1Þá safnaði Salómon saman öldungum Ísraels og öllum foringjum kynþáttanna, ætthöfðingjum Ísraelsmanna, til sín í Jerúsalem til þess að flytja sáttmálsörk Drottins upp eftir frá Davíðsborg, það er Síon.2Þá söfnuðust allir Ísraelsmenn til Salómons konungs í etaním-mánuði á hátíðinni er sá mánuður hinn sjöundi .3Þá komu allir öldungar Ísraels, og prestarnir tóku örkina.4Og þeir fluttu örk Drottins og samfundatjaldið og öll hin helgu áhöld, er í tjaldinu voru. Fluttu prestarnir og levítarnir þau upp eftir.5En Salómon konungur og allur Ísraelssöfnuður, er safnast hafði til hans, stóð ásamt honum frammi fyrir örkinni. Fórnuðu þeir sauðum og nautum, er eigi varð tölu né ætlan á komið fyrir fjölda sakir.6Og prestarnir fluttu sáttmálsörk Drottins á sinn stað, í innhús musterisins, inn í Hið allrahelgasta, inn undir vængi kerúbanna.7Kerúbarnir breiddu út vængina þar yfir, er örkin stóð, og þannig huldu þeir örkina og stengur hennar ofan frá.8Stengurnar voru svo langar, að stangarendarnir sáust frá helgidóminum fyrir framan innhúsið, en utan að sáust þeir ekki. Og þær hafa verið þar fram á þennan dag.9Í örkinni var ekkert nema steintöflurnar tvær, er Móse hafði lagt þar við Hóreb, töflur sáttmálans, er Drottinn gjörði við Ísraelsmenn, þá er þeir fóru af Egyptalandi.10En er prestarnir gengu út úr helgidóminum, fyllti ský hús Drottins,11og máttu prestarnir eigi inn ganga fyrir skýinu til þess að gegna þjónustu, því að dýrð Drottins fyllti hús Drottins.12Þá mælti Salómon: Sólina setti hann á himininn, en Drottinn hefir sjálfur sagt, að hann vilji búa í dimmu.13Nú hefi ég byggt þér hús til bústaðar, aðseturstað handa þér um eilífð.Svo er ritað í ljóðabókinni.14Þá sneri konungur sér við og blessaði allan Ísraelssöfnuð, en allur Ísraelssöfnuður stóð.15Og hann mælti: Lofaður sé Drottinn, Ísraels Guð, er talaði með munni sínum við Davíð föður minn og efndi með hendi sinni það, er hann lofaði, þá er hann sagði:16Frá því er ég leiddi lýð minn Ísrael út af Egyptalandi, hefi ég ekki útvalið neina borg af öllum ættkvíslum Ísraels til þess að byggja þar hús, þar sem nafn mitt skyldi búa. En nú hefi ég útvalið Jerúsalem, til þess að nafn mitt búi þar, og ég útvaldi Davíð, til þess að hann skyldi ríkja yfir lýð mínum Ísrael.17Davíð faðir minn hafði í hyggju að reisa hús nafni Drottins, Ísraels Guðs,18en Drottinn sagði við Davíð föður minn: Vel gjörðir þú, er þú ásettir þér að reisa hús nafni mínu.19En eigi skalt þú reisa húsið, heldur skal sonur þinn, sá er út gengur af lendum þínum, reisa hús nafni mínu.20Og Drottinn hefir efnt orð sín, þau er hann talaði, því að ég kom í stað Davíðs föður míns og settist í hásæti Ísraels, svo sem Drottinn hafði heitið, og hefi nú reist hús nafni Drottins, Ísraels Guðs.21Og þar bjó ég örkinni stað, sem í er sáttmál Drottins, það er hann gjörði við feður vora, þá er hann leiddi þá út af Egyptalandi.22Og Salómon gekk fyrir altari Drottins í