1Ég ætla að nema staðar á varðbergi mínu og ganga út á virkisvegginn og skyggnast um til þess að sjá, hvað hann talar við mig og hverju hann svarar umkvartan minni.2Þá svaraði Drottinn mér og sagði: Skrifa þú vitrunina upp og letra svo skýrt á spjöldin, að lesa megi viðstöðulaust.3Því að enn hefir vitrunin sinn ákveðna tíma, en hún skundar að takmarkinu og bregst ekki. Þótt hún dragist, þá vænt hennar, því að hún mun vissulega fram koma og ekki undan líða.4Sjá, hann er hrokafullur og ber eigi í brjósti sér ráðvanda sál, en hinn réttláti mun lifa fyrir trúfesti sína.5Vei ræningjanum, manninum sem girnist og eigi verður saddur, sem glennir sundur gin sitt eins og Hel og er óseðjandi eins og dauðinn, sem safnaði til sín öllum þjóðum og dró að sér alla lýði.6Munu eigi allir þessir kveða um hann háðkvæði og níð, gátur um hann? Menn munu segja: Vei þeim, sem rakar saman annarra fé hversu lengi? og hleður á sig pantteknum munum.7Munu eigi lánsalar þínir skyndilega upp rísa og þeir vakna, er að þér munu þrengja? Þá munt þú verða herfang þeirra.8Því að eins og þú hefir rænt margar þjóðir, svo munu nú allar hinar þjóðirnar ræna þig fyrir manndrápin og fyrir ofríkið, sem landið hefir beitt verið, borgin og allir íbúar hennar.9Vei þeim, sem sækist eftir illum ávinningi fyrir hús sitt til þess að geta byggt hreiður sitt hátt uppi, til þess að geta bjargað sér undan hendi ógæfunnar.10Þú tókst upp það ráð, sem varð húsi þínu til smánar, að afmá margar þjóðir, og bakaðir sjálfum þér sekt.11Því að steinarnir munu hrópa út úr múrveggnum og sperrur úr grindinni svara þeim.12Vei þeim, sem reisir stað með manndrápum og grundvallar borg með glæpum.13Kemur slíkt ekki frá Drottni allsherjar? Þjóðir vinna fyrir eldinn, og þjóðflokkar þreyta sig fyrir ekki neitt!14Því að jörðin mun verða full af þekking á dýrð Drottins, eins og djúp sjávarins vötnum hulið.15Vei þeim, sem gefur vinum sínum að drekka úr skál heiftar sinnar og gjörir þá jafnvel drukkna til þess að sjá blygðan þeirra.16Þú hefir mettað þig á smán, en ekki á heiðri. Drekk þú nú einnig og reika! Bikarinn í hægri hendi Drottins kemur nú til þín og vansi ofan á vegsemd þína.17Því að ofríkið, sem haft hefir verið í frammi við Líbanon, skal á þér bitna og dýradrápið hræða þig fyrir manndrápin og fyrir ofríkið, sem landið hefir beitt verið, borgin og allir íbúar hennar.18Hvað gagnar skurðmynd, að smiðurinn sker hana út, eða steypt líkneski og lygafræðari, að smiðurinn treystir á það, svo að hann býr til mállausa guði?19Vei þeim, sem segir við trédrumb: Vakna þú! Rís upp! við dumban steininn. Mun hann geta frætt? Nei, þótt hann sé búinn gulli og silfri, þá er þó enginn andi í honum.20En Drottinn er í sínu heilaga musteri, öll jörðin veri hljóð fyrir honum!

2.1 Spámaður, vörður Jes 21.6-8,11; Jer 6.17; Esk 3.17; 33.1-9; Mík 7.4
2.2 Boðskaður Guðs skrifaður 2Mós 24.12; 5Mós 4.13; 27.8; Jes 8.1; 30.8; Jer 30.2; 36.2,4,32; Opb 1.19
2.3 Ákveðinn tími Dan 8.19; 10.14; 11.27,35 – þótt töf verði á 2Pét 3.9
2.4 Fyrir trú sína Róm 1.17; Gal 3.11; Heb 10.38
2.6-12 Vei Jes 10.1+ – þeim sem kúgar Jer 22.13-19
2.6 Háðkvæði Jes 14.4; Mík 2.4 – sópa að sér … Jes 5.8 – hve miklu lengur? Slm 6.4
2.8 Goldið í sömu mynt Jes 33.1; Jer 30.16; 50.10,29; Ób 15; Opb 18.6-7; sbr Jer 2.19
2.10 Eyðing þjóða Heb 1.17; Jes 10.7
2.11 Steinarnir hrópa Lúk 19.40
2.12 Á manndrápum Jer 22.13; Mík 3.10
2.14 Dýrð Drottins fyllir jörðina Jes 6.3+
2.15 Ölvun og nekt 1Mós 9.20-25
2.16 Drekk þú einnig Hlj 4.21 – blygðast sín fyrir nekt sína 1Mós 3.7; Nah 3.5+
2.17 Ódæði gegn Líbanon Jes 37.24
2.18-19 Skurðgoðadýrkun Jes 40.19+
2.18 Mállaus goð 1Kor 12.2
2.20 Himneskt musteri Drottins 5Mós 26.15; 1Kon 8.30; Jes 40.22; Mík 1.2; Slm 11.4 – þögn Sef 1.7; Sak 2.17; sbr Opb 8.1