1Í söfnuðinum í Antíokkíu voru spámenn og kennarar. Þar voru þeir Barnabas, Símeon, nefndur Níger, Lúkíus frá Kýrene, Manaen, samfóstri Heródesar fjórðungsstjóra, og Sál.2Eitt sinn er þeir voru að þjóna Drottni og föstuðu sagði heilagur andi: Skiljið frá mér til handa þá Barnabas og Sál til þess verks, sem ég hef kallað þá til.3Síðan föstuðu þeir og báðust fyrir, lögðu hendur yfir þá og létu þá fara.4Þeir fóru nú, sendir af heilögum anda, til Selevkíu og sigldu þaðan til Kýpur.5Þegar þeir voru komnir til Salamis, boðuðu þeir orð Guðs í samkunduhúsum Gyðinga. Höfðu þeir og Jóhannes til aðstoðar.6Þeir fóru um alla eyna, allt til Pafos. Þar fundu þeir töframann nokkurn og falsspámann, Gyðing, er hét Barjesús.7Hann var hjá landstjóranum Sergíusi Páli, hyggnum manni, sem hafði boðað þá Barnabas og Sál á fund sinn og fýsti að heyra Guðs orð.8Gegn þeim stóð Elýmas, töframaðurinn, en svo er nafn hans útlagt. Reyndi hann að gjöra landstjórann fráhverfan trúnni.9En Sál, sem og er nefndur Páll, hvessti á hann augun og sagði, fylltur heilögum anda:10Þú djöfuls sonur, fullur allra véla og flærðar, óvinur alls réttlætis, ætlar þú aldrei að hætta að rangsnúa réttum vegum Drottins?11Nú er hönd Drottins reidd gegn þér, og þú munt verða blindur og ekki sjá sól um tíma. Jafnskjótt féll yfir hann þoka og myrkur, og hann reikaði um og leitaði einhvers til að leiða sig.12Þegar landstjórinn sá þennan atburð, varð hann gagntekinn af kenningu Drottins og tók trú.13Þeir Páll lögðu út frá Pafos og komu til Perge í Pamfýlíu, en Jóhannes skildi við þá og sneri aftur til Jerúsalem.14Sjálfir héldu þeir áfram frá Perge og komu til Antíokkíu í Pisidíu, gengu á hvíldardegi inn í samkunduhúsið og settust.15En eftir upplestur úr lögmálinu og spámönnunum sendu samkundustjórarnir til þeirra og sögðu: Bræður, ef þér hafið einhver hvatningarorð til fólksins, takið þá til máls.16Þá stóð Páll upp, benti til hljóðs með hendinni og sagði: Ísraelsmenn og aðrir þér, sem óttist Guð, hlýðið á.17Guð lýðs þessa, Ísraels, útvaldi feður vora og hóf upp lýðinn í útlegðinni í Egyptalandi. Með upplyftum armi leiddi hann þá út þaðan.18Og um fjörutíu ára skeið fóstraði hann þá í eyðimörkinni.19Hann stökkti burt sjö þjóðum úr Kanaanslandi og gaf þeim land þeirra til eignar.20Svo stóð um fjögur hundruð og fimmtíu ára skeið. Eftir þetta gaf hann þeim dómara allt til Samúels spámanns.21Síðan báðu þeir um konung, og Guð gaf þeim Sál Kísson, mann af Benjamíns ætt. Hann ríkti í fjörutíu ár.22Þegar Guð hafði sett hann af, hóf hann Davíð til konungs yfir þeim. Um hann vitnaði hann: Ég hef fundið Davíð, son Ísaí, mann eftir mínu hjarta, er gjöra mun allan vilja minn.23Af kyni hans sendi Guð Ísrael frelsara, Jesú, samkvæmt fyrirheiti.24En áður en hann kom fram, boðaði Jóhannes öllum Ísraelslýð iðrunarskírn.25Þegar Jóhannes var að enda skeið sitt, sagði hann: Hvern hyggið þér mig vera? Ekki er ég hann. Annar kemur eftir mig, og er ég eigi verður þess að