viðurvist alls Ísraelssafnaðar, fórnaði höndum til himins23og mælti: Drottinn, Guð Ísraels, enginn guð er sem þú á himnum uppi eða á jörðu niðri, þú sem heldur sáttmálann og miskunnsemina við þjóna þína, þá er ganga fyrir augliti þínu af öllu hjarta sínu,24þú sem hefir haldið það við þjón þinn, Davíð föður minn, er þú hést honum. Þú talaðir það með munni þínum og efndir það með hendi þinni, eins og nú er fram komið.25Efn nú, Drottinn, Ísraels Guð, við þjón þinn Davíð föður minn, það er þú hést honum, þá er þú sagðir: Eigi skal þig vanta eftirmann frammi fyrir mér, er sitji í hásæti Ísraels, ef synir þínir aðeins varðveita vegu mína með því að ganga fyrir augliti mínu, eins og þú hefir gengið fyrir augliti mínu.26Lát nú, Ísraels Guð, rætast orð þín, þau er þú talaðir við þjón þinn, Davíð föður minn.27En mun Guð í sannleika búa á jörðu? Sjá, himinninn og himnanna himnar taka þig ekki, hve miklu síður þá þetta hús, sem ég hefi reist.28En snú þér, Drottinn Guð minn, að bæn þjóns þíns og grátbeiðni hans, að þú heyrir ákall það og bæn, er þjónn þinn ber fram fyrir þig í dag:29að augu þín séu opin yfir þessu húsi dag og nótt, yfir þeim stað, er þú hefir um sagt: Þar skal nafn mitt búa að þú heyrir bæn þá, er þjónn þinn biður á þessum stað.30Og heyr þú grátbeiðni þjóns þíns og lýðs þíns Ísraels, er þeir fram bera á þessum stað, já heyr þú hana þar er þú býr á himnum, og fyrirgef, er þú heyrir.31Ef einhver gjörir á hluta náunga síns, og hann verður eiðs krafinn og látinn sverja, og hann kemur og vinnur eiðinn fyrir altari þínu í húsi þessu, þá heyr þú það á himnum.32Lát til þín taka og dæm þjóna þína með því að sakfella hinn seka og láta honum gjörðir hans í koll koma, en sýkna hinn saklausa og umbuna honum eftir réttlæti hans.33Ef lýður þinn Ísrael bíður ósigur fyrir óvinum sínum, af því að þeir hafa syndgað í móti þér, og þeir snúa sér til þín og játa þitt nafn og biðja og grátbæna þig í þessu húsi,34þá heyr þú það á himnum og fyrirgef synd lýðs þíns Ísraels og leið þá aftur heim til þess lands, sem þú gafst feðrum þeirra.35Ef himinninn er byrgður, svo að eigi nær að rigna, af því að þeir hafa syndgað í móti þér, og þeir biðja á þessum stað og játa nafn þitt og snúa sér frá syndum sínum, af því að þú auðmýkir þá,36þá heyr þú það á himnum og fyrirgef synd þjóna þinna og lýðs þíns Ísraels, því að þú kennir þeim þann góða veg, sem þeir eiga að ganga, og gef regn yfir land þitt, það er þú hefir gefið þínum lýð til eignar.37Ef hallæri verður í landinu, ef drepsótt kemur, eða korndrep eða gulnan, engisprettur eða jarðvargar, ef óvinir hans þrengja að honum í einhverri af borgum hans, eða plágu eða sótt ber að höndum, þá heyr þú,38ef einhver maður af lýð þínum Ísrael ber fram bæn eða grátbeiðni, af því að hann kennir angurs í hjarta sínu, og fórnar höndum til þessa húss39þá heyr þú það á himnum, aðseturstað þínum, og fyrirgef og lát til þín taka og gef sérhverjum