1Það orð er satt, að sækist einhver eftir biskupsstarfi, þá girnist hann fagurt hlutverk.2Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, bindindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn, góður fræðari.3Ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, heldur gæfur, ekki deilugjarn, ekki fégjarn.4Hann á að vera maður, sem veitir góða forstöðu heimili sínu og heldur börnum sínum í hlýðni með allri siðprýði.5Hvernig má sá, sem ekki hefur vit á að veita heimili sínu forstöðu, veita söfnuði Guðs umsjón?6Hann á ekki að vera nýr í trúnni, til þess að hann ofmetnist ekki og verði fyrir sama dómi og djöfullinn.7Hann á líka að hafa góðan orðstír hjá þeim, sem standa fyrir utan, til þess að hann verði eigi fyrir álasi og lendi í tálsnöru djöfulsins.8Svo eiga og djáknar að vera heiðvirðir, ekki tvímælismenn, ekki sólgnir í vín, ekki gefnir fyrir ljótan gróða.9Þeir skulu varðveita leyndardóm trúarinnar í hreinni samvisku.10Einnig þessir menn séu fyrst reyndir, síðan takist þeir þjónustuna á hendur, ef þeir eru óaðfinnanlegir.11Svo eiga og konur að vera heiðvirðar, ekki rógberar, heldur bindindissamar, trúar í öllu.12Djáknar séu einkvæntir, og hafi góða stjórn á börnum sínum og heimilum.13Því að þeir, sem vel hafa staðið í djáknastöðu, koma sér vel í veg og öðlast mikla djörfung í trúnni á Krist Jesú.14Þetta rita ég þér, þó að ég voni að koma bráðum til þín,15til þess að þú skulir vita, ef mér seinkar, hvernig á að haga sér í Guðs húsi, sem er söfnuður lifanda Guðs, stólpi og grundvöllur sannleikans.16Og víst er leyndardómur guðhræðslunnar mikill: Hann opinberaðist í holdi, var réttlættur í anda, birtist englum, var boðaður með þjóðum, var trúað í heimi, var hafinn upp í dýrð.

3.1 Það orð er satt 1Tím 1.15+ – biskupsstarf sbr Tít 1.6-9; Post 20.17,28
3.2 Einkvæntur sbr Mrk 10.1-11; 1Tím 5.9
3.3-7 Um biskupa Tít 1.6-9; sbr 2Tím 2.24-26
3.7 Fyrir utan Mrk 4.11+ – ekki fyrir álasi 2Kor 8.21
3.8 Djáknar Fil 1.1
3.11 Konur sbr Róm 16.1 – ekki rógberar Tít 2.3
3.12 Einkvæntir 1Tím 3.2+
3.13 Ávinna Mrk 10.43-44
3.15 Guðs hús Ef 2.19-22; sbr 1Kor 6.19
3.16 Leyndardómur Ef 3.3+ – trú, guðrækni 1Tím 4.7-8+ – birtist í manni Jóh 1.14 – sannaðist í anda Róm 1.4 – hafinn upp í dýrð Mrk 16.19; Post 1.9; sbr Fil 2.9-11