1Þá er að minnast á kjötið, sem fórnað hefur verið skurðgoðum. Vér vitum, að þekking höfum vér allir. Þekkingin blæs menn upp, en kærleikurinn byggir upp.2Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber.3En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum.4En hvað varðar neyslu kjöts, sem fórnað hefur verið skurðgoðum, þá vitum vér, að skurðgoð er ekkert í heiminum og að enginn er Guð nema einn.5Því að enda þótt til séu svo nefndir guðir, hvort heldur er á himni eða á jörðu, enda eru margir guðir og margir herrar,6þá höfum vér ekki nema einn Guð, föðurinn, sem allir hlutir eru frá og líf vort stefnir til, og einn Drottin, Jesú Krist, sem allir hlutir eru til orðnir fyrir og vér fyrir hann.7En ekki hafa allir þessa þekkingu. Af gömlum vana eta nokkrir kjötið allt til þessa sem fórnarkjöt, og þá saurgast samviska þeirra, sem er óstyrk.8En matur mun ekki gjöra oss þóknanlega Guði. Hvorki missum vér neins, þótt vér etum það ekki, né ávinnum vér neitt, þótt vér etum.9En gætið þess, að þetta frelsi yðar verði ekki hinum óstyrku að falli.10Því sjái einhver þig, sem hefur þekkingu á þessu, sitja til borðs í goðahofi, mundi það ekki stæla samvisku þess, sem óstyrkur er, til að neyta fórnarkjöts?11Hinn óstyrki glatast þá vegna þekkingar þinnar, bróðirinn, sem Kristur dó fyrir.12Þegar þér þannig syndgið gegn bræðrunum og særið óstyrka samvisku þeirra, þá syndgið þér á móti Kristi.13Þess vegna mun ég, ef matur verður bróður mínum til falls, um aldur og ævi ekki kjöts neyta, til þess að ég verði bróður mínum ekki til falls.

8.1 Kjöt fórnað skurðgoðum Post 15.29; 1Kor 10.23-31
8.2 Þykist einhver … Gal 6.3
8.3 Þekktur af Guði Gal 4.9
8.4 Skurðgoð ekki til 1Kor 10.19 – enginn er Guð nema einn 5Mós 4.35,39; 6.4
8.5 Svonefndir guðir 1Kor 10.20-21
8.6 Einn Guð Mal 2.10; 1Kor 12.6; Ef 4.6 – einn Drottinn Jóh 1.3; 1Kor 12.5; Ef 4.5; Kól 1.16
8.8 Matur og sambandið við Guð Róm 14.17
8.9 Að falli Róm 14.13,15,21; Gal 5.13
8.11 Hinn óstyrki og frelsi þitt Róm 14.15,20
8.13 Til falls Róm 14.21