1Svo bar til, þá er Davíð sat í höll sinni, að Davíð sagði við Natan spámann: Sjá, ég bý í höll af sedrusviði, en sáttmálsörk Drottins undir tjalddúkum.2Natan svaraði Davíð: Gjör þú allt, sem þér er í hug, því að Guð er með þér.3En hina sömu nótt kom orð Guðs til Natans:4Far þú og seg Davíð þjóni mínum: Svo segir Drottinn: Eigi skalt þú reisa mér hús til að búa í.5Ég hefi ekki búið í húsi síðan er ég leiddi Ísraelsmenn út, allt fram á þennan dag, heldur ferðaðist ég í tjaldi og búð.6Alla þá stund, er ég hefi um farið meðal allra Ísraelsmanna, hefi ég þá sagt nokkurt orð í þá átt við nokkurn af dómurum Ísraels, þá er ég setti til að vera hirða lýðs míns: Hví reisið þér mér ekki hús af sedrusviði?7Og nú skalt þú svo segja þjóni mínum Davíð: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég tók þig úr haglendinu frá hjarðmennskunni og setti þig höfðingja yfir lýð minn Ísrael.8Ég hefi verið með þér í öllu, sem þú hefir tekið þér fyrir hendur, og upprætt alla óvini þína fyrir þér. Ég mun gjöra nafn þitt sem nafn hinna mestu manna, sem á jörðinni eru,9og fá lýð mínum Ísrael stað og gróðursetja hann þar, svo að hann geti búið á sínum stað og geti verið öruggur framvegis. Níðingar skulu eigi eyða honum framar eins og áður,10frá því er ég setti dómara yfir lýð minn Ísrael, og ég mun lægja alla fjandmenn þína. Og ég boða þér, að Drottinn mun reisa þér hús.11Þegar ævi þín er öll og þú gengur til feðra þinna, mun ég hefja afspring þinn eftir þig, einn af sonum þínum, og staðfesta konungdóm hans.12Hann skal reisa mér hús og ég mun staðfesta hásæti hans að eilífu.13Ég vil vera honum faðir og hann skal vera mér sonur, og miskunn mína mun ég ekki frá honum taka, eins og ég tók hana frá fyrirrennara þínum,14heldur mun ég setja hann yfir hús mitt og ríki að eilífu, og hásæti hans skal vera óbifanlegt um aldur.15Natan flutti Davíð öll þessi orð og sagði honum sýn þessa alla.16Þá gekk Davíð konungur inn og settist niður frammi fyrir Drottni og mælti: Hver er ég, Drottinn Guð, og hvað er hús mitt, að þú skulir hafa leitt mig til þessa?17Og það nægði þér ekki, Guð, heldur hefir þú fyrirheit gefið um hús þjóns þíns langt fram í aldir, og það meira að segja á mannlegan hátt, Drottinn Guð.18En hvað má Davíð enn við þig mæla? Þú þekkir sjálfur þjón þinn.19Drottinn, sakir þjóns þíns og að þínum vilja hefir þú gjört þetta, að boða þjóni þínum alla þessa miklu hluti.20Drottinn, enginn er sem þú, og enginn er Guð nema þú, samkvæmt öllu því, er vér höfum heyrt með eyrum vorum.21Og hvaða þjóð önnur á jörðinni jafnast við þjóð þína Ísrael, að Guð hafi farið og keypt sér hana að eignarlýð, aflað sér frægðar og gjört fyrir hana mikla hluti og hræðilega: stökkt burt undan lýð sínum annarri þjóð og guði hennar?22Þú hefir gjört lýð þinn Ísrael að þínum lýð um aldur og ævi, og þú, Drottinn, gjörðist Guð þeirra.23Og lát nú, Drottinn, fyrirheit það, er þú hefir gefið um þjón þinn og um hús hans, standa stöðugt um aldur og ævi, og gjör þú svo sem þú hefir heitið.24Þá mun nafn þitt reynast traust og verða mikið að eilífu og hljóða svo: Drottinn allsherjar, Guð Ísraels, Ísraels Guð og hús þjóns þíns Davíðs mun stöðugt standa fyrir þér.25Því að þú, Guð minn, hefir birt þjóni þínum, að þú munir reisa honum hús. Fyrir því hafði þjónn þinn djörfung til að bera þessa bæn fram fyrir þig.26Og nú, Drottinn, þú ert Guð, og þú hefir gefið þjóni þínum þetta dýrlega fyrirheit,27virst þú nú að blessa hús þjóns þíns, svo að það sé til að eilífu fyrir þínu augliti. Því að það, sem þú, Drottinn, blessar, er blessað að eilífu.

17.1-15 sbr 2Sam 7.1-17
17.16-27 sbr 2Sam 7.18-29