1Drottinn talaði við Móse og sagði:2Bjóð þú Ísraelsmönnum og seg við þá: Þér skuluð gæta þess að færa mér á tilteknum tíma fórnargjöf mína, mat minn af eldfórnunum til þægilegs ilms, er mér ber.3Og þú skalt segja við þá: Þetta er eldfórnin, sem þér skuluð færa Drottni: Tvær sauðkindur veturgamlar, gallalausar, á dag í stöðuga brennifórn.4Annarri sauðkindinni skalt þú fórna að morgni, hinni skalt þú fórna að kveldi um sólsetur,5og tíunda parti úr efu af fínu mjöli, blönduðu við fjórðung úr hín af olíu úr steyttum olíuberjum, í matfórn.6Er það hin stöðuga brennifórn, sem færð var undir Sínaífjalli til þægilegs ilms, sem eldfórn Drottni til handa.7Í dreypifórn skal fylgja hverri sauðkind fjórðungur úr hín. Í helgidóminum skalt þú dreypa Drottni dreypifórn af áfengum drykk.8Hinni sauðkindinni skalt þú fórna um sólsetur, með sömu matfórn sem um morguninn og þeirri dreypifórn, er henni fylgir, sem eldfórn þægilegs ilms Drottni til handa.9Á hvíldardegi skal fórna tveim sauðkindum veturgömlum gallalausum, og tveim tíundu pörtum úr efu af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn, og dreypifórninni, er henni fylgir.10Þetta er brennifórnin, sem færa skal á hverjum hvíldardegi, auk hinnar stöðugu brennifórnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgir.11Á fyrsta degi hvers mánaðar skuluð þér færa Drottni í brennifórn tvö ungneyti, einn hrút og sjö sauðkindur veturgamlar gallalausar,12og þrjá tíundu parta úr efu af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn með hverju nauti, tvo tíundu parta af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn með hrútnum,13og einn tíunda part af fínu mjöli, blönduðu við olíu, í matfórn með hverri sauðkind, sem brennifórn þægilegs ilms, sem eldfórn Drottni til handa.14Dreypifórnirnar, er þeim fylgja, skulu vera hálf hín af víni með hverju nauti, þriðjungur úr hín með hrútnum og fjórðungur úr hín með hverri sauðkind. Þetta er brennifórnin, sem fórna skal á hverjum mánuði árið um kring.15Auk þess einn geithafur í syndafórn Drottni til handa. Skal fórna honum auk hinnar stöðugu brennifórnar og dreypifórnarinnar, er henni fylgir.16Í fyrsta mánuðinum, á fjórtánda degi mánaðarins, eru páskar Drottins.17Og á fimmtánda degi hins sama mánaðar er hátíð. Í sjö daga skal eta ósýrt brauð.18Fyrsta daginn er haldin helg samkoma. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu.19Og þér skuluð færa Drottni í eldfórn, í brennifórn tvö ungneyti, einn hrút og sjö sauðkindur veturgamlar. Skuluð þér hafa þær gallalausar.20Og í matfórn með þeim fínt mjöl, blandað við olíu. Skuluð þér fórna þremur tíundu pörtum með hverju nauti og tveimur tíundu pörtum með hrútnum.21Einum tíunda parti skalt þú fórna með hverri þeirra sjö sauðkinda.22Enn fremur einn hafur í syndafórn til þess að friðþægja fyrir yður.23Þessu skuluð þér fórna, auk morgunbrennifórnarinnar, sem fram er borin í hina stöðugu brennifórn.24Þessu skuluð þér fórna á degi hverjum í sjö daga sem eldfórnarmat þægilegs ilms Drottni til handa. Skal fórna því auk hinnar stöðugu brennifórnar og dreypifórnarinnar, er honum fylgir.25Sjöunda daginn skuluð þér halda helga samkomu. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu.26Frumgróðadaginn, þegar þér færið Drottni nýja matfórn, á viknahátíð yðar, skuluð þér halda helga samkomu. Eigi skuluð þér þá vinna neina stritvinnu.27Og í brennifórn þægilegs ilms Drottni til handa skuluð þér færa tvö ungneyti, einn hrút og sjö sauðkindur veturgamlar.28Og í matfórn með þeim fínt mjöl, blandað við olíu, þrjá tíundu parta með hverju nauti, tvo tíundu parta með hrútnum,29„einn tíunda part með hverri þeirra sjö sauðkinda;“30einn geithafur til þess að friðþægja fyrir yður.31Auk hinnar stöðugu brennifórnar og matfórnarinnar, er henni fylgir, skuluð þér fórna þessu, ásamt dreypifórnunum, er því fylgja. Skuluð þér hafa það gallalaust. gallalaust.

28.3 Daglega 2Mós 29.38-46+
28.9 Hvíldardagurinn Esk 46.4-5; Matt 12.5
28.11 Tunglkomudagur Esk 46.6-7; sbr 2Kon 4.23; Jes 1.13; Hós 2.13; Am 8.5
28.16 Páskar 2Mós 12.1+
28.26 Viknahátíð 2Mós 23.16+