1Til söngstjórans. Davíðssálmur.2Frelsa mig, Drottinn, frá illmennum, vernda mig fyrir ofríkismönnum,3þeim er hyggja á illt í hjarta sínu og vekja ófrið á degi hverjum.4Þeir gjöra tungur sínar hvassar sem höggormar, nöðrueitur er undir vörum þeirra. Sela5Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra, vernda mig fyrir ofríkismönnum, er hyggja á að bregða fæti fyrir mig.6Ofstopamenn hafa lagt gildrur í leyni fyrir mig og þanið út snörur eins og net, hjá vegarbrúninni hafa þeir lagt möskva fyrir mig. Sela7Ég sagði við Drottin: Þú ert Guð minn, ljá eyra, Drottinn, grátbeiðni minni.8Drottinn Guð, mín máttuga hjálp, þú hlífir höfði mínu á orustudeginum.9Uppfyll eigi, Drottinn, óskir hins óguðlega, lát vélar hans eigi heppnast. Sela10Þeir skulu eigi hefja höfuðið umhverfis mig, ranglæti vara þeirra skal hylja sjálfa þá.11Lát rigna á þá eldsglóðum, hrind þeim í gryfjur, svo að þeir fái eigi upp staðið.12Illmáll maður skal eigi fá staðist í landinu, ofríkismanninn skal ógæfan elta með sífelldum höggum.13Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra, rekur réttar snauðra.14Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu.

140.4 Nöðrueitur Róm 3.13; sbr Slm 58.5; Job 20.16
140.6 Net Slm 9.16+
140.7 Guð minn Slm 22.11+ – ljá eyra Slm 71.2+
140.11 Eldsglóðir Slm 120.4; sbr 11.6
140.13 Rekur réttar snauðra Slm 72.4; 146.7; Job 36.6; Okv 29.26
140.14 Hreinlyndir Slm 11.7