leysa skó af fótum honum.26Bræður, niðjar Abrahams, og aðrir yðar á meðal, sem óttist Guð, oss er sent orð þessa hjálpræðis.27Þeir, sem í Jerúsalem búa, og höfðingjar þeirra þekktu hann eigi né skildu orð spámannanna, sem upp eru lesin hvern hvíldardag, en uppfylltu þau með því að dæma hann.28Þótt þeir fyndu enga dauðasök hjá honum, báðu þeir Pílatus að láta lífláta hann.29En er þeir höfðu fullnað allt, sem um hann var ritað, tóku þeir hann ofan af krossinum og lögðu í gröf.30En Guð vakti hann frá dauðum.31Marga daga birtist hann þeim, sem með honum fóru frá Galíleu upp til Jerúsalem, og eru þeir nú vottar hans hjá fólkinu.32Og vér flytjum yður þau gleðiboð,33að fyrirheitið, sem Guð gaf feðrum vorum, hefur hann efnt við oss börn þeirra með því að reisa Jesú upp. Svo er ritað í öðrum sálminum: Þú ert sonur minn, í dag hef ég fætt þig.34En um það, að hann reisti hann frá dauðum, svo að hann hverfur aldrei aftur í greipar dauðans, hefur hann talað þannig: Yður mun ég veita heilögu, óbrigðulu fyrirheitin, sem Davíð voru gefin.35Á öðrum stað segir: Eigi munt þú láta þinn heilaga verða rotnun að bráð.36Davíð þjónaði sinni kynslóð að Guðs ráði. Síðan sofnaði hann, safnaðist til feðra sinna og varð rotnun að bráð.37En sá, sem Guð uppvakti, varð ekki rotnun að bráð.38Það skuluð þér því vita, bræður, að yður er fyrir hann boðuð fyrirgefning syndanna39og að sérhver, er trúir, réttlætist í honum af öllu því, er lögmál Móse gat ekki réttlætt yður af.40Gætið nú þess, að eigi komi það yfir yður, sem sagt er hjá spámönnunum:41Sjáið, þér spottarar, undrist, og verðið að engu, því að verk vinn ég á dögum yðar, verk, sem þér alls ekki munduð trúa, þótt einhver segði yður frá því.42Þegar þeir gengu út, báðu menn um, að mál þetta yrði rætt við þá aftur næsta hvíldardag.43Og er samkomunni var slitið, fylgdu margir Gyðingar og guðræknir menn, sem tekið höfðu trú Gyðinga, þeim Páli og Barnabasi. En þeir töluðu við þá og brýndu fyrir þeim að halda sér fast við náð Guðs.44Næsta hvíldardag komu nálega allir bæjarmenn saman til að heyra orð Drottins.45En er Gyðingar litu mannfjöldann, fylltust þeir ofstæki og mæltu gegn orðum Páls með guðlasti.46Páll og Barnabas svöruðu þá einarðlega: Svo hlaut að vera, að orð Guðs væri fyrst flutt yður. Þar sem þér nú vísið því á bug og metið sjálfa yður ekki verða eilífs lífs, þá snúum vér oss nú til heiðingjanna.47Því að svo hefur Drottinn boðið oss: Ég hef sett þig til að vera ljós heiðinna þjóða, að þú sért hjálpræði allt til endimarka jarðar.48En er heiðingjar heyrðu þetta, glöddust þeir og vegsömuðu orð Guðs, og allir þeir, sem ætlaðir voru til eilífs lífs, tóku trú.49Og orð Drottins breiddist út um allt héraðið.50En Gyðingar æstu upp guðræknar hefðarkonur og fyrirmenn borgarinnar og vöktu ofsókn gegn Páli og Barnabasi og ráku þá burt úr byggðum sínum.51En þeir hristu dustið af fótum sér móti þeim og fóru til Íkóníum.52En lærisveinarnir voru fylltir fögnuði og heilögum anda.

