrir Karkemis, fyrir Hamat eins og fyrir Arpad, fyrir Samaríu eins og fyrir Damaskus?10Eins og hönd mín náði til konungsríkja guðanna, og voru þó líkneskjur þeirra fleiri en Jerúsalem og Samaríu,11já, eins og ég hefi farið með Samaríu og guði hennar, svo mun ég fara með Jerúsalem og guðalíkneski hennar!12En þegar Drottinn hefir lokið öllu starfi sínu á Síon-fjalli og í Jerúsalem, mun hann vitja ávaxtarins af ofmetnaðinum í hjarta Assýríukonungs og hins hrokafulla drembilætis augna hans,13því að hann hefir sagt: Með styrk handar minnar hefi ég þessu til leiðar komið og með hyggindum mínum, því að ég er vitsmunamaður. Ég hefi fært úr stað landamerki þjóðanna, rænt fjárhlutum þeirra og sem alvaldur steypt af stóli drottnendum þeirra.14Hönd mín náði í fjárafla þjóðanna, sem fuglshreiður væri. Eins og menn safna eggjum, sem fuglinn er floginn af, svo hefi ég safnað saman öllum löndum, og hefir enginn blakað vængjum, lokið upp nefinu né tíst.15Hvort má öxin dramba í gegn þeim, sem heggur með henni, eða sögin miklast í gegn þeim, sem sagar með henni? Allt eins og sprotinn ætlaði að sveifla þeim, er reiðir hann, eða stafurinn færa á loft þann, sem ekki er af tré.16Fyrir því mun hinn alvaldi, Drottinn allsherjar, senda megrun í hetjulið hans, og undir dýrð hans mun eldur blossa upp sem brennandi bál.17Og ljós Ísraels mun verða að eldi og Hinn heilagi í Ísrael að loga, og sá logi skal á einum degi upp brenna og eyða þyrnum hans og þistlum18og afmá að fullu og öllu hina dýrlegu skóga hans og aldingarða. Hann skal verða eins og sjúklingur, sem veslast upp.19Og leifarnar af skógartrjám hans munu verða teljandi, og smásveinn mun geta skrifað þau upp.20Á þeim degi skulu leifarnar af Ísrael og þeir af Jakobs húsi, sem af komast, eigi framar reiða sig á þann sem sló þá, heldur munu þeir með trúfesti reiða sig á Drottin, Hinn heilaga í Ísrael.21Leifar munu aftur hverfa, leifarnar af Jakob, til hins máttuga Guðs.22Því að þótt fólksfjöldi þinn, Ísrael, væri sem sjávarsandur, skulu þó aðeins leifar af honum aftur hverfa. Eyðing er fastráðin, framveltandi flóð réttlætis.23Því að eyðingu, og hana fastráðna, mun hinn alvaldi, Drottinn allsherjar framkvæma á jörðinni miðri.24Svo segir hinn alvaldi, Drottinn allsherjar: Þú þjóð mín, sem býr á Síon, óttast þú eigi Assúr, er hann slær þig með sprota og reiðir að þér staf sinn, eins og Egyptar gjörðu.25Því að eftir skamma hríð er reiðin á enda, og þá beinist heift mín að eyðing þeirra.26Þá reiðir Drottinn allsherjar svipuna að þeim, eins og þegar hann laust Midíansmenn hjá Óreb-kletti. Stafur hans er útréttur yfir hafið, og hann færir hann á loft, eins og gegn Egyptum forðum.27Á þeim degi skal byrði sú, sem hann hefir á þig lagt, falla af herðum þér og ok hans af hálsi þínum, og okið skal brotna fyrir ofurfitu.28Óvinurinn heldur til Ajat, fer um Mígron og lætur eftir farangur sinn í Mikmas.29Þeir fara yfir skarðið, þeir hafa náttból í Geba. Rama skelfist, íbúar Gíbeu Sáls leggja á flótta.30Hljóða þú upp, Gallímdóttir! Hlustaðu á, Lejsa! Taktu undir, Anatót!31Madmena flýr, íbúar Gebím forða sér undan.32Þennan sama dag æir hann í Nób. Hann réttir út hönd sína móti fjalli Síonardóttur, móti hæð Jerúsalemborgar.33Sjá, hinn alvaldi, Drottinn allsherjar afsníður laufkrónuna voveiflega. Hin hávöxnu trén eru höggvin og hin gnæfandi hníga til jarðar.34Hann ryður skógarrunnana með öxi, og Líbanon fellur fyrir Hinum volduga.

