1Þess vegna er það, að ég, Páll, bandingi Krists Jesú vegna yðar, heiðinna manna, beygi kné mín.2Víst hafið þér heyrt um þá ráðstöfun Guðs náðar, sem hann fól mér hjá yður:3Að birta mér með opinberun leyndardóminn. Ég hef stuttlega skrifað um það áður.4Þegar þér lesið það, getið þér skynjað, hvað ég veit um leyndardóm Krists.5Hann var ekki birtur mannanna sonum fyrr á tímum. Nú hefur hann verið opinberaður heilögum postulum hans og spámönnum í andanum:6Heiðingjarnir eru í Kristi Jesú fyrir fagnaðarerindið orðnir erfingjar með oss, einn líkami með oss, og eiga hlut í sama fyrirheiti og vér.7Ég varð þjónn þessa fagnaðarerindis, af því að Guð gaf mér gjöf náðar sinnar með krafti máttar síns.8Mér, sem minnstur er allra heilagra, var veitt sú náð að boða heiðingjunum fagnaðarerindið um hinn órannsakanlega ríkdóm Krists9og að upplýsa alla um það, hvernig Guð hefur ráðstafað þessum leyndardómi. Hann hefur frá eilífð verið hulinn í Guði, sem allt hefur skapað.10Nú skyldi kirkjan látin kunngjöra tignunum og völdunum í himinhæðum, hve margháttuð speki Guðs er.11Þetta er Guðs eilífa fyrirætlun, sem hann hefur framkvæmt í Kristi Jesú, Drottni vorum.12Á honum byggist djörfung vor. Í trúnni á hann eigum vér öruggan aðgang að Guði.13Fyrir því bið ég, að þér látið eigi hugfallast út af þrengingum mínum yðar vegna. Þær eru yður til vegsemdar.14Þess vegna beygi ég kné mín fyrir föðurnum,15sem hvert faðerni fær nafn af á himni og jörðu.16Megi hann gefa yður af ríkdómi dýrðar sinnar að styrkjast fyrir anda sinn að krafti hið innra með yður,17til þess að Kristur megi fyrir trúna búa í hjörtum yðar og þér verða rótfestir og grundvallaðir í kærleika.18Þá fáið þér ásamt öllum heilögum skilið, hve kærleikur Krists er víður og langur, hár og djúpur, og komist að raun um hann,19sem gnæfir yfir alla þekkingu, og náið að fyllast allri Guðs fyllingu.20En honum, sem í oss verkar með krafti sínum og megnar að gjöra langt fram yfir allt það, sem vér biðjum eða skynjum,21honum sé dýrð í kirkjunni og í Kristi Jesú um öll æviskeið, öld eftir öld. Amen.

3.1 Páll bandingi Ef 4.1; Fil 1.7,13; Kól 4.18; Fílm 1.9
3.2-13 Kristniboð Páls Kól 1.24-29
3.2 Postuli af náð Róm 12.3; 15.15; 1Kor 3.10; Gal 2.9
3.3 Opinberun Gal 1.12,16 – birta mér leyndardóminn 1.9-10; Kól 1.26-27; 2.2; Róm 16.25-26; 1Kor 2.7-9; Tít 1.2-3
3.4-6 Leyndardómur Krists Róm 9-11
3.5 Postular og spámenn Ef 2.20
3.6 Heiðingjar Ef 2.11-13,18-19
3.7 Þjónn fagnaðarerindisins Kól 1.23-25
3.8 Minnstur postulanna 1Kor 15.9-10; 1Tím 1.15 – postuli heiðingja Post 9.15; 22.21; 26.17-18; Gal 1.16; 2.8
3.10 Tignir og völd Kól 1.16+ ; 1Pét 1.12 – speki Guðs SSal 7.27; Róm 11.33-36
3.11 Eilíf fyrirætlun Guðs Ef 1.4,11
3.12 Örggur aðgangur Ef 2.18+
3.13 Yður til vegsemdar Kól 1.24
3.14-15 Faðir Ef 1.17-18; Matt 11.25-27
3.17 Kristur í hjörtum yðar Jóh 14.23; Róm 8.11; sbr SSal 1.4 – rótfest og grundvölluð Kól 1.23; 2.7; sbr Slm 89.3+
3.19 Þekkja Gal 4.9; Kól 2.2-3 – kærleikur Krists 1Kor 13 – fylling Guðs Ef 1.23+
3.20-21 Lofgjörð Róm 16.25-27; Júd 24-25 – með krafti sínum Kól 1.29