13.1 Söfnuðurinn Post 5.11+ – spámenn í söfnuðinum Post 11.27+ – kennarar 1Kor 12.28; Ef 4.11; Heb 5.12; Jak 3.1 – Barnabas Post 4.36+
13.2 Taka frá Post 9.15; Gal 1.15-16 – til þess verks … Post 14.26
13.3 Biðja og leggja hendur yfir Post 6.6; 14.23
13.4 Til Kýpur Post 15.39
13.5 Fyrst boðað Gyðingum Post 3.26; 13.14,46; 14.1; 16.13; 17.2,10,17; 18.4,19; 19.8; 28.17,23 – Jóhannes Markús Post 12.12+
13.8 Gegn þeim 2Tím 3.8
13.10 Rangsnúa vegum Drottins Okv 10.9 – réttir vegi Drottins Hós 14.10
13.11 Blindur um tíma Post 9.8; 22.11
13.13 Jóhannes Markús Post 12.12+
13.15 Upplestur úr lögmálinu Post 15.21 sbr Lúk 4.16-22
13.16 Benti til hljóðs Post 12.17+ – postulleg boðun Post 2.14+ – þið, sem óttist Guð Post 10.2+
13.17 Leiddi út þaðan 2Mós 6.1,6; 12.51
13.18 Fjörutíu ár í eyðimörkinni 2Mós 16.35; 4Mós 14.34; 5Mós 2.7
13.19 Sjö þjóðir 5Mós 7.1 – til eignar Jós 14.1
13.20 Dómarar Dóm 2.16 – Samúel spámaður 1Sam 3.20
13.21 Báðu um konung 1Sam 8.5,19 – Sál 1Sam 10.20-21,24; 11.15 – ætt Benjamíns Róm 11.1; Fil 3.5
13.22 Sál settur af 1Sam 13.14 – Davíð verður konungur 1Sam 16.12-13 – ég hef fundið Davíð Slm 89.21 – eftir mínu hjarta 1Sam 13.14 – gera vilja minn Jes 44.28
13.23 Af kyni Davíðs 2Sam 7.12; Jes 11.1; Post 2.25-32,34 – Jesús er frelsari Post 4.12+ ; sbr Lúk 2.11+
13.24 Starf Jóhannesar skírara Matt 3.1-2; Mrk 1.4-5; Lúk 3.3; 16.16; Post 1.5; 10.37; 19.3-5
13.25 Jóhannes vitnar um Krist Lúk 3.15; Jóh 1.20; 3.28 – annar kemur eftir mig Matt 3.11; Mrk 1.7; Lúk 3.16; Jóh 1.27
13.26 Þér, sem óttist Guð Post 10.2+
13.27 Þekktu hann ekki Post 3.17
13.28 Fundu enga sök Matt 26.60; Mrk 14.55,56,59; 15.14; Lúk 23.4,14-15,22; Jóh 18.38; 19.4,6 – báðu Pílatus … Lúk 23.21,23 og hlst.; Jóh 19.6,7,15
13.29 Lögðu í gröf Lúk 23.35 og hlst.; Jóh 19.38,41-42
13.30 Vakti hann frá dauðum Post 2.24+
13.31 Birtist Post 1.3 – vottar Post 1.8+
13.32-33 Fyrirheit Guðs Post 13.23
13.33 Þú ert sonur minn Slm 2.7; Lúk 3.22; Heb 1.5; 5.5
13.34 Óbrigðulu fyrirheitin Jes 55.3
13.35 Eigi munt þú … Slm 16.10
13.36 Sofnaði 1Kon 2.10; Post 2.29 – safnaðist til feðra sinna 1Kon 2.10
13.38 Fyrirgefning synda Post 2.38; 5.31; 10.43; 26.18
13.39 Lögmálið gat ekki réttlætt Róm 3.21-31; Heb 9.9 – réttlættist í honum Róm 4.25; 6.7; 10.4
13.41 Þér spottarar Hab 1.5; sbr Jes 6.9-10; Post 28.26-27
13.43 Tekið höfu trú Gyðinga Post 2.11+ – guðræknir Post 13.50; 16.14; 17.4,17; 18.7 – halda sér fast við náð Guðs Post 11.23; 14.22
13.45 Fylltust ofstæki Post 14.2; 18.6
13.46 Ykkur fyrst … Post 3.26+ – vísið á bug Lúk 7.30 – til heiðingjanna Post 18.6; 19.8-9; 28.28
13.47 Ég hef sett þig … Jes 49.6; sbr Lúk 2.32
13.48 Glöddust Post 11.18; sbr Post 8.8+
13.50 Hefðarkonur Post 17.4,12
13.51 Hrista dustið Matt 10.14+ og hlst.
13.52 Fylltir fögnuði Post 8.8+ – og heilögum anda Gal 5.22; 1Þess 1.6