10.1 Vei Jes 8.8,11,18,20-22 – skaðleg ákvæði Slm 94.20
10.2 Réttur fátækra Jes 1.17,23; 3.14-15; Am 2.6-8; 5.7,10-15; 6.12; 8.4-6; sbr Jes 11.4; 16.5; Okv 22.22 – munaðarlausir og ekkjur Jes 1.17+ ; Jer 49.11; Esk 22.7
10.3 Hvað ætlið þér að gera? Jer 5.31; Job 31.14 – degi uppgjörsins Jes 3.14; Hós 9.7; sbr Jes 2.12 – leita ásjár Jes 20.6; 24.18; 30.16-17 – auðæfi yðar Sef 1.18
10.5 Vei Assúr Jes 10.24-27; 14.25; 30.27-33; 37.22-35 – vendi reiði minnar Jes 5.26-30; 7.18,20; 8.7; sbr 13.5; 36.10; 37.26; sbr Jer 51.23
10.6 Ræna og traðka Jes 8.1-4
10.8 Orð Assýríukonungs Jes 36.18-20
10.9 Hamat og Arpad Jes 36.19; 37.13 – Samaría og Damaskus Jes 8.4
10.10 Guðir þjóðanna sigraðir Jes 36.18-20; 37.12
10.12 Verk Drottins Jes 5.12; 28.21-22; 29.1-4 – Drottinn refsar Assúr Jes 33.1; 37.36-38 – drembilegt oflæti Jes 2.12; 37.23
10.13 Landamæri 5Mós 32.8 – færa úr stað 2Kon 17.6,24
10.15 Hafa sig yfir skaparann sbr Jes 29.16; 45.9; Jer 18.2-6 – herra sögunnar Jes 37.26-27
10.16 Drottinn allsherjar Jes 1.24+
10.17 Hinn heilagi Jes 1.4+ ; 6.3+ – eyðandi logi, hreinsun Jes 1.31; 4.4; 5.24; 9.4,18; 29.6; 30.27,30,33; Am 7.4 – þyrnar og þistlar Jes 5.6+ – á einum degi Jes 9.13
10.20 Þeir sem eftir verða Jes 4.3+ ; 11.11,16; 28.5; sbr 16.14; 17.3; 21.17 – reiða sig á Hós 5.13; 2Kro 28.16,20 – Hinn heilagi Ísraels Jes 1.4+
10.21 Leifar Jes 7.3 – máttuga Guðs Jes 9.6
10.22-23 Sjá Róm 9.27-28 – sjávarsandur Jes 48.19; 1Mós 22.17; Hós 2.1 – eyðing Jes 8.7-8; 28.17; 30.28
10.24 Óttastu ekki Jes 37.6 – barefli Assúr Jes 9.3; 14.5 – eins og Egyptar 2Mós 5.14-16
10.25 Eyðing óvinanna Jes 31.8-9; 37.36
10.26 Midían Jes 9.3+ – í Egyptalandi Jes 11.11,15,16; 2Mós 14.16
10.27 Ok Jes 9.4+
10.28 Óvinurinn nálgast Jes 5.26 – Mikmas 1Sam 13.2,5; 14.5
10.29 Skarðið 1Sam 13.23; 14.4 – Geba Jós 18.24; 1Sam 13.3; 14.5; 2Sam 5.25; 1Kon 15.22; 2Kon 23.8; Esr 2.26 – Rama Jós 18.25; Dóm 19.13; 1Sam 1.19; 7.17; 1Kon 15.17,22 – Gíbea Jós 18.28; 1Sam 10.26; 14.2; 15.34
10.30 Dóttirin Gallím 1Sam 25.44 – Anatót Jer 1.1+
10.32 Nób 1Sam 21.2; 22.9,19 – Jerúsalem ógnað Mík 1.10,12
10.34 Líbanon 1) tákn drambseminnar Jes 2.13+ ; 37.24; 2) tákn allsnægta Jes 29.17; 33.9; 35.2 – fellur Sak 11.1-2; sbr Nah 1.4