eins og hann hefir til unnið og svo sem þú þekkir hjarta hans því að þú einn þekkir hjörtu allra manna40til þess að þeir óttist þig alla þá stund, er þeir lifa í landinu, er þú gafst feðrum vorum.41Ef útlendingur, sem eigi er af lýð þínum Ísrael, en kemur úr fjarlægu landi vegna nafns þíns42því að þeir munu heyra getið um þitt mikla nafn, þína sterku hönd og útréttan armlegg þinn ef hann kemur hingað og biður frammi fyrir þessu húsi,43þá heyr þú það á himnum, aðseturstað þínum, og gjör allt það, sem útlendingurinn biður þig um, til þess að öllum þjóðum jarðarinnar verði kunnugt nafn þitt og þær óttist þig, eins og lýður þinn Ísrael, og til þess að þær megi vita, að hús þetta, sem ég hefi byggt, er kennt við þig.44Ef lýður þinn fer í ófrið í móti óvinum sínum, þangað sem þú sendir þá, og þeir biðja til Drottins og snúa sér í áttina til borgarinnar, sem þú hefir útvalið, og hússins, sem ég hefi reist þínu nafni,45þá heyr þú á himnum bæn þeirra og grátbeiðni og rétt þú hlut þeirra.46Ef þeir syndga í gegn þér því að enginn er sá, er eigi syndgi og þú reiðist þeim og gefur þá á vald óvinum þeirra, og sigurvegarar þeirra flytja þá hernumda til fjandmannalandsins, hvort sem þangað er langt eða skammt,47og þeir taka sinnaskipti í landinu, þar sem þeir eru hernumdir, og þeir snúa sér og grátbæna þig í landi sigurvegara sinna og segja: Vér höfum syndgað og vér höfum misgjört, vér höfum breytt óguðlega,48og þeir snúa sér til þín af öllu hjarta sínu og allri sálu sinni í landi óvina sinna, er hafa flutt þá burt hernumda, og þeir biðja til þín og snúa sér í áttina til lands síns, þess er þú gafst feðrum þeirra, til borgarinnar, sem þú hefir útvalið, og til hússins, sem ég hefi reist þínu nafni,49þá heyr þú á himnum, aðseturstað þínum, bæn þeirra og grátbeiðni, og rétt þú hlut þeirra50og fyrirgef lýð þínum það, sem þeir misgjörðu í móti þér, og öll afbrotin, sem þeir drýgðu gegn þér, og lát þá hljóta miskunn af hendi þeirra, er þá hafa hernumið, svo að þeir miskunni þeim.51Því að þeir eru þinn lýður og þín eign, sem þú leiddir út af Egyptalandi, út úr járnbræðsluofninum.52Lát opin vera augu þín fyrir grátbeiðni þjóns þíns og grátbeiðni lýðs þíns Ísraels, að þú bænheyrir þá, hvenær sem þeir biðja þig.53Því að þú hefir skilið þá frá öllum þjóðum jarðarinnar þér til eignar, eins og þú hést fyrir þjón þinn Móse, þá er þú, Drottinn Guð, leiddir feður vora af Egyptalandi.54Þegar Salómon hafði lokið þessari bæn og grátbeiðni til Drottins, þá stóð hann upp frammi fyrir altari Drottins, þar sem hann hafði kropið á kné og fórnað höndum til himins.55Gekk hann nú fram og blessaði allan Ísraelssöfnuð hárri röddu og mælti:56Lofaður sé Drottinn, sem veitt hefir hvíld lýð sínum Ísrael, eins og hann hefir heitið. Ekkert af öllum hans dýrlegu fyrirheitum, sem hann gaf fyrir þjón sinn Móse, hefir brugðist.57Drottinn, Guð vor, sé með oss, eins og hann hefir verið með feðrum vorum. Hann yfirgefi oss ekki og útskúfi oss ekki,58heldur hneigi hjörtu vor til sín, svo að vér göngum jafnan á hans vegum og varðveitum öll hans boðorð, lög og ákvæði, þau er hann lagði fyrir feður vora.59Og þessi mín orð, er ég hefi fram borið fyrir Drottin með grátbeiðni, séu nálæg Drottni, Guði vorum, dag og nótt, svo að hann rétti hlut þjóns síns og lýðs síns Ísraels, eftir því sem þörf gjörist á degi hverjum,60til þess að allar þjóðir á jörðinni komist að raun um, að Drottinn er Guð og enginn annar.61Hjörtu yðar séu heil og óskipt gagnvart Drottni, Guði vorum, svo að þér breytið eftir lögum hans og haldið boðorð hans, eins og nú.62Þá fórnaði konungur og allur Ísrael með honum sláturfórnum frammi fyrir Drottni.63Salómon fórnaði tuttugu og tvö þúsund nautum og hundrað og tuttugu þúsund sauðum í heillafórn, er hann færði Drottni. Þannig vígði konungur og allir Ísraelsmenn hús Drottins.64Þann dag vígði konungur miðhluta forgarðsins, sem er fyrir framan hús Drottins, því að þar fórnaði hann brennifórninni og matfórninni og hinum feitu stykkjum heillafórnanna, því að eiraltarið, sem stóð frammi fyrir Drottni, var of lítið til þess að geta tekið brennifórnina, matfórnina og hin feitu stykki heillafórnanna.65Þannig hélt Salómon hátíðina og allur Ísrael með honum, mikill söfnuður, norðan þaðan er leið liggur til Hamat, allt suður til Egyptalandsár. Þeir héldu hátíð frammi fyrir Drottni, Guði vorum, í sjö daga, og aðra sjö daga, fjórtán daga alls.66En áttunda daginn lét hann fólkið frá sér fara. Og þeir kvöddu konung og fóru heim til sín, glaðir og í góðu skapi yfir öllum þeim gæðum, sem Drottinn hafði veitt Davíð þjóni sínum og lýð sínum Ísrael.

8.1 Flytja örkina 2Sam 6.12-17
8.6 Undir kerúbunum 1Kon 6.23-28+
8.9 Tvær steintöflur 2Mós 25.16; 40.20; 5Mós 10.5; Heb 9.4
8.10 Ský 2Mós 40.34+
8.12 Myrkur Slm 18.12
8.13 Eilífur Slm 132.14
8.16 Ég útvaldi Davíð 1Sam 16
8.18 Vel gerðir þú 2Sam 7.1-7
8.23 Enginn guð er sem þú 5Mós 4.35,39; 6.4; 7.9
8.25 Niðjar þínir 1Kon 2.4+
8.27 Býr Guð á jörðinni? sbr Jóh 1.14; Post 17.24; Opb 21.3 – himininn Jes 66.1; Jer 23.24; Post 7.49
8.29 Nafn mitt búa 5Mós 12.5,11, sbr Esk 48.35; Opb 21.22
8.33 Ósigur 3Mós 26.17; 5Mós 28.25; Jós 7
8.35 Rignir ekki 1Kon 17-18; 3Mós 26.19; 5Mós 11.17; 28.24; Jer 3.3; Opb 11.6
8.37 Hungursneyð, drepsótt … 3Mós 26.16,25; 5Mós 28.21-22,38,42
8.41 Útlendingur 3Mós 19.34; 2Kon 5; Jes 2.2-4;56.6-7; Jónas; Sak 8.20-23; Rut; Gal 3.28
8.44 Til þessarar borgar Dan 6.11
8.46 Sem fangar 1Kon 14.15; 3Mós 26.33-34; 5Mós 28.63-64; 30.1-2
8.51 Egyptaland, járnbræðsluofn 5Mós 4.20; Jer 11.4
8.53 Greint hana frá 5Mós 7.6
8.56 Griðastað 5Mós 12.10; Jós 21.44 – óbrigðul fyrirheit Jós 21.45; 23.14; 1Sam 3.19; 2Kon 10.10; Jes 55.10-11
8.57 Með okkur 5Mós 31.6; Jós 1.5; Jes 7.14
8.60 Enginn annar guð 1Kon 8.23+; Jes 45.5-6
8.61 Heilum hug 1Kon 11.4; 15.3,14; sbr Hós 10.2; Sl 12.3
8.63 Vígsla 4Mós 7; Esr 6.16-17